1. maí okkar allra María Pétursdóttir skrifar 29. apríl 2021 12:30 Nú styttist í vorboðann góða, baráttudaginn okkar 1. maí. Við munum eflaust ekki geta gengið í hefðbundinni kröfugöngu en við getum hugsað um kjör okkar og breytt viðhorfinu til hagkerfisins. Ég mun halda hann hátíðlegan sem og fyrsta dag jöfnuðar í kærleikshagkerfinu sem Sósíalistaflokkur Íslands boðaði á sumardaginn fyrsta.. Eftir það ættu allir dagar að verða dagar jöfnuðar. Hvar er björgunarhringurinn? Við erum nefnilega kærleiksrík þjóð með stóran faðm á góðum dögum og við rekum samfélagið okkar í nafni velferðar en því miður með pískinn á bakinu og á hörkuna að vopni. Öryrkjar eiga þennan dag jafn mikið og hinar vinnandi stéttir enda eru langflestir öryrkjar með sögu af vinnumarkaðnum og sumir jafnvel búnir að þræla sér út við óeðlilegar aðstæður með þeim afleiðingum að þeir hafa fallið útbyrðis fyrir aldur fram. Ef þú veikist og dettur úr námi eða vinnu ertu oftast í langan tíma að finna björgunarhringinn nema veikindi þín séu þess betur skilgreind og valdi vel sýnilegri fötlun eða sjúkrahúsvist. Þó ekki svo sýnilegri að fólk sjái ekki persónuna á bak við fötlunina sem oft vill verða einnig. Og þú ert kannski á endanum dreginn á þurrt en í millitíðinni hefurðu orðið fyrir svo miklum súrefnisskorti að þú átt í öndunarerfiðleikum þegar kemur að landi. Já það er nefnilega allt of algengt að kerfið grípi ekki þá sem falla milli skers og báru og viðurkenni illa ósýnilega sjúkdóma. Munið þið eftir starfsgetumatinu? Ég held það sé einsdæmi að innleiða starfsgetumat án þess að talað sé um það upphátt eða það kallað sínu rétta nafni. Það er hins vegar það sem hefur gerst á Íslandi. Hér hefur markvisst verið dregið úr örorkumati og óvinnufært fólk fær ítrekaðar synjanir um örorku á þeim forsendum að endurhæfing sé ekki full reynd en það virðist sem fólki standi hún heldur ekki til boða nema að takmörkuðu leyti. Endurhæfingaúrræði VIRK hefur verið þokkalega öflugt við að kippa inn fólki sem verður fyrir veikindum en það passa þó heldur ekki allir inn í kassana sem þeir hafa smíðað þrátt fyrir að þar sé kannski gott starf unnið einnig. Þá er algengt að fólk sem veikist treysti sér ekki endilega strax í endurhæfingu heldur þarf það tíma til að láta sér batna nægilega vel fyrst. Þá er ekki hægt að snúa tila baka eftir synjun frá TR og þar er algjör skortur á úrræðum. Nú þegar hafa lagaheimildir lengt í þeim spotta sem fólk getur verið í endurhæfingu og TR virðist vinna nokkuð stíft eftir þeirri reglu að veita ekki yngra fólki en þrítugu örorkumat. Eins og það er sjálfsagt og kærleiksríkt að reyna að aðstoða fólk við að koma undir sig fótunum á ný í gegnum endurhæfingu þá er það ómanneskjulegt að gera það með því að halda fólki undir eða við fátæktarmörk á meðan á því stendur, hvað þá að synja veiku fólki alfarið um örorkumat ef endurhæfing hefur ekki skilað sér á skikkanlega löngum tíma. Hvar er virðingin við veikt fólk? Hvar er skilningurinn á aðstæðum fólks og raunsætt mat á vinnumarkaðnum. Ha, er öryrkjum að fækka? Þá eru vinnustaðir enn ekki að leggja sig fram um að bjóða öryrkjum hlutastörf þrátt fyrir að fleiri vilji vinna en hafa tækifæri til þess. Hvergi hefur þessi stefnubreyting verið rædd opinberlega og enn tala sjálfskipaðir spekingar, stjórnmálamenn og jafnvel fólk sem sjálft glímir við fötluna eða veikindi, og hefur étið það upp eftir hægrimönnum að hér sé að eiga sér stað gríðarleg fjölgun öryrkja. Það er beinlínis ósatt og afar ómanneskjulegur málflutningur. Ef við skoðum tölurnar á mælaborði TR síðust árin eða áratuginn sjáum við að það er engin aukning að eiga sér stað heldur áframhaldandi fækkun ef miðað er við fólksfjölda og kynslóðafjölgun. Æ fleiri þurfa því að leita til sinna sveitarfélaga eftir smánarlega lélegri mánaðarframfærslu til að eiga í sig og á. Þetta er gert á sama tíma og atvinnuleysi eykst vegna heimsfaraldurs. Í dag er þó skárra að vera á atvinnuleysisbótum en örorku eða endurhæfingastyrk hvað þá styrk frá sveitarfélaginu. En atvinnuleysisbætur eru þó ekki greiddar til langs tíma heldur atvinnulausir allt of oft einnig að enda á framfæri sveitarfélaganna. Þannig ríkir hér þegjandi samkomulag valdhafa um að reyna að svelta fólk til vinnu þrátt fyrir að vera óvinnuvært eða fá hreinlega enga atvinnu. Þá er öryrkjum enn haldið í örbyrð og er þeim gert að éta upp eigur sínar ef einhverjar eru. Viðbrunninn hafragrautur Fjármálaráðherra talar um hversu örlát þessi ríkisstjórn hafi verið við öryrkja og talar í hafragrautum niður til öryrkja við hvert tækifæri. Hann minnist ekkert á að hér hafi öryrkjar ekki þurft að greiða skatt fremur en þeir lægst launuðu árið 1997 en frá Davíðstíma og allt frá 1990 hefur skattbyrði lífeyrisþega og þeirra lægst launuðu aukist gríðarlega. Hvar er kærleikurinn í því og hvar þykist fólk sjá einhverjar brauðmylsnu bæta hag fólks. Kannski í röðinni hjá hjálparsamttökum sem hafa aldrei verið lengri en þetta árið? Nei, ef vel er að gáð er engin mylsna þar og þá hefur allt vatnið gufað upp af þessum blessaða hafragraut í kaupmáttarskerðingum eða hann brunnið við og er ekki upp í nös á ketti. Kærleikurinn borgar sig Það að reka samfélagið í sífelldum skorti og vansæld þar sem veikt og fatlað fólk hefur enga leið til að bæta hag sinn, hvorki líkamlega heilsu, veraldlegt umhverfi sitt eða sjálfstætt líf er dýr samfélag. Það er líka dýrt að sinna öldruðum illa og seint en það kostar tapaðar vinnustundir og heilsu hjá aðstandendum. Norrænar rannsóknir sýna það svart á hvítu að ef fjárfest er í kærleiksríku samfélagi skilar það sér í krónum og aurum. Þetta vita sósíalistar og boða því umsnúning á kerfunum okkur á þá leið að byggja undir fólk og aðstoða það við sjálfshjálp fremur en að kippa undan því fótunum með niðurskurði og skerðingum og láta það éta upp eignir sínar og tapa heilsu í harkinu. Sósíalismi er kærleiksrík stefna Það hefur ekki ein einasta þjóð í heimi fallið á hliðina við það að gera of vel við íbúa sína en margar þjóðir hafa fallið við hið gagnstæða eða að moka undir þá vel settu í formi skattalækkana og ívilnana ofan frá, eins og hér hefur verið gert. Við í sósíalistaflokknum viljum fjárfesta í heilsu, fjárfesta í snemmtækum inngripum og fjárfesta í kærleiksríku kerfi. Kerfi sem hefur innbyggða manngæsku og virðingu við fólk. Sumir vilja jafnvel kerfið burtu á þeim forsendum að það sé eitthvert bákn. Það þykir okkur sósíalistum af og frá. Það má hafa kerfi þokkalega einföld og ef þau virka fyrir fólkið eins og þau eiga að virka og eru hjálpleg en ekki niðurrífandi þá eru þau góð. Kerfið er heldur ekki eitthvað skrímsli sem kemur okkur ekki við þó búið sé að skrapa utan af því núna og jafnvel gera það óskiljanlegt í gegnum frjálshyggjutíma síðustu ára. Nei, kerfið er ekkert annað en samtakamáttur og samkomulag okkar almennings um að reka hér sameiginlegt samfélag. Reka hér mennta- og heilbrigðiskerfi, samgöngu- og nýsköpunarkerfi, dóms- og fjármálakerfi Já og síðast en ekki síst velferðar- og húsnæðiskerfi því það er eins og stjórnvöld vilji að við gleymum því að húsnæði sé mannréttindi. Við viljum kerfi sem miðast við velferð og jöfnuð en eykur ekki á sundrung og stéttaskiptingu og telur fólki trú um að það þurfi að skara fram úr eða þjást til að geta átt í sig og á. Þá viljum við auðlindir í eigu fólksins en ekki í vasa auðmanna auk þess sem almenningur þarf að taka völdin af auðmönnum svo hér sé hægt að halda hátíðlegan dag jöfnuðar og kærleika á hverjum degi. Við getum hæglega rekið hér gott, kærleiksríkt og styðjandi kerfi sem við verðum stolt af. Kjósum kærleika og jöfnuð manna á milli og kjósum því X-J í vor. Hægt er að lesa nánar um Kærleikshagkerfið hér. Og stefnur flokksins. Höfundur er er félagi í Sósíalistaflokks Íslands og formaður Málefnastjórnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Kosningar 2021 Sósíalistaflokkurinn Alþingiskosningar 2021 Mest lesið Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Skoðun Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar Skoðun Þegar innviðaskuldin gjaldfellir samfélagssáttmálann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Í kjörklefanum erum við ein Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Sævar Helgi horfir heima Atli Viðar Thorstensen skrifar Skoðun Skiptir stærðin máli? Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Samvinna auðlindagreina styrkir allra hag Þorsteinn Másson skrifar Skoðun Ekki ert þú nú mikill maður Kristján Loftsson Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar
Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar