Samningi Gunnars Ólafssonar við spænska B-deildarliðið Oviedo hefur verið rift. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Gunnar lék átta leiki með Oviedo á tímabilinu. Í þeim var hann með 3,0 stig, 0,5 fráköst og 0,5 stoðsendingar að meðaltali.
Oviedo lét einnig Bandaríkjamanninn Tre Coggins fara. Liðið er í 16. sæti af 18 liðum í spænsku B-deildinni.
Á síðasta tímabili lék Gunnar með Keflavík en hann er uppalinn hjá Fjölni. Hann lék með St. Francis háskólanum í Bandaríkjunum á árunum 2014-18.
Fresturinn til að ganga frá félagaskiptum hér á landi rann út fyrr í þessum mánuði. Gunnar gæti því ekki byrjað að spila með íslensku liði fyrr en á næsta ári.
Gunnar farinn frá Oviedo
Ingvi Þór Sæmundsson skrifar

Mest lesið





„Að lokum var það betra liðið sem vann“
Körfubolti


Tatum með slitna hásin
Körfubolti

Einn besti leikmaður KR frá næsta mánuðinn hið minnsta
Íslenski boltinn

Man City sagt hafa lagt fram „mega“ tilboð í Wirtz
Enski boltinn
