Skoðun

Viðreisn vill skóla fyrir alla

Karólína Helga Símonardóttir skrifar

Ítrekað hefur verið kallað eftir því, bæði frá foreldrum sem og skólastéttinni, að innan bæjarins sé aukinn metnaður í stefnu bæjarins á einstaklingsmiðuðu námi. Enn og aftur virðist það vefjast fyrir skólayfirvöldum hvernig eigi mögulega að snúa sér í þessari stefnu, með alla þessa flóru barna. Ég furða mig á því, verandi grunnskóla foreldri núna í samanlagt næstum 16 ár að við erum enn þá að reyna finna upp hjólið, meira en það, við erum að slökkva mun stærri elda en voru hérna þegar mitt elsta barn byrjaði sína skólagöngu. En hvað er hægt að gera?

Um daginn spurði mig foreldri: „hvað ætlar pólitíkin að gera? Hvernig ætlið þið að mæta þörfum barnsins míns? Og allra hinna 24 nemendanna í kennslustofnunni?“. Ég skil spurninguna vel. Hér er ekki við kennara og starfsfólk skólanna að saka. Hér hefur vantað, í alltof langan tíma, metnaðarfulla framtíðarsýn í skólamálum. Það er ekki nóg að búa til stefnur og innleiða hugmyndir nema að því fylgi almennilegt fjármagn og stuðningur. Og markvissar aðgerðir.

Við í Viðreisn Hafnarfirði ætlum að taka metnaðarfull skref í átt að því að skólar séu fyrir einstaklinga, að meginmarkmið á öllum skólastigum Hafnarfjarðar sé að efla sjálfsmynd einstaklinganna. Það er mikilvægt að börnunum okkar líði vel á þessum vinnustað sem þau eru föst á marga klukkutíma á dag. Veltu fyrir þér, ef þér hefur liðið illa á vinnustað; hvernig gekk þér í þeirri vinnu? Vellíðan barna er nauðsynleg til þess að þau geti raunverulega lært. Að líða vel og hafa gaman að námi ýtir undir áhuga og bætir árangur. Með þessu viljum við undirbúa forvitna, lífsglaða og sjálfsörugga einstaklinga sem hafa getu til að standa á eigin fótum, rýna sér til gagns og taka virkan þátt í lýðræðissamfélagi.

Við ætlum að auka frelsi grunn- og leikskóla Hafnarfjarðar og draga úr miðstýringu. Við viljum færa valdið aftur inn í skólanna til stjórnenda og kennara. Eflum það frábæra fólk sem starfar innan skólakerfisins, búum til umgjörð þar sem það hefur meira rými til að gera það sem það gerir best; fræða og þroska börnin. Vellíðan þeirra er líka grundvöllur á árangursríkum skólum.

Við viljum efla til muna stoðþjónustu leik- og grunnskóla þar sem höfuðáhersla verður lögð á snemmtæka íhlutun og ekki síður eftirfylgni. Við viljum að lagt sé fjármagn í það að fjölga stöðugildum innan skólanna til að styðja við skólastarfið, horft sé til þess að bæta inn fagmenntuðum iðju- og þroskaþjálfum, talmeinafræðingum sem og sálfræðingum.

Meira frelsi, meiri Viðreisn

Höfundur skipar 2. sæti á lista Viðreisnar í Hafnarfirði.




Skoðun

Sjá meira


×