Skoraði þrjú stig í leik fyrir tveimur árum en fær nú 9,2 milljarða samning Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júlí 2016 12:45 Allen Crabbe. Vísir/Getty
Allen Crabbe er nýjasti NBA-körfuboltamaðurinn sem getur farið brosandi í bankann en þeir eru margir sem hafa fengið risasamninga á síðustu dögum. Það er löngu liðin sú tíð að allra bestu leikmenn NBA-deildarinnar fái myndarlega samninga því núna eru ótrúlegustu menn búnir að tryggja sér milljarðasamning. Einn af þeim er Allen Crabbe sem lék í vetur með Portland Trail Blazers. Hann komst reyndar ekki í byrjunarliðið og skoraði „bara" 10,3 stig í leik. Menn þurfa því að fylgjast vel með NBA-deildinni til þess að vita hver Allen Crabbe er. Það breytir ekki því að Brooklyn Nets er tilbúið að bjóða honum 75 milljónir dollara fyrir fjögurra ára samning eða 9,2 milljarða íslenskra króna. ESPN og fleiri bandarískir fjölmiðlar greina frá þessu. Þessi upphæð gæti síðan hækkað upp í 83 milljónir með bónusum en þá væri kappinn kominn yfir tíu milljarðanna. Portland Trail Blazers getur haldið Allen Crabbe en aðeins með því að bjóða honum jafngóðan samning. Allen Crabbe er vissulega ungur leikmaður sem á framtíðina fyrir sér og hann hækkaði meðalskor sitt um 7 stig í leik. Hann var með 10,3 stig, 2,7 fráköst og 1,2 stoðsendingar að meðali á 26,0 mínútum og hitti úr 45,9 prósent skota sinna. Það breytir því ekki að hann skoraði bara 3,3 stig í leik tímabilið 2014-15 þar sem hann fékk aðeins að spreyta sig í 13,4 mínútur að meðaltali. Það er magnað að leikmaður sem hefur ekki gert meira í NBA-deildinni sé nú kominn með 9,2 milljarða samning í hendurnar.
NBA Mest lesið Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira