„Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Valur Páll Eiríksson skrifar 8. október 2026 09:32 Benínar fóru ekkert sérlega glaðir heim, þrátt fyrir allt. Getty Knattspyrnusamband Benín er sagt öskureitt yfir framkomunni sem það mátti þola í kringum kveðjuleik Lionels Messi með landsliðinu í Buenos Aires. Óánægjan kom upp á yfirborðið eftir að fullyrt var að afrísku gestunum hefði verið meinað að skiptast á treyjum, taka ljósmyndir eða fá nokkra fjárhagslega umbun, þrátt fyrir að hafa tekið þátt í þessum umtalaða sýningarleik.
Stjórnarmenn beníska knattspyrnusambandsins eru sagðir hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með framkomuna eftir kveðjuleik Messis í fyrrakvöld. Tilfinningaþrunginn leikurinn í Buenos Aires var stórt svið fyrir heimamenn og kvöldið eflaust minningarstætt leikmönnum ævilangt. En þegar lokaflautið gall var liðinu algjörlega haldið utan við allt og því neitað um nokkurt tækifæri til að blanda geði við fræga mótherja sína. Rannsóknarblaðamaðurinn Romain Molina greindi frá á síðu sinni á X þar sem hann skrifaði: „Virðing argentínska knattspyrnusambandsins (og leikmannanna) gagnvart Benín: Engir bónusar, ekki eitt einasta sent af þeim tekjum sem urðu til, engum treyjum skipt, ekki ein mynd og bannað að fara inn á gang Argentínumanna!“ „Allt snýst um að græða á kostnað þeirra sem komið er fram við eins og hverja aðra leikmuni,“ sagði Molina enn fremur. Höfnunin eftir leik jók aðeins á vaxandi reiði í herbúðum gestanna, en áður höfðu borist kvartanir vegna lélegrar ferða- og hótelaðstöðu í Buenos Aires. Fregnir herma að afríska liðinu hafi einnig verið neitað um nokkra fjárhagslega þóknun af uppseldum sýningarleiknum, sem varð til þess að leikmenn og starfslið eru afar ósátt við allt fyrirkomulagið. Það var því beiskur endir fyrir Benín á sýningaleik sem hafði verið kynntur sem hátíð knattspyrnunnar.
Argentína Benín Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Sjá meira