Innlent

Veggur Al­þingis­garðsins hvergi sjáan­legur á forhönnun borgarinnar

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Hér má sjá hluta af forhönnun borgarinnar á svæðinu. 
Hér má sjá hluta af forhönnun borgarinnar á svæðinu.  Reykjavíkurborg

Myndir af nýrri forhönnun af göngugötuskipulagi við Kirkjustræti og Templarasund í miðbæ Reykjavíkur voru birtar á miðvikudag. Útlit breytinganna er sagt gera tilraun til þess að tengja saman hið gamla og nýja. Athygli vekur að ekki er gert ráð fyrir vegg Alþingisgarðsins á myndunum, það stangast á við orð skrifstofustjóra Alþingis en hún segir til umræðu að friða garðinn. 

Forhönnunin, sem unnin var af Hornsteinum Arkitektum, Hildiberg Hönnunarhúsi og Verkfræðistofu Bjarna Viðarssonar er sögð leggja áherslu á að tengja saman fortíð og framtíð. Endurskipulag þetta sé gert til þess að breyta svæðinu í göngugötu en ekki verði hægt að aka um svæðið nema með leyfi Alþingis. Einnig verði göngugatan hituð til þess að tryggja megi gott aðgengi.

Hér má sjá forhönnun á svæðinu, að kvöldi til. Reykjavíkurborg

Hönnunin á götuflísum göngugötunnar er sögð sækja innblástur til vefnaðar og gamalla handrita. Mynstrið sé einnig einskonar virðingarvottur til kvenna sem og brautryðjenda frá árum áður. Þar að auki verði lýsing á svæðinu uppfærð svo gefa megi kennileitum á svæðinu gaum og til dæmis leggja áherslu á ákveðna hluta Alþingisbyggingarinnar.

Það má því með sanni segja að stefnan sé tekin að því að tengja saman hið gamla og nýja í miðbæ Reykjavíkur. Vegna þessa er athyglisvert að sjá vegg Alþingisgarðsins fjarlægðan á myndum af forhönnun svæðisins.

Hér sést yfirlitsmynd af forhönnuninni og eins og sjá má er enginn veggur við Alþingisgarðinn. Reykjavíkurborg

Fréttastofa leitaði til skrifstofustjóra Alþingis, Rögnu Árnadóttur og athugaði hvort stefna væri tekin á að rífa vegginn enda virtist ekki vera gert ráð fyrir honum.

Í skriflegu svari til fréttastofu segir Ragna ekki standa til að rífa vegginn.

„Myndirnar hljóta að vera ónákvæmar að þessu leyti því það stendur ekki til að breyta veggjum Alþingisgarðsins. Hann á sér merka sögu og mun vera elstur íslenskra garða sem varðveist hefur í upphaflegri mynd,“ skrifar Ragna.

Hún segir það jafnframt vera til umræðu að friðlýsa garðinn en minjastofnun hafi lagt það til og sé það nú á borði forsætisnefndar Alþingis.

Langa umfjöllun um sögu Alþingisgarðsins má sjá á Instagram síðu Alþingis. Fjallað er um tilurð og skipulag garðsins ásamt fleiru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×