Ragnheiður Elín ráðin framkvæmdastjóri Alor Atli Ísleifsson skrifar 12. janúar 2021 08:01 Ragnheiður Elín Árnadóttir. Alor Ragnheiður Elín Árnadóttir, ferrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Alor ehf.
Í tilkynningu kemur fram að fyrirtækið hafi verið stofnað á síðasta ári og vinni að því að þróa og framleiða umhverfisvænar raforkugeymslur úr áli sem verði nýttar til þess að safna og geyma umfram framleidda raforku og stuðla að betri nýtingu. Segir að hagnýtingarmöguleikar raforkugeymslna úr áli séu fjölmargir og megi þar nefna að stuðla að samdrætti losunar koltvísýrings í sjávarútvegi, landbúnaði og iðnaði auk þess að tryggja raforku á afskekktum svæðum og á hamfarasvæðum. „Fyrirtækið er nú þegar í samstarfi við Háskóla Íslands og Albufera Energy Storage á Spáni sem er leiðandi í þróun á álrafhlöðum í Evrópu. Þessu til viðbótar er unnið að samstarfssamningum við fleiri aðila bæði hér á landi og erlendis,“ segir í tilkynningunni. Haft er eftir Ragnheiði Elínu að hún telji framtíðarmöguleikana mikla og hlakki til að takast á við þau verkefni sem bíði „Það er brýnna en nokkru sinni fyrr að finna lausnir til þess að draga megi úr losun gróðurhúsalofttegunda og þannig stuðla að því að markmið Parísarsamkomulagsins náist, sem og Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Ísland hefur tækifæri til þess að verða leiðandi í baráttunni við loftslagsvandann og skapa sér enn frekari sérstöðu á þessu sviði. Með nýjum lausnum má m.a. hraða brýnum orkuskiptum skipaflotans og rafvæðingu hafna. Alor ehf. gegnir þarna lykilhlutverki og er ég full eftirvæntingar að leiða félagið.“
Nýsköpun Vistaskipti Orkumál Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira