Ein af stóru skiptunum í NBA-deildinni var þegar NY Knicks fékk Derrick Rose frá Chicago Bulls. Viku síðar var hann ákærður fyrir nauðgun.
Lögfræðingur konunnar sem kærði Rose grunar að Bulls hafi losað við leikmanninn út af væntanlegri kæru.
Hann er líka á því að Knicks hafi vitað af því að til stæði að kæra Rose. Hann segir að Knicks hafi aldrei leitað sér upplýsinga um hlið konunnar sem kærir áður en félagið ákvað að semja við Rose. Það finnst honum afar sérstakt.
Málið er mikið á milli tannanna vestra enda ein af stóru stjörnum NBA-deildarinnar sem þarna er verið að kæra.
Málið verður tekið fyrir hjá dómstólum þann 4. október.
Vissi Knicks af nauðgunarkæru Rose?
Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Mest lesið





Benedikt hættur með Tindastól
Körfubolti

Walker í vandræðum og verður ekki áfram hjá City
Enski boltinn

Þór dregur liðið úr keppni í efstu deild
Körfubolti


Leiknir lætur þjálfarann fara
Fótbolti
