Vísar því alfarið á bug að ÍSÍ hafi sigað lögreglunni á Viggó Jakob Bjarnar skrifar 22. desember 2020 14:21 Viggó heldur því staðfastlega fram að ÍSÍ hafi sigað lögreglu á sig en Líney Rut vísar því alfarið á bug. vísir/vilhelm/lögreglan Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ vísar því á bug að hafa klagað Viggó Harald Viggósson til lögreglu. „
Það er bara ekki rétt,“ segir Líney Rut í samtali við Vísi. Eins og fram hefur komið er eigandi Golfklúbbsins, Viggó Haraldur Viggósson, svekktur og reiður vegna þess að lögreglan kom og lokaði stað hans með látum. Þá á þeim forsendum að þar sé hætta á kórónaveirusmiti. Viggó rekur stað þar sem hægt er að kaupa veitingar og fara í golfhermi. Viggó, sem heldur því fram að allra sóttvarna sé gætt, bendir á að ýmis sambærileg starfsemi sé opin. Á meðan sé verið að hafa lífsviðurværið af sér. Viggó heldur því staðfastlega fram að lokun staðarins megi rekja til þess að ÍSÍ, og reyndar GSÍ og GKG, hafi kært hann. Þetta segir Líney Rut ekki rétt. Hún segist hafa haft samband við Viggó og komið því á framfæri við hann. Sagt honum skýrt að lokunina megi ekki rekja til ábendinga frá ÍSÍ. En allt kemur fyrir ekki. „Hvorki ég né ÍSÍ hef sigað lögreglu á hann.“ Spurð hvernig það megi vera að ÍSÍ sé nefnt í dagbók lögreglu hvað aðgerðir lögreglunnar varðar segir Líney Rut að því verði lögregla að svara. „Það verða aðrir að leiðrétta. Ég vísa því alfarið á bug að ÍSÍ hafi nokkuð með þetta að gera.“
Golf Samkomubann á Íslandi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Lögreglumál Veitingastaðir Tengdar fréttir Lögreglan lokar Golfklúbbnum með látum Eigandi Golfklúbbsins er afar ósáttur með aðgerðir lögreglunnar og er kominn með lögfræðing sinn í málið. 18. desember 2020 11:11 Mest lesið Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Innlent Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu Erlent Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Lygileg atburðarás í Landsbankanum Innlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Innlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Innlent Fleiri fréttir Tveggja stafa frost í kortunum og sundlaugar gætu þurft að loka Jólagjafirnar í ár hittu beint í mark Framkvæmdastjóri Hagkaups furðar sig á heimsókn lögreglu Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Verið að athuga frekari þvingunaraðgerðir Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Lygileg atburðarás í Landsbankanum Rann á snjóruðningstæki og bíllinn óökuhæfur Öryggisógn í Eystrasaltinu og óskiljanlegur „gjörningur“ lögreglu Tveir bílar rákust saman á brúnni við Fossála Veit vel að önnur kjör en laun þurfi að ræða Hætta leitinni í Meradölum Innan marka að kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Súðavíkurhlíð opin á ný Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Búið að opna Holtavörðuheiði á ný Þungar vikur framundan Skilaréttur neytenda ríkari ef varan er keypt á netinu Lögregla hafi hálfpartinn „hrökklast frá“ Hæstiréttur fer beint í búvörulagamálið Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Grímuskylda og ósáttir vínsalar Holtavörðuheiði enn lokuð Reyndu að ræna hraðbanka Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sjá meira
Lögreglan lokar Golfklúbbnum með látum Eigandi Golfklúbbsins er afar ósáttur með aðgerðir lögreglunnar og er kominn með lögfræðing sinn í málið. 18. desember 2020 11:11