Innlent

Líkur á eldingum og blíðviðrið kveður í bili

Sylvía Hall skrifar
Mjög óstöðugt loft er yfir landinu og því líkur á eldingum vestantil.
Mjög óstöðugt loft er yfir landinu og því líkur á eldingum vestantil. Vísir/Getty

Óstöðugt loft er yfir landinu á morgun og má því búast við myndarlegum skúraklökkum síðdegis og auknum líkum á eldingum að því er fram kemur í athugasemd veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Einkum eru líkur á eldingum yfir vestanverðu landinu.

Blíðviðri síðustu daga virðist vera að kveðja höfuðborgarsvæðið í bili. Það er spáð úrkomu næstu daga, á morgun þrír til átta metrar á höfuðborgarsvæðinu og skúrir. Þá bætir í úrkomu annað kvöld.

Ekkert lát virðist vera á skúrum á suðvesturhorninu fyrr en um helgina. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu mega því búa sig undir vætusama viku en útlit er fyrir að það rofi aðeins til næstu helgi og verði að minnsta kosti minni úrkoma.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: 

Vestan og suðvestan 8-13 og skúrir, en 15-20 m/s með suðurströndinni framan af degi. Hiti 5 til 13 stig, mildast suðaustantil.

Á miðvikudag:

Suðvestan 10-15 og rigning, en þurrt að kalla um landið austanvert. Hiti 6 til 12 stig.

Á fimmtudag:

Sunnan 5-13 og dálítil rigning eða súld, en bjart með köflum norðan- og austanlands. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast norðaustantil.

Á föstudag:

Fremur hæg suðlæg átt og skúrir, en hvessir síðdegis með rigningu í flestum landshlutum. Hiti breytist lítið.

Á laugardag:

Suðvestanátt og rigning eða skúrir, en léttskýjað austanlands. Hiti 4 til 12 stig.

Á sunnudag (hvítasunnudagur):

Útlit fyrir að það gangi í ákveðna suðaustanátt með rigningu um landið sunnan- og vestanvert.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×