Ferðalangar fylgist með veðurspám Stefán Ó. Jónsson skrifar 12. ágúst 2019 10:13 Ætla má að gular viðvaranir verði viðvarandi fram á kvöld.
Víða eru enn gular veðurviðvaranir í gildi, allt frá Vesturlandi að Norðurlandi eystra. Varað er við hvassviðri og rigningu, auskriðum og grjóthruni, og því ættu vegfarendur að fara með aðgát. Þannig segir veðurfræðingur að búast megi við svalri norðanátt og rigningu á norðanverðu landinu í dag. Sums staðar geti jafnvel verið talsverð eða mikil úrkoma og slydda eða snjókoma til fjalla. Gera má ráð fyrir snjóþekju á fáeinum heiðarvegum á Norðausturlandi. Úrhelli hefur gert nyrst á Tröllaskaga og er uppsöfnuð úrkoma á Siglufirði síðstu sex klukkustundinar tæpir 50 mm. Það dregur úr úrkomu norðaustan- og austanlands seinnipartinn, en bætir heldur í hana á Vestfjörðum og Ströndum. „Þeir sem hyggja á ferðalög á norðanverðu hálendinu og á fjöllum nyrðra ættu því að fylgjast vel með veðurspám og búa sig eftir aðstæðum,“ segir veðurfræðingur. Hitinn verður á bilinu 3-8 stig á Norður- og Austurlandi en skýjað og þurrt syðra og hiti 9 til 14 stig.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ þriðjudag:Norðaustan 8-15 m/s, hvassast á Vestfjörðum, en hægari vindur norðaustantil. Rigning með köflum, en þurrt og bjart sunnan- og vestanlands. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast á Suðurlandi.Á miðvikudag:Norðan og norðaustan 5-13 m/s. Skýjað á norðanverðu landinu og ringing með köflum norðaustantil, en bjart veður annarsstaðar. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast á Suðurlandi.Á fimmtudag:Suðaustan 5-10 en hægari austanlands. Skýjað með köflum og úrkomulítið. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast á Vesturlandi.Á föstudag:Austan 3-8 og skýjað með köflum, en austan 8-13 syðst á landinu og lítilsháttar væta. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast vestanlands.Á laugardag:Austlæg átt og skýjað um austanvert landið en bjart veður vestantil. Hlýnar heldur í veðri.Á sunnudag:Útlit fyrir fremur hægar norðaustanátt og þurru veðri. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast vestantil.
Veður Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Fleiri fréttir Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Bjarni fundaði með Guterres Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Kom vini sínum til bjargar á fótboltaæfingu og 34. klukkustund Bakgarðshlaups Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Verður Þórsmörk þjóðgarður? Vill burt með rándýr, úrelt og óþarfa stimpilgjöld Vonar að sveitarfélögin leysi úr NPA-vandanum Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Fjármögnun NPA-samninga og Bakgarðshlaupið í beinni Samgöngusáttmálinn, Yazan og loftlagsmál á Sprengisandi Slegist með vopnum við skemmtistað Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Lögreglumenn í veikindaleyfi vegna þungra mála Með banvænan sjúkdóm í stöðugri baráttu við Kópavogsbæ Mikill reykur eftir að gleymdist að slökkva á kerti Bið eftir NPA-þjónustu og eftirspurn eftir sæðisgjöfum Arnar Þór á leið í nýjan flokk Anton Sveinn McKee til liðs við Miðflokkinn „Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt“ Ekkert sem bendir til þess að sakborningum fjölgi Lífræni dagurinn er í dag Bein útsending: Heilabilun rædd á Alzheimerdegi Ekkert bendi til að sakborningum muni fjölga Telur fleiri falla á nýju bílprófi Maður margra storma íhugar stöðu sína Byssan reyndist leikfang Sjá meira