Skoðun

Réttindi innan stéttar­fé­laga

Anna Sigurlína Tómasdóttir skrifar

Eru félagsmenn jafnir innan stéttafélaga burt séð fra bakgrunn, þjóðerni, starfsvettvangi, stétt, búsetu, kyni , aldri eða þjóðerni?

Þegar kosið er til alþingis hafa allir landsmenn kosningarétt. Á alþingi hefur hver flokkur rödd en misjafnt vægi. Það hafa allir landshlutar talsmann.

Hvað með stéttarfélögin?

Hvert stéttarfélag hefur ákveðið samningssvæði sem félagsmenn tilheyra. Ég er í Eflingu en starfssvið þess og lögsagnarumdæmi er Reykjavík, Kópavogur, Seltjarnarnes, Mosfellsbær og Kjósarsýsla að Botnsá, Grímsnes og Grafningshreppur, Hveragerðisbær og Sveitarfélagið Ölfus.

Þegar stjórn stéttarfélags er kosinn er einn listi sigurvegari

Á Alþingi eru ákveðinn fjöldi sem kemst á þing og hafa rödd. Þó ríkisstjórnin sé mynduð er stjórnarandstaða sem getur komið málum á framfæri.

Mitt félag er stórt með breiðan og ólíkan hóp. Þar er fólk með ólíkan bakgrunn, í ólíkum stéttum, ólíkan uppruna, og á ólíkum aldri.

Tölfræði um Eflingu er eftirfarandi.

  • 53% af erlendum uppruna.
  • 80% almennum vinnumarkaði
  • 8%Reykjavíkurborg
  • 7% samtök fyrirtækja í velferðar þjónustu.
  • 3% ríkissjóður
  • 1% samtök sjálfstæðra skóla.
  • 1% Samband íslenskra sveitafélaga

Þegar kemur að fulltrúum stéttarfélags ákveður stjórn þá. Ég sendi Eflingu póst þegar aðallisti þingfulltrúa á ASÍ þing var birtur.

Þar fór ég yfir þá tölfræði sem nefnd er. Ég skoraði á stjórn að endurskoða lista aðalmanna.

Aðal listi Eflingar er eftirfarandi.

  • 38% einkageirinn
  • 37% Reykjavíkurborg
  • 5% samband íslenskra sveitafélaga
  • 3% samband félaga í velferðar þjónustu
  • 5% samtök Íslenskra sveitafélaga
  • 12% atvinnulausir eða ASÍ
  • 18,6% erlendra félagsmanna.

Á aðal lista þingfulltrúa er enginn af landsbyggðinni!

Ég mótmælti hópuppsögnum sem Efling stóð fyrir. Taldi og tel að stéttarfélag sem bera á hagsmuni félagsfólks í hópuppsögnum gagnvart vinnuveitendum eigi ekki að beita þeim. Nú voru margir félagsmenn Eflingar sem einnig störfuðu fyrir Eflingu stéttarfélag. Hver varði rétt þeirra?

Ég vildi skipta um stéttarfélag. Skoðaði lög og réttindi félagafrelsis. Það frelsi er takmarkað þegar einstaklingur skiptir um stéttarfélag og fer í félag sem ekki sér um kjarasamninga hans. Ef verkfall verður hjá stéttarfélagi sem sér um kjarasamninga fyrir starfsgrein sem hann starfar við má hann ekki vinna. Það er verkfallsbrot. Hann á ekki rétt á greiðslum úr verkfalls sjóði þess félags sem er í verkfalli né þvi sem hann er nú í. Hann er réttindalaus.

Hver er réttur fólks sem vill úrlausnir stéttarfélaga sinna. Ef vinnuveitandi brýtur gegn starfsmanni leitar hann til stéttarfélags síns. Hvert leita félagsmenn vegna síns stéttarfélags? Hver passar rétt félagsmanna sem hafa ekki rödd. Stöndum vörð um réttindi og hagsmuni.

Höfundur er verkakona.




Skoðun

Sjá meira


×