Arnar Már Magnússon, forstjóri flugfélagsins, greindi frá leiknum á blaðamannafundi félagsins á þriðjudag, um leið og hann kynnti vefsíðu Play til leiks.
„Við ætlum til að byrja með að gefa þúsund flugmiða, hvorki meira né minna, til allra áfangastaða sem við erum að bjóða upp á. Við hvetjum alla til að fara inn á Flyplay.com, skrá sig og þá verðið þið fyrst í röðinni til þess að vita af því hvenær salan hefst og fyrst í röðinni til þess að komast inn og leita að frímiðunum til þeirra borga sem þið viljið fara til.“
Vonir standa til að sala flugmiða og um leið leitin að frímiðunum hefjist núna í nóvember.
Þegar Vísir spurði Maríu Margréti hvenær til stæði að draga út sigurvegara í frímiðaleiknum var hún fljót að leiðrétta blaðamann. „Það verður sem sagt ekki dregið. Fólk fer inn á bókunarsíðuna þegar hún opnar og leitar að fargjaldinu, sem verður núll krónur.“
Þannig að þetta er í raun einhvers konar páskaeggjaleit?
„Já, í rauninni. Þannig að þetta [núll krónu fargjaldið] liggur bara þarna á lausu þar sem fólk getur fundið það.“
Draumasýnin tilbúin
María Margrét sagði við Fréttablaðið að ástæðan fyrir því að gefa miðana þúsund væri því í raun tvíþætt. Leikurinn gæfi fólki færi á að „prófa vöruna okkar,“ auk þess sem hávetur væri alla jafna ekki háannatími hjá flugfélögum. Það gæfi Play færi á að „gera eitthvað skemmtilegt“ með viðskiptavinum sínum.Forstjórinn Arnar Már sagði í samtali við Reykjavík síðdegis í gær að bókunarkerfið væri tilbúið. Það hafi verið unnið algjörlega frá grunni og byggi því ekki á bókunarkerfi hins fallna WOW air. „Í rauninni var búin til vara sem var okkar draumasýn á bókunarferli og það hefur heppnast ótrúlega vel,“ sagði Arnar og bætti við að Flyliðar hlakki til „leyfa viðskiptavinum að líta inn í þá heima.“