Innlent

Há­skóli Ís­lands krefst 224 milljóna vegna vatns­lekans

Atli Ísleifsson skrifar
Áætlað er að ríflega tvö þúsund tonn af vatni hafi þá flætt um fimm byggingar skólans.
Áætlað er að ríflega tvö þúsund tonn af vatni hafi þá flætt um fimm byggingar skólans. Vísir/Egill

Háskóli Íslands hefur krafið Veitur, tryggingafélagið VÍS og fleiri aðila um samtals 224 milljónir króna í skaðabætur vegna mikils vatnsleka sem varð á lóð skólans þann 21. janúar 2021.

Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri Orkuveitu Reykjavíkur sem birt var í gær. Orkuveitan stóð fyrir framkvæmdum við Suðurgötu sem fólust meðal annars í endurnýjun á lögnum. Stofnlögn vatns fór í sundur að næturlagi sem varð til þess að vatn flæddi inn í byggingar Háskóla Íslands.

Í fyrri tilkynningu frá Veitum kom fram að mistök hafi verið gerð til framkvæmdir sem fólust í að veggur lokahúss, sem styður við stofnlögnina, hafi verið rofinn of snemma í verkinu. Enn hafi verið þrýstingur á lögninni sem varð til þess að hún hafi farið sundur á samskeytum með þessum afleiðingum. Áætlað er að ríflega tvö þúsund tonn af vatni hafi þá flætt um fimm byggingar skólans.

Í árshlutauppgjöri OR kemur fram að dómskvaddir matsmenn hafi skilað matsskýrslu til Háskóla Íslands í janúar á þessu ári og var kostnaður vegna endurbóta þar metinn á samtals 123,6 milljónir króna. Við annað mat var svo lagt mat á útlagðan kostnað sem háskólinn taldi sig hafa orðið fyrir og var í kjölfarið lögð fram skaðabótakrafa upp á tæplega 224 milljónir króna auk vaxta.

Fram kemur að VÍS og Veitur hafi í sameiginlegu bréfi hafnað kröfunni. Enn sé beðið eftir mati undirmatsmanna og dómskvaddra yfirmatsmanna. Er reiknað með að matsgerðir þeirra verði mögulega tilbúnar fyrir lok þessa árs.

„OR - vatns- og fráveita er með frjálsa ábyrgðatryggingu sem tekur til skaðabótaábyrgðar sem fellur á félagið. Skilmálar þeirrar tryggingar mæla fyrir um 5 milljóna króna sjálfsábyrgð og 50% af fjárhæð tjóns eftir það. Þak tryggingarinnar er 300 milljónir króna,“ segir í uppgjörinu.


Tengdar fréttir

Mistök ástæða vatnstjóns í Háskóla Íslands

Veitur segja að mistök hafi verið gerðar við framkvæmdir á vegum fyrirtækisins við Suðurgötu sem olli því að stofnlögn vatns fór í sundur þannig að vatn flæddi inn í byggingar Háskóla Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum sem viðurkenna mistök og segjast líta atvikið alvarlegum augum.

Skoða hver ábyrgð Veitna sé vegna tjónsins í HÍ

Arn­dís Ósk Ólafs­dótt­ir, for­stöðumaður vatns- og frá­veitu hjá Veit­um, segir að það eigi eftir að koma í ljós hvort fyrirtækið sé skaðabótaskylt vegna vatnstjónsins sem varð í byggingum Háskóla Íslands í nótt eftir að stór kaldavatnslögn við skólann rofnaði með tilheyrandi vatnsleka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×