Fjölmargir þingmenn stjórnarandstöðunnar tóku undir með Sigurði Inga og gagnrýndu störf heilbrigðisráðherra og þá sérstaklega málefni Klíníkurinnar í Ármúla.
„Ég vil taka undir þau orð sem hér hafa komið fram og jafnframt minna á að hæstvirtur ráðherra var nú í dauðarokksveit þannig að tónelskan vakti oft kátínu, undran og óhug. En aftur á móti hefur það verið einkennandi fyrir þau orð sem komið hafa frá hæstvirtum heilbrigðisráðherra er að þau eru alltaf loðin, alltaf þannig að hæstvirtur ráðherra virðist ekki geta komið með afgerandi svör um mjög brýn mál,“ sagði Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata.
Öll spjót að Óttari
Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, tók í sama streng.„Nú standa öll spjót á rokkbóndanum Óttari Proppé heilbrigðisráðherra. Hann verður að koma hingað suður, ég hlustaði á hann á Aldrei fór ég suður og hann var ágætur þar, en hæstvirtur ráðherra ætti að sjá sóma sinn gagnvart Alþingi og vera hér og svara fyrir það af hverju málin eru þannig komin að hann er búinn að neita því að hann veiti leyfi fyrir einkareknu sjúkrahúsi í Ármúlanum þar sem er fimm daga innlögn og hefðbundin sjúkrahúsþjónusta. Svo kemur á daginn að landlæknir óskar eftir því að það sé skýrt hvar leyfisveitingin liggur fyrir starfsleyfi. Hvar er sú leyfisveiting?“ sagði Lilja.
Svandís Svavarsdóttir, flokkssystir Lilju Rafneyjar tók í sama streng og sagði að ráðherrann væri á harðahlaupum undan fjölmiðlum.
„Mér finnst háalvarlegt, virðulegur forseti, að hæstvirtur heilbrigðisráðherra Óttarr Proppé hafi hreinlega lagt sig fram um að afvegaleiða þessa umræðu, bæði innan þings og utan. Ég sé ekki betur en að ástandið sé þannig núna að hann sé á harðahlaupum undan fjölmiðlum.“
Umræða um fjarveru ráðherra sérstök
Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að Óttarr væri einfaldlega að fara eftir lögum.Ég er ekki kominn hingað upp til að verja heilbrigðisráðherra og skort hans á svörum. Ég get bara svarað fyrir hann: Það gilda bara ákveðin lög í þessu landi. Þetta er ekki spurning um skoðun eða stefnu heilbrigðisráðherra. Það getur hver sem er opnað klíník, sérfræðiþjónustu, sem uppfyllir skilyrði laganna,“ sagði Brynjar og var þá kallað frami í sal hvort Brynjar væri ósammála landlækni.
„Ég er bara að segja að lögin tala sínu máli. Auðvitað getur verið spurning hvort þetta sé sjúkrahús. Það getur verið lögfræðilegur ágreiningur um hvort þetta er sjúkrahússþjónusta eða sérfræðilæknisþjónusta. Ef þeir uppfylla skilyrði um að reka sjúkrahússþjónustu ber ráðherra að gefa leyfi til þess,“ svaraði Brynjar.
Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tók einnig til máls og sagði umræðuna um fjarveru Óttars sérstaka.*
„Nú vill svo til að heilbrigðisráðherra er með mál á dagskrá á morgun og verður hér til svara á miðvikudaginn. Þess vegna hefði kannski nægt að einn eða tveir þingmenn kæmu og gerðu athugasemdir við að hann væri ekki hér í dag, en kannski óþarfi að þeir séu tíu,“ sagði Birgir.