Livaković hetjan þegar Króatía fór áfram eftir sigur í vítaspyrnukeppni Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 5. desember 2022 17:45 Hetja kvöldsins. Adam Davy/Getty Images Mörkvörðurinn Dominik Livaković reyndist hetja Króatíu þegar liðið tryggði sér farseðilinn í 8-liða úrslit heimsmeistaramótsins í fótbolta með sigri á Japan í vítaspyrnukeppni eftir að staðan var 1-1 að loknum venjulegum leiktíma og þegar framlengingunni lauk. Livaković varði þrjár spyrnur Japans og sá til þess að Króatía getur enn orðið heimsmeistari. Silfurliðið frá 2018 á enn möguleika á að bæta árangur sinn frá því í Rússlandi sumarið 2018. Líkt og þá virðist liðið ætla að fara erfiðu leiðina en Króötum leiddist ekki að enda leiki sína á vítaspyrnukeppni það árið. 6 - Each of the last six penalty shootouts at the World Cup have been won by the side shooting second. Pattern. https://t.co/HHRbA8Cx7Z— OptaJoe (@OptaJoe) December 5, 2022 Það sama var upp á teningnum en gamalt lið Króatíu átti í erfiðleikum með spræka Japani framan af leik í kvöld. Daizen Maeda kom Japan yfir undir lok fyrri hálfleiks með marki eftir fast leikatriði og var staðan 1-0 Japan í vil þegar liðin gengu til búningsherbergja. Japanir fagna marki sínu.Clive Brunskill/Getty Images Ivan Perišić jafnaði metin með frábærum skalla þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik en fleiri urðu mörkin ekki og því þurfti að framlengja. Það gerðist fátt markvert í framlengingunni og þurfti því að grípa til vítaspyrnukeppni til að skera úr um hvor þjóðin myndi mæta Suður-Kóreu eða Brasilíu í 8-liða úrslitum. Þar kom reynsla Króata í ljós en þeir voru nær allir pollrólegir á vítapunktinum á meðan tilfinningarnar báru leikmenn Japans ofurliði. Spyrnur þeirra voru lausar og varði Dominik Livaković á endanum þrjár af fjórum spyrnum Japana. Á sama tíma skoruðu Króatar úr þremur af fjórum spyrnum sínum og tryggðu sér þar með sæti í 8-liða úrslitum HM. 3 - Croatia s Dominik Livakovic is the third goalkeeper to make three saves in a single World Cup penalty shootout after Portugal s Ricardo in 2006 versus England and Croatia s Danijel Subasic versus Denmark in 2018. Hero. pic.twitter.com/7BrtzYZbmM— OptaJoe (@OptaJoe) December 5, 2022 HM 2022 í Katar Fótbolti