Gætu fengið um 400 milljóna króna hlut Hörður Ægisson skrifar 25. apríl 2018 08:00 Gert er ráð fyrir að bréf með leigufélagið verði tekin til viðskipta í Kauphöllinni í lok maí.
Hluthafar eignarhaldsfélagsins Heimavalla GP, sem sá um umsýslu eigna fyrir leigufélagið 2015 til 2017, gætu fengið afhentan endurgjaldslaust hlut í Heimavöllum hf. fyrir að jafnvirði um 400 milljónir króna við skráningu félagsins á hlutabréfamarkað, samkvæmt heimildum Markaðarins. Eignarhlutnum væri ætlað að mæta uppgjöri á árangurstengdri greiðslu sem eigendur félagsins eiga rétt á en endanleg fjárhæð hennar mun ráðast af því gengi sem mun fást við útboð á nýjum hlutum í Heimavöllum í byrjun næsta mánaðar. Ef útboðsgengið verður í lægri endanum miðað við tilboðsbók B, þar sem verðbilið er 1,38 til 1,71 króna á hlut, þá mun hlutur Heimavalla GP verða umtalsvert minni en sem nemur um 400 milljónum króna. Slíkur eignarhlutur myndi jafngilda um tveimur prósentum alls hlutafjár í Heimavöllum við skráningu ef útboðsgengið verður 1,71. Stærstu hluthafar Heimavalla GP, með samanlagt um 95 prósenta hlut, eru félög í eigu Magnúsar Pálma Örnólfssonar, fjárfestis og fyrrverandi starfsmanns Glitnis, Magnúsar Magnússonar, fjárfestis og stjórnarformanns Heimavalla, Halldórs Kristjánssonar, stjórnarmanns í Borgun og Heimavöllum, og Sturlu Sighvatssonar, athafnamanns og fyrrverandi framkvæmdastjóra Heimavalla. Þá eiga Ari Edwald, forstjóri Mjólkursamsölunnar, og Arnar Gauti Reynisson, fjármálastjóri Heimavalla, báðir 2,5 prósenta hlut í félaginu. Áður hafa hluthafar Heimavalla GP fengið í sinn hlut, á grundvelli umsýslusamnings við Heimavelli slhf., fyrrverandi móðurfélag Heimavalla hf., þóknanagreiðslur upp á samtals um 480 milljónir vegna ráðgjafarstarfa sinna fyrir leigufélagið frá því í ársbyrjun 2015 til október 2017. Í fyrra námu greiðslurnar til Heimavalla GP um 270 milljónum, eins og greint var frá í Markaðnum í lok síðasta mánaðar.Sjá einnig: Fengu hálfan milljarð í þóknun frá Heimavöllum Samkvæmt samningum við Heimavelli GP, sem fólst í ábyrgð á greiningu og framkvæmd fjárfestinga, þá fékk félagið hlutfallslega þóknun sem nam einu prósenti af fasteignamati fjárfestingareigna í rekstri Heimavalla leigufélags á ári. Var þóknunin innheimt mánaðarlega. Þóknanagreiðslur til Heimavalla GP jukust um meira en 70 prósent á síðasta ári samhliða örum vexti leigufélagsins. Fasteignamat fjárfestingareigna Heimavalla, stærsta leigufélags landsins, var 33,4 milljarðar í árslok 2016 en ári síðar var sú fjárhæð komin upp í 48,6 milljarða. Leigufélagið var þá með tæplega 2.000 íbúðir í rekstri. Samkvæmt skráningarlýsingu Heimavalla, sem var gerð opinber síðastliðinn mánudag, kemur fram að Heimavellir leigufélag slhf. eigi núna um 9,8 prósenta hlut í Heimavöllum. Eini hluthafi þess sé Heimavellir GP en eignarhlutnum er, sem fyrr segir, ætlað að mæta uppgjöri árangurstengingar sem félagið á rétt á „úr hendi hluthafa samlagshlutafélagsins og gerð verður upp með hlutum í útgefenda. Fjöldi hluta sem Heimavellir GP hf. eiga tilkall til frá hluthöfum samlagshlutafélagsins vegna uppgjörsins ræðst af endanlegu útboðsgengi almenns útboðs á hlutum í Heimavöllum. […] Að uppgjöri loknu verður eftirstandandi fjöldi hluta afhentur þeim hluthöfum Heimavalla hf. sem hlut áttu í samlagshlutafélaginu þann 22. mars 2018. Af þessu leiðir að endanlegur eignarhlutur núverandi hluthafa í útgefanda verður ekki ljós fyrr en að afloknu framangreindu almennu útboði,“ segir í lýsingunni. Gert er ráð fyrir að bréf með leigufélagið verði tekin til viðskipta í Kauphöllinni í lok maí. Í útboðinu bjóða Heimavellir til sölu 750 milljónir nýrra hluta í félaginu, en fjölga má seldum hlutum í allt að 900 milljónir sé eftirspurn fyrir hendi. Andvirðið er 1.025 milljónir á genginu 1,38 en 1.270 milljónir ef gengið verður 1,71. Ekkert hámarksgengi er hins vegar í tilboðsbók C og því getur meðalgengi útboðsins orðið hærra en 1,71 króna á hlut. Stærstu hluthafar Heimavalla eru í dag meðal annars hjónin Finnur Reyr Stefánsson og Steinunn Jónsdóttir, Tómas Kristjánsson, hjónin Guðrún Lárusdóttir og Ágúst Sigurðsson, sem áttu útgerðarfyrirtækið Stálskip, tryggingafélögin Sjóvá og VÍS, Magnús Pálmi Örnólfsson og eignarhaldsfélagið Brimgarðar.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Bandarískur sjóður fjárfestir í Heimavöllum Leigufélagið Heimavellir er að ganga frá um þriggja milljarða króna lánasamningi við sjóð í stýringu bandaríska sjóðastýringarfyrirtækisins Eaton Vance Management. 26. mars 2018 06:00 Tæplega þriggja milljarða hagnaður af rekstri Heimavalla Ætla að skrá félagið í Kauphöll Íslands um mánaðamót mars og apríl. 12. febrúar 2018 23:11 Fengu hálfan milljarð í þóknun frá Heimavöllum Heimavellir GP fékk samtals greitt um 480 milljónir á árunum 2015 til 2017 vegna umsýslu eigna fyrir Heimavelli leigufélag. Samningnum var slitið í október. Þóknanagreiðslurnar jukust um meira en 70 prósent í fyrra og voru um 270 milljónir. 28. mars 2018 06:00 Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Sjá meira
Bandarískur sjóður fjárfestir í Heimavöllum Leigufélagið Heimavellir er að ganga frá um þriggja milljarða króna lánasamningi við sjóð í stýringu bandaríska sjóðastýringarfyrirtækisins Eaton Vance Management. 26. mars 2018 06:00
Tæplega þriggja milljarða hagnaður af rekstri Heimavalla Ætla að skrá félagið í Kauphöll Íslands um mánaðamót mars og apríl. 12. febrúar 2018 23:11
Fengu hálfan milljarð í þóknun frá Heimavöllum Heimavellir GP fékk samtals greitt um 480 milljónir á árunum 2015 til 2017 vegna umsýslu eigna fyrir Heimavelli leigufélag. Samningnum var slitið í október. Þóknanagreiðslurnar jukust um meira en 70 prósent í fyrra og voru um 270 milljónir. 28. mars 2018 06:00