Erlent

Rúss­neska leyni­þjónustan hand­tekur átta vegna sprengingarinnar á Kerch brú

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Átta hafa nú verið handtekin af Rússum vegna sprengingarinnar. 
Átta hafa nú verið handtekin af Rússum vegna sprengingarinnar.  AP

Rússneska leyniþjónustan FSB hefur handtekið fimm Rússa og þrjá úkraínska- og/eða armenska ríkisborgara vegna sprengingarinnar á Kerch brúnni á laugardag. Brúin skemmdist allnokkuð í sprenginunni en hluti hennar féll í Kerch sundið.

Fréttastofa Reuters hefur þetta eftir rússnesku fréttastofunni Interfax. Leyniþjónustan sagði í yfirlýsingu í morgun að úkraínska leyniþjónustan og Kyrylo Budanov, stjórnandi hennar, hafi skipulagt sprenginguna. Úkraínsk stjórnvöld hafa ekki lýst yfir ábyrgð á sprengingunni formlega en nokkrir úkrínskir embættismenn hafa fagnað sprengingunni og ýjað að ábyrgð Úkraínu. 

Hluti brúarinnar skemmdist í sprengingunni og stöðvaði umferð tímabundið. Þá urðu skemmdir á lest, sem var á leið yfir brúna í átt að Krímskaga, en eldur kviknaði í nokkrum eldsneytisvögnum í lestinni. 

Brúin hefur verið álitin eins konar táknmynd hernáms Rússa á Krímskaga en hún er eina tenging skagans við meginland Rússlands. Þá hefur hún verið sérstaklega mikilvæg hersveitum Rússlands í Úkraínu en birgðum hefur verið komið til þeirra yfir brúna. Rússar þurfa nú að senda birgðir til hermanna sinna landleiðina. 

Brúin var tekin í notkun árið 2018, fjórum árum eftir að Rússland hernam Krímskaga. Bygging brúarinnar var fyrirskipuð af Vladimír Pútín sjálfum og hann vígði hana til notkunar á sínum tíma. 

Í kjölfar sprengingarinnar á brúnni  sýttu Rússar verulega í hernaðaraðgerðir sínar í Úkraínu og hafa gert fjölda loftárása á úkraínskar borgir. Minnst nítján hafa látist og meira en hundrað særðust. 


Tengdar fréttir

Stríðshaukar í Kreml krefjast skæðari árása í Úkraínu

Embættismenn og stuðningsmenn stríðsreksturs Rússa í Úkraínu hafa fagnað mannskæðum árásum um alla Úkraínu í gær. Rússneski herinn hefur undanfarnar vikur verið harðlega gagnrýndur af hópi manna í Kreml vegna þess hve honum hefur gengið illa á vígvellinum undanfarnar vikur.

Pútín og Selenskí saka hvor annan um hryðjuverk á víxl

Sprengingar skóku Kænugarð og fleiri borgir í Úkraínu í morgun þar sem Rússar svöruðu fyrir árásina á Kerch brúna um helgina. Vólódimír Selenskí og Vladimír Putín saka hvor annan um hryðjuverk á víxl en Evrópusambandið hefur fordæmt árásirnar og leiðtogar G7 ríkjanna funda með Selenskí á morgun.

Senda kafara til að kanna skemmdir á Kerch brúnni

Rússar hyggjast senda kafara til að kanna skemmdir á Kerch brúnni í dag. Brúin varð fyrir kraftmikilli sprengingu í gærmorgun og hluti hennar féll í sundið. Brúin er sögð táknmynd hernáms Rússa á Krímskaga en hún tengir skagann viðmeginland Rússlands og er mikilvæg birgðaflutningaleið fyrir Rússa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×