Enski boltinn

Wirtz sé búinn að missa trúna

Valur Páll Eiríksson skrifar
Þjóðverjinn Dietmar Hamann, fyrrverandi leikmaður Liverpool, óttast að landi sinn Wirtz muni aldrei slá í gegn hjá félaginu.
Þjóðverjinn Dietmar Hamann, fyrrverandi leikmaður Liverpool, óttast að landi sinn Wirtz muni aldrei slá í gegn hjá félaginu. Samsett/Getty

Þjóðverjinn Dietmar Hamann, fyrrverandi leikmaður Liverpool, heldur því fram að Florian Wirtz hafi ekki lengur trú á því að hann geti slegið í gegn hjá félaginu eftir erfitt fyrsta tímabil í Bítlaborginni.

Wirtz tókst ekki að standa undir 125 milljóna punda verðmiðanum eftir að hann kom frá Bayer Leverkusen síðasta sumar, en lið Arne Slot var langt frá því að verja Englandsmeistaratitilinn.

Þessi 23 ára gamli sóknartengiliður skoraði sjö mörk og lagði upp átta í 49 leikjum á fyrsta ári sínu á Englandi, en frammistaða hans hefur sætt vaxandi gagnrýni bæði á Englandi og í heimalandinu.

Þjóðverjinn hefur aðeins lagt upp eitt mark og ekkert skorað í sex leikjum undir stjórn nýja knattspyrnustjórans Andoni Iraola en var þó einhverju betri í nýliðnum landsliðsglugga með þýska landsliðinu undir stjórn Jurgen Klopp.

Hamann telur að Wirtz sé ekki ánægður hjá Liverpool og gefur í skyn að landi hans hafi misst trúna á að hann geti snúið gæfunni sér í hag á Englandi. Wirtz sjái jafnvel eftir því að hafa farið í ensku úrvalsdeildina.

„Ég veit ekki hvort hann trúir því enn að hann geti slegið í gegn,“ sagði fyrrverandi miðjumaður Liverpool við Sky í Þýskalandi.

„Þegar ég sé hann spila fyrir Liverpool fæ ég oft á tilfinninguna að hann sé ekki ánægður. Þetta er leikmaður sem býr yfir gleði; maður sá það í hverri einustu snertingu. Hann spilaði eins og barn á vellinum, hann naut þess einfaldlega að spila fótbolta,“ segir Hamann.

„En ég hef ekki séð það hjá honum mánuðum saman, og ég veit ekki hvort hann hefur enn þessa trú til að segja: Ég mun snúa þessu við. Því auðvitað verður gagnrýnin meiri með hverjum leik og hverri viku, og trúin eða sú hugsun að hann segi: Nei, ég mun ná mínu fram, gæti dvínað örlítið,“

„Ég veit ekki hvort hann hefur það enn. Mér sýnist það ekki eins og staðan er núna,“ segir Hamann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×