Wolves heldur í vonina um Meistaradeildarsæti | Aston Villa náði í mikilvægt stig Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 24. júní 2020 19:15 Jimenez elskar að skora mörk. Hann tryggði Wolves sigur í kvöld. Marc Atkins/Getty Images
Manchester United vann öruggan 3-0 sigur á Sheffield United á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni nú rétt í þessu. Þá vann Everton 1-0 sigur á botniliði Norwich City á útivelli. Tveir aðrir leikri voru á dagskrá en Aston Villa nældi í mikilvægt stig í botnbaráttunni og Wolves unnu Bournemouth á heimavelli. Á St. James´ Park voru Aston Villa í heimsókn en Villa-menn eru í bullandi fallbaráttu á meðan Newcastle, sem vann Sheffield 3-0 á dögunum, sigla lygnan sjó. Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Dwight Gayle heimamönnum yfir eftir sendingu Andy Carroll á 68. mínútu leiksins. Gestirnir dóu ekki ráðalausir og þegar sjö mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma jafnaði Egyptinn Ahmed El Mohamady metin fyrir Aston Villa og þar við sat. Lokatölur 1-1. Newcastle eru í 13. sæti deildarinnar með 39 stig á meðan Aston Villa er sem stendur í 19. sæti með 27 stig þegar sjö umferðir eru eftir. Þá vann Wolverhampton Wanderers 1-0 heimasigur á Bournemouth þökk sé marki markamaskínunnar Raul Jiminez á 60. mínútu leiksins. Wolves eru í 6. sæti, aðeins tveimur stigum á eftir Manchester United sem er í 4. sætinu og fjórum stigum á eftir Chelsea sem situr þar fyrir ofan. Chelsea á þó leik til góða. Bournemouth er með 27 stig, líkt og West Ham United og Aston Villa. West Ham er þó með bestu markatöluna af þeim þremur og því ekki í fallsæti.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Segir rugl að ætla að ræða United Enski boltinn Ótrúleg endurkoma Stólanna í Kósóvó Körfubolti Enn í útlegð en hvert getur hann farið? Enski boltinn Solskjær í viðræður við United Enski boltinn Nýliðarnir fá bandarískan markvörð Íslenski boltinn Uppgjörið:Njarðvík - KR 106-75| Miklir yfirburðir í toppslagnum Körfubolti „Við tókum ekki mikið frí“ Sport Elvar eitraður í endurkomu Körfubolti Kjartan byrjaði í tapi fyrir Rangers Fótbolti Fyrrum hlaupstjarna ákærð fyrir morð Sport Fleiri fréttir Segir rugl að ætla að ræða United Enn í útlegð en hvert getur hann farið? Síðasti naglinn í kistu Nuno? Solskjær í viðræður við United Áfall fyrir City: Dias frá í allt að sex vikur Úrvalslið Alberts sneri baki í hann Áttunda félagið í B-deildinni sem skiptir um stjóra í vetur Gvardiol þarf að fara í aðgerð og City horfir til Guéhi Greindi sjálfur frá því að hann tæki við Chelsea Neville segir United að hætta tilraunamennskunni Solskjær hefur lýst yfir áhuga á að snúa aftur til Manchester United Draumaráðning Hjörvars sem brosir breitt eftir tíðindi dagsins Telur að Arteta myndi íhuga að taka við Manchester United Annar framherji til West Ham Logi Bergmann náði í 77 stig þrátt fyrir líklegt Fantasy-slys Segir að leikmenn eins og Rice séu þeir verðmætustu í boltanum Fjórðungur félaganna í ensku úrvalsdeildinni skipt um stjóra „Finnst Kerkez eiginlega bara of heimskur til að vera Liverpool-leikmaður“ Fá arftaka til bráðabirgða og bíða til sumars Líklegastir til að taka við United Sendi United Amorim sneið að skilnaði? Amorim rekinn „Hef á tilfinningunni að hann hafi talað af sér þarna“ Öll mörkin úr enska: Jafnaði gegn Liverpool með sturluðu skoti „Enn og aftur getum við engum nema sjálfum okkur um kennt“ Rosenior er mættur til London „Við vitum ekkert um nýjan knattspyrnustjóra“ Stjóralaust Chelsea-lið jafnaði metin í uppbótartíma „Ætti kannski að vera nóg að skora tvö mörk til að vinna leikinn“ „Ég er viss um að sigrarnir koma aftur“ Sjá meira