Gul viðvörun í gildi víðast hvar Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 21. október 2018 07:23 Ísland í dag. Mynd/Vedurstofan
Gul viðvörun er í gildi víðast hvar á landinu fram á kvöld en höfuðborgarsvæðið, Faxaflói og Suðurland eru einu svæðin þar sem slík viðvörun er ekki í gildi. Veðrið skánar eftir því sem líður á daginn.Viðvörunin er í gildi til klukkan 18 í kvöld en nú 980 mb lægð stödd úti fyrir Húnaflóa og í nótt var suðvestan hvassviðri eða stormur á landinu. Von er á rigningu og skúrum í dag auk þess sem búas má við því að það snjói á fjallvegum norðvestan- og austan til. Veður skánar smám saman í dag þegar lægðin grynnist og fjarlægist landið. Undir kvöld verður vindur orðinn skaplegur víðast hvar, en enn má búast við skúrum eða slydduéljum vestan- og norðanlands. Næstu nótt er von á að næsta úrkomusvæði færist yfir landið og verður það viðloðandi á morgun, en vindur nær sér þó ekki á strik.Veðurhorfur á landinu Suðvestan 15-25 m/s, hvassast á Norðurlandi og hviður við fjöll þar geta orðið meira en 30 m/s. Þurrt austanlands, annars víða skúrir, en él til fjalla norðvestan- og norðantil á landinu. Dregur úr vindi í dag, fyrst um landið vestanvert. Suðvestan 8-13 í kvöld og skúrir eða slydduél á vesturhelmingi landsins. Hiti yfirleitt á bilinu 1 til 6 stig. Vestan 5-10 m/s á morgun og rigning eða slydda með köflum í flestum landshlutum. Hiti 1 til 8 stig, hlýjast syðst.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ mánudag: Vestan 5-10 m/s og dálítil væta, en þurrt að kalla norðanlands. Hiti 1 til 8 stig, hlýjast syðst.Á þriðjudag:Fremur hæg breytileg átt, þurrt á landinu og hiti 0 til 5 stig. Gengur í suðaustan 8-13 með rigningu á Suður- og Vesturlandi seinnipartinn og hlýnar heldur.Á miðvikudag:Stíf suðvestanátt með skúrum, en bjart um landið austanvert. Hiti 3 til 8 stig.Á fimmtudag:Gengur í ákveðna norðanátt með snjókomu eða slyddu norðantil á landinu, en þurrt sunnanalnds. Hiti nálægt frostmarki.Á föstudag og laugardag:Norðlæg átt og él, einkum um landið norðanvert. Kalt í veðri.
Veður Mest lesið Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Erlent Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Jafnaðarmenn báru nauman sigur úr býtum Erlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Innlent Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Innlent Bjarni fundaði með Guterres Innlent Kom vini sínum til bjargar á fótboltaæfingu og 34. klukkustund Bakgarðshlaups Innlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Fleiri fréttir Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Bjarni fundaði með Guterres Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Kom vini sínum til bjargar á fótboltaæfingu og 34. klukkustund Bakgarðshlaups Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Verður Þórsmörk þjóðgarður? Vill burt með rándýr, úrelt og óþarfa stimpilgjöld Vonar að sveitarfélögin leysi úr NPA-vandanum Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Fjármögnun NPA-samninga og Bakgarðshlaupið í beinni Samgöngusáttmálinn, Yazan og loftlagsmál á Sprengisandi Slegist með vopnum við skemmtistað Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Lögreglumenn í veikindaleyfi vegna þungra mála Með banvænan sjúkdóm í stöðugri baráttu við Kópavogsbæ Mikill reykur eftir að gleymdist að slökkva á kerti Bið eftir NPA-þjónustu og eftirspurn eftir sæðisgjöfum Arnar Þór á leið í nýjan flokk Anton Sveinn McKee til liðs við Miðflokkinn „Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt“ Ekkert sem bendir til þess að sakborningum fjölgi Lífræni dagurinn er í dag Bein útsending: Heilabilun rædd á Alzheimerdegi Ekkert bendi til að sakborningum muni fjölga Telur fleiri falla á nýju bílprófi Maður margra storma íhugar stöðu sína Byssan reyndist leikfang Sjá meira