Stefnir í 18 stiga frost Stefán Ó. Jónsson skrifar 3. desember 2018 07:10 Brr! Vísir/vilhelm
Norðanáttin er loksins að gefa eftir og élin sem hafa dunið á norðanverðu landinu fara minnkandi í dag. Þá herðir frost en ætla má að það geti farið í um 18 stig á norðaustanverðu landinu á morgun. Samkvæmt Veðurstofunni verður áfram nokkuð bjart sunnantil en að það muni þykkna upp um landið vestanvert. Ætla má að það muni snjóa þar í nótt, þar á meðal á höfuðborgarsvæðinu. Gert er ráð fyrir því að frostið verði á bilinu 2 til 8 stig í dag. „Þrátt fyrir að norðanáttin sé að gefa eftir staldrar nístingskalt loft úr norðri við hjá okkur og má búast við hörkufrosti í dag og á morgun,“ segir á vef Veðurstofunnar og er þar vísað sérstaklega til Norður- og Norðausturlands. Þá er útlit fyrir snjókomu með köflun á morgun eða él nokkuð víða en þegar líður á deginn styttir að mestu upp. Um miðja viku mun svo lægð nálgast úr suðvestri með hlýnandi veðri og bætir í vind með suðurströndinni, jafnvel austanhvassviðri eða stormur um tíma á fimmtudag með rigningu sunnan- og austanlands.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ þriðjudag:Vestlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s og snjókoma eða él, síst N-lands. Frost 2 til 18 stig, kaldast NA-til, en mildast við SV- og S-ströndina.Á miðvikudag:Vaxandi suðaustanátt með snjókomu S- og SV-til, en síðan slyddu eða rigningu, annars þurrt. Hiti 0 til 5 stig með S- og SV-ströndinni, en frost 0 til 12 stig annars staðar.Á fimmtudag:Allhvöss eða hvöss austlæg átt með rigningu, en úrkomulítið fyrir norðan. Hlýnar í veðri.Á föstudag og laugardag:Austlæg átt með dálítilli rigningu eða snjókomu á víð og dreif, einkum A-til. Frost um mest allt land, en upp í 5 stiga hita með S-ströndinni.Á sunnudag:Útlit fyrir vaxandi suðaustlæga átt og lítilsháttar vætu S-lands.
Veður Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Erlent Jafnaðarmenn báru nauman sigur úr býtum Erlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Innlent Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Innlent Bjarni fundaði með Guterres Innlent Kom vini sínum til bjargar á fótboltaæfingu og 34. klukkustund Bakgarðshlaups Innlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Fleiri fréttir Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Bjarni fundaði með Guterres Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Kom vini sínum til bjargar á fótboltaæfingu og 34. klukkustund Bakgarðshlaups Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Verður Þórsmörk þjóðgarður? Vill burt með rándýr, úrelt og óþarfa stimpilgjöld Vonar að sveitarfélögin leysi úr NPA-vandanum Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Fjármögnun NPA-samninga og Bakgarðshlaupið í beinni Samgöngusáttmálinn, Yazan og loftlagsmál á Sprengisandi Slegist með vopnum við skemmtistað Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Lögreglumenn í veikindaleyfi vegna þungra mála Með banvænan sjúkdóm í stöðugri baráttu við Kópavogsbæ Mikill reykur eftir að gleymdist að slökkva á kerti Bið eftir NPA-þjónustu og eftirspurn eftir sæðisgjöfum Arnar Þór á leið í nýjan flokk Anton Sveinn McKee til liðs við Miðflokkinn „Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt“ Ekkert sem bendir til þess að sakborningum fjölgi Lífræni dagurinn er í dag Bein útsending: Heilabilun rædd á Alzheimerdegi Ekkert bendi til að sakborningum muni fjölga Telur fleiri falla á nýju bílprófi Maður margra storma íhugar stöðu sína Byssan reyndist leikfang Sjá meira