Cleveland enn ósigrað | Oklahoma jafnaði metin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. maí 2016 07:17 James var einni stoðsendingu frá því að ná þrennu. vísir/getty
Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Cleveland Cavaliers er komið í úrslit Austurdeildarinnar eftir eins stigs sigur, 99-100, á Atlanta Hawks á útivelli. LeBron James og félagar unnu einvígið 4-0 og mæta annað hvort Toronto Raptors eða Miami Heat í úrslitum Austurdeildarinnar. Cleveland sópaði einnig Detroit Pistons í fyrstu umferðinni og hefur því unnið alla átta leiki sína í úrslitakeppninni. Kevin Love var atkvæðamestur í liði Cleveland með 27 stig og 13 fráköst. Kyrie Irving og James skoruðu 21 stig hvor en sá síðarnefndi tók einnig 10 fráköst og gaf níu stoðsendingar. Dennis Schroder var stigahæstur í liði Atlanta með 21 stig, tveimur stigum meira en Paul Millsap. Í Vesturdeildinni jafnaði Oklahoma City Thunder metin í rimmunni gegn San Antonio Spurs með 111-97 sigri í fjórða leik liðanna. Kevin Durant jafnaði sitt persónulega met í úrslitakeppninni með 41 stigi en 29 þeirra komu í seinni hálfleik. Dion Waiters skilaði 17 stigum af bekknum og Russell Westbrook skoraði 14 stig og gaf 15 stoðsendingar. Tony Parker skoraði 22 stig fyrir San Antonio og Kawhi Leonard 21 stig.Úrslitin í nótt: Atlanta 99-100 Cleveland Oklahoma 111-97 San Antonio
NBA Mest lesið Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Fótbolti Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Allt í bál og brand í Formúlu 1 Formúla 1 Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Golf Portúgal - Austur-Kongó | Ronaldo byrjar og slær met Fótbolti Kristófer og Guðrún eignuðust son Körfubolti Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Körfubolti Fleiri fréttir Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Sjá meira