Innlent

Stærsta á­skorun heil­brigðis­­kerfisins þrátt fyrir færri sjúk­linga

Eiður Þór Árnason skrifar
Alma Möller landlæknir.
Alma Möller landlæknir. Vísir/Vilhelm

Landlæknir segir að heilbrigðiskerfið sé að takast á við sína stærstu áskorun frá því að faraldurinn hófst. Þó færri Covid-sjúklingar séu á sjúkrahúsi nú en þegar mest lét árið 2020 séu aðstæður að mörgu leyti óhliðhollari en áður.

Til að mynda sé erfiðara að eiga við sjúklingafjöldann þegar fleiri starfsmenn eru komnir í einangrun og sóttkví og margir búnir að vera undir langvarandi álagi. 150 starfsmenn Landspítalans eru nú í einangrun og 95 í sóttkví.

„Við búumst við miklum erfiðleikum núna og í fyrstu bylgju þá var samfélagið líka allt í hægagangi, það voru færri slys og minna um veikindi og þess vegna færri innlagnir, til dæmis á gjörgæslu. 

Nú er samfélagið á miklu meiri snúningi og þessar tölur sem við erum að vísa til, eins og fjöldi gjörgæslusjúklinga, kemur ofan á þá sem fyrir eru vegna ýmissa annarra orsaka. Svo það er mjög mikilvægur munur,“ sagði Alma Möller landlæknir á upplýsingafundi vegna Covid-19. Staðan fari líka heldur versnandi á bráðamóttökunni.

45 á spítalanum með Covid-19

Landspítalinn hefur verið á neyðarstigi frá 28. desember sem er hæsta viðbúnaðarstig spítalans. 45 sjúklingar liggja inni á spítalanum með Covid-19. 39 eru með virkt smit og sex glíma við eftirköst. Sjö eru á gjörgæsludeildum og fjórir í öndunarvélum. Hefur fjöldi Covid-sjúklinga á spítalanum nær tvöfaldast síðan á nýársdag þegar þeir voru 23 talsins.

Af þeim 45 sem liggja núna inni á spítalanum eru 29 þar vegna Covid-19, óvissa er um fimm og ellefu liggja inni vegna annarra veikinda. Fjórar innlagnir voru í gær vegna Covid-19.

Til samanburðar voru 75 sjúklingar með Covid-19 á Landspítalanum þann 6. nóvember 2020. Þar af voru fjórir á gjörgæslu.

Fram kom í máli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis á upplýsingafundinum að þegar tekið er tekið er tillit til þess hlutfalls greindra sem lendir á spítala sýni spálíkön að um 70 verði á sjúkrahúsi áður en langt um líður og 20 á gjörgæslu. Um sé að ræða svokallaða meðalspá og fjöldinn geti því reynst verða meiri eða minni.

Um 0,5% þeirra sem greinast með Covid-19 hér á landi leggjast inn á spítala. Hlutfallið er lægra ef bara er miðað við ómíkron eða 0,2 til 0,3%.

Líka mikið álag á öðrum heilbrigðisstofnunum

Alma sagði að álag hafi sömuleiðis aukist á heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni að undanförnu. Staðan á sjúkrahúsinu á Akureyri sé viðráðanleg en þó hafi þurft að fresta skurðaðgerðum sem þola bið. Faraldurinn hafi sömuleiðis haft mikil áhrif á heilsugæsluna en um 10% starfsmanna heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins eru til að mynda í einangrun eða sóttkví.

Einnig eru dæmi um að heimilismenn á hjúkrunarheimilum hafi greinst með Covid-19 þar sem starfsfólk er gjarnan frá vegna sóttkvíar eða einangrunar, að sögn Ölmu. Hvatti hún fólk til að skrá sig á lista bakvarðasveita heilbrigðis- og velferðarþjónustu.


Tengdar fréttir

Barn á fyrsta ári með Covid-19 á Landspítala

Eitt barn á fyrsta ári liggur nú inni á Landspítala með Covid-19 og um 60 eru í eftirliti á Barnaspítala vegna sjúkdómsins. Daglega koma um tvö til fimm börn þangað til skoðunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×