Innlent

Tíu á sjúkrahúsi og tveir á gjörgæslu

Eiður Þór Árnason skrifar
Ákveðið hefur verið að rýma smitsjúkdómadeild Landspítala og breyta henni í Covid-deild, líkt og gert hefur verið áður í faraldrinum.
Ákveðið hefur verið að rýma smitsjúkdómadeild Landspítala og breyta henni í Covid-deild, líkt og gert hefur verið áður í faraldrinum. Vísir/Vilhelm

Tíu sjúklingar liggja nú inni á Landspítala vegna Covid-19, þar af tveir á gjörgæsludeild. Þrír hafa verið lagðir inn frá því snemma í gær og fjölgaði um einn á gjörgæslu. 

Sjúklingarnir á gjörgæsludeild eru ekki fullbólusettir, að sögn Runólfs Pálssonar, yfirmanns Covid-göngudeildar. Annar þeirra er yngri en sextíu ára og hinn yfir sextugt. Báðir eru með undirliggjandi áhættuþætti en hinir átta sem liggja á legudeild eru allir fullbólusettir.

Fram kom í máli Ölmu Möller landlæknis á upplýsingafundi í dag að róðurinn hafi þyngst síðustu daga.

Sextán hafa alls þurft að leggjast inn á sjúkrahús með Covid-19 frá 1. júlí. Alma sagði að þrír þeirra hafi þó ekki verið lagðir inn vegna veikinda heldur af öðrum ástæðum. Samtals hafa 1.024 greinst með veiruna á sama tímabili, þar af 936 innanlands.

Staðan væri mun verri án bólusetninga

Alma ítrekaði að rannsóknir sýni að bólusetning dragi mikið úr veikindum og veiti yfir 90% vörn gegn alvarlegum veikindum.

„Það er því ljóst að staðan væri mun alvarlegri ef ekki væri vegna bólusetninga.“ 

Alma sagði mikið álag á Landspítala og biðlaði til heilbrigðisstarfsmanna að koma til liðs við bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar sem var nýverið endurvakin. 

59 heilbrigðisstarfsmenn hafa nú skráð sig í sveitina en einnig er búið að opna fyrir skráningu þeirra sem eru ekki heilbrigðismenntaðir. Til að mynda vantar fólk til starfa í eldhús og við yfirsetu. Þar að auki leitar Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins nú liðsinnis fólks sem getur aðstoðað við sýnatöku. Þar er ekki gerð krafa um menntun á sviði heilbrigðisvísinda. 

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Óbólu­settur Ís­lendingur á gjör­gæslu­deild

Átta sjúklingar eru nú á Landspítala með Covid-19 og þar af einn á gjörgæsludeild. Sjúklingarnir eru á aldrinum 40 til 70 ára og voru fimm þeirra lagðir inn á spítalann í gær. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×