Aukinn hagnaður Sýnar milli ára Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. maí 2022 17:47 Heiðar Guðjónsson er forstjóri Sýnar. Hagnaður Sýnar á fyrsta ársfjórðungi ársins nam 207 milljónum krónum samanborið við 231 milljóna króna tap á sama tímabili í fyrra. Tekjur félagsins á ársfjórðungnum námu 5,7 milljörðum krónum og jukust um tæplega 700 milljónir á milli ára.
Þetta kemur fram í tilkynningu Sýnar til Kauphallar í dag. Árshlutareikningur samstæðu Sýnar fyrir fjórðunginn var samþykktur á stjórnarfundi í dag. Á fjórðungnum var fært tap af sölu færeyska hlutdeildarfélagsins Hey upp á 189 milljónir króna. EBITDA hagnaður nam 1,7 milljarði króna samanborið við tæplega 1,4 milljarða á sama tímabili í fyrra. Handbært fé frá rekstri á fjórðungnum nam 1,1 milljarði samanborið við 542 milljónir á sama tímabili árið áður, sem er hækkun um 104%. Heildarfjárfestingar á fyrstu þremur mánuðum ársins 2022 námu 819 milljónum króna þar af eru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) 285 milljónir króna og fjárfesting í sýningarréttum 531 milljón króna. Fjármögnunarhreyfingar á fyrsta ársfjórðungi voru neikvæðar um 2,4 milljörðum á móti 320 milljónum á sama tímabili árið 2021 sem er tæplega 2,1 milljarðs króna hækkun. Í tilkynningu segir að hækkunin skýrist að mestu af kaupum á eigin bréfum. Eiginfjárhlutfall félagsins var 27,2% í lok fyrsta fjórðungs ársins 2022. Í ársbyrjun 2022 ákvað stjórn að setja í gang endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Endurkaupaáætlunin hófst með öfugu útboði þann 7. janúar sem lauk 9. janúar. Til viðbótar voru sett í gang regluleg endurkaup sem stóðu yfir frá 13. janúar til 3. mars. Félagið keypti í heild 28.064.512 hluti eða 9,47% af útgefnu hlutafé fyrir tæplega 1,9 milljarða króna. Á aðalfundi félagsins þann 18. mars var samþykkt tillaga stjórnar um að lækka hlutafé í samræmi við fjölda eigin hluta. Lækkunin var framkvæmd þann 12. apríl og eru útgefnir hlutir í félaginu 268.376.962 eftir lækkunina. „Það er ánægjulegt að segja frá því að innri tekjuvöxtur er 14% á milli ára. Við höfum haldið aftur af rekstrarkostnaði, sem hækkar minna en verðlag, og því eykst rekstrarhagnaður af reglulegri starfsemi (EBIT) um 359 m.kr. Við skilum ríflega 200 m.kr. hagnaði af reglulegri starfsemi á fyrstu 3 mánuðum ársins,“ segir Heiðar Guðjónsson forstjóri. „Vegna árstíðarsveiflu í rekstri fyrirtækisins eykst afkoman jafnan þegar líða tekur á árið. Ofan á það bætist fyrirsjáanlegur vöxtur í starfseminni vegna bættrar þjónustu, nýs vöruframboðs og uppbyggingar 5G og tengdrar tækni. Við erum því á góðri leið með að ná afkomu af reglulegri starfsemi upp í 100 m.kr. á mánuði að meðaltali yfir árið. Frjálst fjárflæði er einnig mjög sterkt og eykst um 603 m.kr. á tímabilinu. Ýmsir þættir rekstrar sem fóru úr skorðum vegna COVID koma nú jákvæðir inn í rekstur þegar líða tekur á árið. Við sjáum strax aukningu tekna hjá Endor, aukningu í reiki, auk þess sem auglýsingasala er á góðri uppleið. Hvað varðar fjölmiðlarekstur þá eru auglýsingar í fyrsta skipti uppseldar á Vísi á tímabili fyrsta ársfjórðungs. Útvarpsrekstur gengur vel og einnig er vöxtur í kringum sjónvarpsrekstur en erlendis hafa minni samkomutakmarkanir haft neikvæð áhrif á rekstur tengdum sjónvarpi. Við skiluðum um 2 milljörðum til hluthafa á fyrsta fjórðungi ársins í gegnum endurkaup á eigin hlutabréfum og stefnum á að gera meira af því á þessu ári. Eftir breytingar á lögum um upplýsingaskyldu skráðra félaga þá höldum við ekki sérstakan fund í kringum þetta uppgjör. Við verðum með ítarlegar kynningar í kringum hálfsárs- og ársuppgjör. Eins og áður er hægt að senda okkur spurningar eða óska eftir fundi.“ Vísir er í eigu Sýnar.
Kauphöllin Fjarskipti Fjölmiðlar Mest lesið Í samkeppni við Noona með Sinna Neytendur Rauðu flöggin: Þú vilt ekki vinna fyrir svona stjórnanda Atvinnulíf Flýta sér hægt í leit að dagskrárstjóra Viðskipti innlent Kópavogur sýknaður af milljarðakröfum Viðskipti innlent Bein útsending: UTmessan Viðskipti innlent Björgólfur Thor og félagar verða stærstu eigendur Heima Viðskipti innlent Rauð vaxtaviðvörun í á þriðja ár Viðskipti innlent Verð í Bónus hækkað meira en í Krónunni Neytendur Fetar í fótspor Herra hnetusmjörs Viðskipti innlent Úrelt kerfi: „Jafnvel vitað fyrirfram að ráðningin verði kærð“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Flýta sér hægt í leit að dagskrárstjóra Bein útsending: UTmessan Rauð vaxtaviðvörun í á þriðja ár Kópavogur sýknaður af milljarðakröfum Björgólfur Thor og félagar verða stærstu eigendur Heima Fjárfestar tóku vel í uppgjör Festi Fetar í fótspor Herra hnetusmjörs „Held þeir vilji hafa þetta á Samfylkingarpóstinum“ Öllum skerðingum aflétt Arion tilkynnir um lækkun vaxta Mayoral til Íslands Rafn Heiðar ráðinn veitingastjóri Olís Seldu hugvitið og ríkissjóður stórgræðir Íslandsbanki tilkynnir vaxtabreytingu Stór hópur komist nú í gegnum greiðslumat eftir 50 punkta lækkun Tollastríðið gæti haft gríðarleg áhrif á íslenskan efnahag Skagi skráð sem formlegt nafn samstæðunnar Bein útsending: Rökstyðja ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankinn lækkar vextina um 50 punkta Anna nýr sjóðstjóri hjá SIV eignastýringu Tugmilljarða hagsmunir í húfi Eyrir skuldlaus og með 62 milljarða hlut í JBT Marel Kjarninn farinn úr Heimildinni Frá Sjálfstæðisflokknum til Viðskiptaráðs Gísli Rafn til Rauða krossins Eiga von á um 10 þúsund gestum Fara í steininn ef þeir punga ekki út tveimur milljörðum innan mánaðar Jarðefnaeldsneytisbílar um fimmtungur nýskráðra fólksbíla Ráðin til fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka Rafrettukóngur og Drekaeigandi sektaðir um 1,1 milljarð hvor Sjá meira