Í kauphöllinni hér á landi lækkuðu öll fyrirtækin sem skráð eru á aðalmarkað Kauphallarinnar, Arion banki mest eða um 3,59 prósent í viðskiptum upp á 292 milljónir. Hlutabréf í Icelandair lækkuðu um 2,60 prósent en alls lækkaði úrvalsvísitalan um 1,89 prósent í dag. Þetta er þó dropi í hafið miðað við þær hækkanir sem orðið á íslenskum hlutabréfamörkuðum undanfarin misseri.
Sömu sögu er að segja erlendis frá. Í London lækkaði FTSE-100 vísitalan um 2,6 prósent þar sem hlutabréf í sjónvarpsfyrirtækinu ITV og IAG, móðurfélagi British Airways og fleiri flugfélaga.
Vestan hafs hafa vísitölur einnig farið lækkandi, S&P 500 hefur til að mynda lækkað um tvö prósent það sem af er degi.

Í frétt BBC eru lækkanir á mörkuðum helst raktar til þess að fjárfestar hafi áhyggjur af því að nýjar bylgjur kórónuveirufaraldursins séu að fara að stað sökum útbreiðslu delta-afbrigðisins svokallaða. Smituðum fer fjölgandi í Bretlandi þar sem um 50 þúsund greinast daglega, þrátt fyrir að um 70 prósent Breta hafi fengið bóluefni við kórónuveirunni.
Í frétt Bloomberg þar sem vendingar dagsins á markaði eru raktar segir að fjárfestar virðist hafa áhyggjur af því að yfirvöld í ríkjum þar sem smitum fer fjölgandi gætu hert aðgerðir innan landamæra sinna, með tilheyrandi áhrifum á efnahag þeirra.
Þá er einnig talið að aukin spenna í samskiptum Kína og Bandaríkjanna hafi hrætt fjárfesta. Bandaríkin, Bretland og Evrópusambandið sökuðu kínversk yfirvöld í dag um að hafa staðið að baki tölvuárás á bandaríska tæknirisann Microsoft.