
Gjald fyrir auðlindir
Meginstoðir auðlindageirans hérlendis eru orka, ferðaþjónusta og sjávarútvegur.
Hingað til hefur aðeins sjávarútvegurinn haft bolmagn til að greiða sérstaklega fyrir afnot af auðlindinni. Þetta gerir atvinnugreinin í gegnum svokölluð veiðigjöld, vitanlega er tekist á um hve há þau eiga að vera hverju sinni, hvernig þau dreifast, hvaða afleiðingar þau hafa og hvernig þau eru innheimt.
Niðurstaðan í íslenska fiskiveiðistjórnunarkerfinu er sú að nýtingin er talin skynsamleg og í takt við umhverfissjónarmið. Rekstrarhvatar eru skýrir og hafa orðið til þess að hér á landi er mikil arðsemi í sjávarútvegi, ólíkt því sem þekkist víðast hvar annars staðar enda er talið að ef horft sé til framlags greinarinnar í heild þá hafi sjávarútvegurinn borgað í bein opinber gjöld á 5 ára tímabili 100 milljarða króna. Mikill fjöldi verðmætra afleiddra starfa hefur auk þess orðið til á Íslandi í tengslum við íslenskan sjávarútveg svo sem í tækni og iðnaði.
Nú er til umræðu um að nota uppboðsleið til að innheimta gjald fyrir afnot af auðlindinni fremur en veiðigjald. Þegar kemur að jafn mikilvægri atvinnugrein eins og sjávarútvegi er mikilvægt að fram fari ítarleg greining. Umræða í Færeyjum þar sem heimildir eru boðnar upp til eins árs í senn vekja spurningar sem mikilvægt er að skoða þegar rætt er um að fara svipaða leið. Í Færeyjum er gagnrýnt að þótt hátt verð hafi fengist fyrir heimildirnar í þetta sinn sé um jaðarverð að ræða en ekki markaðsverð þar sem aðeins lítill hluti var boðinn upp.
Nýliðun hafi verið engin, mjög fáir fengið heimildir og um 70 prósent þeirra verið félög í erlendu eignarhaldi. Og eins og gerist þegar fækkar í hópi þeirra sem geta tekið þátt í uppboði dregur úr samkeppni og því spáð að verð lækki í næsta skipti sem boðið er upp.
Ekkert kerfi er gallalaust eða fullkomið, endurskoðun er mikilvæg en ekki má missa sjónar á langtímahagsmunum fyrir stundargróða þegar kemur að nýtingu auðlinda og innheimtu gjalds fyrir afnot af þeim.
Skoðun

Þegar við ætluðum að hitta Farage - Á Ísland að ganga í ESB?
Sveinn Ólafsson skrifar

Sama steypan
Ingólfur Sverrisson skrifar

Ofbeldi gagnvart eldra fólki
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Að taka ekki mark á sjálfum sér
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Betri borg
Alexandra Briem skrifar

Að eiga sæti við borðið
Grímur Grímsson skrifar

Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði
Karl Héðinn Kristjánsson skrifar

Íþróttir eru lykilinn
Willum Þór Þórsson skrifar

Framtíð safna í ferðaþjónustu
Guðrún D. Whitehead skrifar

Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp?
Einar Baldvin Árnason skrifar

Að skapa framtíð úr fortíð
Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar

Tími til umbóta í byggingareftirliti
Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar

Stærð er ekki mæld í sentimetrum
Sigmar Guðmundsson skrifar

Áður en íslenskan leysist upp
Gamithra Marga skrifar

Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna
Samúel Torfi Pétursson skrifar

Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra?
Tómas Ellert Tómasson skrifar

Hverjum þjónar nýsköpunin?
Halldóra Mogensen skrifar

Heilbrigðisráðherra og stjórn VIRK hafa brugðist okkur
Eden Frost Kjartansbur skrifar

Þegar ríkið fer á sjóinn
Svanur Guðmundsson skrifar

Íbúðarhúsnæði sem heimili fólks
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Íslenskumælandi hjúkrunarfræðingar
Guðbjörg Pálsdóttir skrifar

Heilbrigðisstarfsfólk eru ekki skotmörk
Elísabet Herdísar Brynjarsdóttir,Hildur Harðardóttir,Tryggvi Egilsson,Sunna Snædal,Yousef Tamimi,Örvar Gunnarsson skrifar

Leiðrétting veiðigjalda og varðstaðan um sérhagsmuni
Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar

Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga
Snædís Sunna Thorlacius,Ingibjörg Áskelsdóttir skrifar

Opið bréf til stjórnmálafólks um málefni Palestínu og Ísraels
Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Í lífshættu eftir ofbeldi
Jokka G Birnudóttir skrifar

Verið er að umbreyta borginni en hvað viljum við?
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Hvers vegna skiptir máli hvernig talað er um velferð dýra?
Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar

Gróður, einmanaleiki og samfélagsleg samheldni
Auður Kjartansdóttir skrifar