„Sáttur að geta farið heim, borðað vel og fengið mér nokkra kalda“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 18. desember 2025 21:32 Kristófer Acox skoraði tuttugu stig í kvöld. Vísir/Vilhelm Kristófer Acox, leikmaður Vals í Bónus-deild karla í körfubolta, gat andað léttar eftir nauman þriggja stiga sigur liðsins gegn ÍR í kvöld, 82-85. „
Við þurftum að hafa fyrir þessu allar 40 fjörutíu mínúturnar,“ sagði Kristófer í viðtali við Vísi í leikslok. „Við vissum að þetta yrði erfitt verkefni. Við erum náttúrulega nýbúnir að spila við þá í bikarnum og það var líka hörkuleikur í allavega þrjá leikhluta. Það getur alltaf verið erfitt að koma og spila svona við sama liðið tvo leiki í röð, en ég er bara gríðarlega sáttur með sigurinn.“ Leikplan ÍR-inga virtist að miklu leyti snúast um það að spila fast og gera Valsmönnum erfitt fyrir. Það gekk vel hjá heimamönnum framan af leik, en Valsmenn náðu þó að taka vel til í hausnum á sér í hálfleik. „ÍR-ingarnir reyna yfirleitt að vera frekar 'physical' og þeir gera vel í því. Við vitum að það er erfitt að spila í Breiðholtinu þar sem þeir eru með áhorfendur með sér. Þeir eru kannski ekki með bestu leikmennina eða besta liðið, en þeir gera mjög vel með það sem þeir eru með í höndunum. Sérstaklega að búa til þessa orku hérna, hálfgerða úrslitakeppnisorku.“ „Við vorum líka bara frekar flatir í fyrri hálfleik og leyfðum þeim að komast aðeins í hausinn á okkur. Við vorum að láta litlu hlutina fara í taugarnar á okkur. Dómarana og kannski áhorfendur. En við gerðum vel í seinni hálflei, sérstaklega í þriðja leikhluta eftir að við lendum tíu undir.“ Hann segir þó að mögulega hafi það verið gott að lenda tíu stigum undir snemma í þriðja leikhluta. „Það er kannski þægilegt að lenda tíu stigum undir snemma í seinni hálfleik þegar það er heill hálfleikur eftir. Við erum frekar sjóaðir og reynslumiklir þegar kemur að þessu. Við vissum að við myndum bara bæta aðeins í vörnina því við vorum að fá alveg galopin skot.“ „Ég veit samt ekki hvað við klikkum á mörgum opnum skotum og ég klikkaði á helliing af galopnum skotum. Þetta snérist bara um að binda saman vörnina og fá nokkur stopp og þá vissum við að þetta myndi koma á endanum. Þeir gera samt vel í að helda sér inni í leiknum. Bara vel gert hjá þeim að setja niður stór skot og berjast fyrir öllum fráköstum til að búa til alvöru leik.“ Að lokum segir Kristófer að framundan sé kærkomið frí og hefur litlar áhyggjur af því að það setji góðan takt Valsliðsins úr skorðum. „Ég held ekki. Við erum búnir að ná að snúa þessu við eftir kannski aðeins erfiða byrjun á tímabilinu. Þetta eru nokkrir leikir í röð og við erum sáttir við það hvar við erum núna. En við vitum líka að það er mjög langt í land.“ „Það eru mörg mjög góð lið í deildinni og við vitum að við þurfum að nýta fríið vel, en það verður kærkomið að fá aðeins að slappa af. Þetta er búin að vera mikil keyrsla núna þar sem við erum búnir að spila þrjá leiki á sjö dögum. Ég finn það sjálfur að aldurinn er aðeins farinn að segja til sín. Þannig ég er mjög sáttur með að geta farið heim núna og hvílt mig yfir hátíðirnar, borðað vel og fengið mér nokkra kalda og notið þess. En við viljum að sjálfsögðu nýta fríið vel. Það eru svo bara stórir leikir beint eftir áramót,“ sagði Kristófer að lokum.
Bónus-deild karla Valur ÍR Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Elísa vann aftur á Ítalíu Sport 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti Haraldur Franklín nálgast Opna breska Golf Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira