Innlent

Svona verður fram­kvæmdin vegna komu ferða­manna

Sylvía Hall skrifar
Í fyrstu verður hægt að sinna 200 farþegum á klukkustund og áætlað er að unnt sé að greina að hámarki 2 þúsund sýni á sólarhring.
Í fyrstu verður hægt að sinna 200 farþegum á klukkustund og áætlað er að unnt sé að greina að hámarki 2 þúsund sýni á sólarhring. Vísir/Vilhelm

Breytingar verða á reglum um komu ferðamanna til landsins þann 15. júní næstkomandi. Framkvæmdin verður í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis og er meginbreytingin sú að farþegar munu þurfa að fara í sýnatöku við komuna til landsins eða fara í tveggja vikna sóttkví.

Fyrstu tvær vikurnar verður sýnatakan gjaldfrjáls en í framhaldinu mun hún kosta 15 þúsund krónur. Þá munu börn fædd 2005 eða seinna ekki þurfa að fara í sýnatöku.

Á vef Stjórnarráðsins segir að farið sé af stað með ítrustu aðgát til að stofna ekki þeim árangri sem náðst hefur í hættu.

Þeir ferðamenn sem koma hingað til lands verða að fylla út forskráningarform með helstu upplýsingum. Á Keflavíkurflugvelli og annars staðar þar sem farþegar koma til landsins mun heilsugæslan sjá um sýnatökur en þær verða framkvæmdar í samstarfi við Íslenska erfðagreiningu.

Geta greint tvö þúsund sýni á sólarhring

Á upplýsingafundi í dag sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir að farþegar þyrftu að fara varlega þar til niðurstaða liggur fyrir. Eftirlit verður haft með þeim sem kjósa að fara í sóttkví að sögn Víðis Reynisson yfirlögregluþjóns.

Tíu básar verða settir upp í fyrstu á Keflavíkurflugvelli sem munu geta sinnt 200 farþegum á klukkustund. Komi í ljós smit hjá komufarþega fer af stað hefðbundið ferli þar sem viðkomandi er látinn vita, hann boðaður í blóðprufu til að ganga úr skugga um hvort hann sé smitandi og ákveðið hvort grípa þurfi til ráðstafana varðandi smitrakningu og fjarheilbrigðisþjónustu.

Áætlað er að unnt sé að greina að hámarki tvö þúsund sýni á sólarhring og sagði Páll Þórhallsson skrifstofustjóri forsætisráðuneytisins það gefa góða vísbendingu um hversu mörgum farþegum væri hægt að taka á móti. Það takmarki þann fjölda sem hægt sé að taka á móti og þeir sem flytja farþega hingað til lands munu þurfa að laga sig að því.

Sóttvarnalæknir hefur birt leiðbeiningar til ferðamanna sem eru aðgengilegar á vef landlæknis. Þá eru í undirbúningi leiðbeiningar til Íslendinga sem koma til landsins.

Klippa: Blaðamannafundur forsætisráðherra og þríeykisins

Tengdar fréttir

Greina ekki sýni á nóttunni

Ekki verður hægt að greina sýni úr farþegum sem koma með flugi til landsins seint á kvöldin eða á nóttunni fyrr en daginn eftir að sögn sóttvarnalæknis. Hann segir undirbúningi fyrir skimun á landamærum miða vel áfram.

Segir gjaldið fyrir Covid-19 sýnatöku allt of hátt

Framkvæmdastjóri Úrval-Útsýnar segir að stjórnvöld hljóti að endurskoða ákvörðun sína um að láta alla borga 15.000 krónur fyrir covid19 sýnatöku frá og með næstu mánaðamótum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×