Innlent

Dómur yfir Gunnari Jóhanni mildaður úr þrettán árum í fimm

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Gunnar Jóhann Gunnarsson (neðri mynd til hægri) banaði Gísla Þór Þórarinssyni, hálfbróður sínum, í norska bænum Mehamn í apríl 2019. Gunnar Jóhann hlaut þrettán ára fangelsisdóm í október síðastliðinn. Hann hefur nú verið mildaður verulega.
Gunnar Jóhann Gunnarsson (neðri mynd til hægri) banaði Gísla Þór Þórarinssyni, hálfbróður sínum, í norska bænum Mehamn í apríl 2019. Gunnar Jóhann hlaut þrettán ára fangelsisdóm í október síðastliðinn. Hann hefur nú verið mildaður verulega. Getty

Dómurinn yfir Gunnari Jóhanni Gunnarssyni, sem skaut hálfbróður sinn til bana í bænum Mehamn í Noregi, var í gær mildaður verulega.

Norska ríkisútvarpið, NRK, greindi frá dómnum í gærkvöldi. Áfrýjunardómstóll kvað upp úr í gær um að þrettán ára fangelsisdómur sem Gunnar hlaut í héraði skyldi mildaður í fimm ára fangelsisdóm.

Gunnar getur sótt um reynslulausn þegar hann hefur setið af sér tvo þriðju dómsins en hann er þegar búinn að afplána tæp tvö ár í gæsluvarðhaldi sem dregst þá frá refsingunni.

Ákæruvaldið íhugar nú hvort það muni áfrýja niðurstöðunni til hæstaréttar.

Gísla Þór Þórarinssyni blæddi út eftir að Gunnar Jóhann skaut hann í lærið. Gísli var á lífi þegar lögreglan kom á vettvang en tókst ekki að bjarga lífi hans.

Málflutningur hófst í lögmannsrétti Hálogalands í Tromsø 22. febrúar síðastliðinn. Dómur Héraðsdóms Austur-Finnmerkur var í samræmi við kröfur saksóknara um að Gunnar Jóhann hefði banað hálfbróður sínum að yfirlögðu ráði.

Naumur meirihluti dómara í áfrýjunarmálinu var hins vegar á öndverðum meiði og fannst ekki hafið yfir vafa að það hafi verið ásetningur Gunnars Jóhanns að skjóta Gísla Þór til bana. Fjórir dómarar voru sammála en þrír vildu staðfesta dóminn af lægra dómstigi.

Greint var frá því í desember að verjendur Gunnars Jóhanns hafi fengið til liðs við sig lögmanninn Brynjar Meling sem er vel þekktur í Noregi, en fyrst og fremst fyrir að hafa verið lögmaður Mulla Krekar, dæmds hryðjuverkamanns.


Tengdar fréttir

„Ég varð að halda and­liti barnanna vegna“

„Tíminn vinnur almennt með okkur, en þetta var svakalega erfitt sérstaklega fyrsta árið eftir að þetta gerðist. Ég varð að halda andliti barnanna vegna. Þau hafa misst tvær mikilvægar manneskjur úr lífi sínu, og ég stóð eftir ein.“

Á­frýjunar­með­ferð í máli Gunnars Jóhanns hófst í morgun

Málflutningur í máli Gunnars Jóhanns Gunnarssonar, sem dæmdur var í þrettán ára fangelsi fyrir að hafa banað bróður sínum í bænum Mehamn í Norður-Noregi í apríl 2019, hófst í lögmannsrétti Hálogalands í Tromsø í morgun. Verjendur Gunnars Jóhanns áfrýjuðu dómnum yfir skjólstæðingi sínum sem féll í október síðastliðnum.

Frægur lög­fræðingur til liðs við lög­manna­t­eymi Gunnars Jóhanns

Lögmenn Gunnars Jóhanns Gunnarssonar, sem hlaut í október síðastliðinn þrettán ára fangelsisdóm fyrir að hafa banað bróður sínum í norska bænum Mehamn í apríl 2019, hafa fengið lögmanninn Brynjar Meling til liðs við sig. Meling er vel þekktur í Noregi, fyrst og fremst fyrir að vera lögmaður Mulla Krekar, dæmds hryðjuverkamanns.

Útilokar ekki slysaskot en athæfi Gunnars talið úrslitaatriði

Dómarinn í máli Gunnars Jóhanns Gunnarsson, sem dæmdur var í 13 ára fangelsi í dag fyrir að skjóta hálfbróður sinn, Gísla Þór Þórarinsson, til bana í Mehamn í apríl í fyrra, segist ekki geta útilokað að skot úr haglabyssunni sem Gunnar notaði hafi hlaupið úr byssunni án þess að þrýst hafi verið á gikkinn. Hegðun og athæfi Gunnars umrætt kvöld hafi hins vegar orsakað andlát Gísla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×