Síðasta þriggja stiga karfa Curry kom þegar 0,6 sekúnda var eftir í framlengingunni en hann hefur nú hitt úr þriggja stiga skoti í 129 leikjum í röð í NBA-deildinni sem er nýtt met.
Kevin Durant og Russell Westbrook gerðu hvað sem þeir gátu til þess að halda Oklahoma inn í leiknum. Þurfti að grípa til framlengingar til að útkljá leikinn en í framlengunni náðu Warriors að stela sigrinum með sigurkörfu Curry sem var nær miðjunni en þriggja stiga línunni.
Þetta var 53. sigur Warriors í vetur sem halda áfram að gera atlögu að meti Chicago Bulls-liðsins sem vann 72 leiki tímabilið 1995-1996 en sigurkörfu Curry má sjá hér fyrir neðan.

Damian Lillard, leikstjórnandi Portland, var sjóðheitur í kvöld og lauk leiknum með 31 stig en þetta var sextándi sigur Portland í síðustu tuttugu leikjum. Gasol lauk leiknum með 22 stig, 16 fráköst og 14 stoðsendingar.
San Antonio Spurs vann í nótt 50. leik sinn í vetur gegn Houston Rockets á útivelli í kvöld 104-94 en með því varð San Antonio Spurs-liðið sjöunda lið sögunnar sem vinnur 50 af fyrstu 60 leikjum tímabilsins.
Leikmenn Spurs tóku nítján stiga forskot inn í fjórða leikhlutann og gat þjálfari liðsins leyft sér að hvíla leikmenn á lokasprettinum.
Þá vann Phoenix Suns loksins körfuboltaleik eftir þrettán leikja taphrinu en liðið vann fimm stiga sigur á Memphis Grizzlies á heimavelli en þetta var fyrsti sigur liðsins í febrúar.
Úrslit kvöldsins:
Boston Celtics 101-89 Miami Heat
New Orleans Pelicans 110-112 Minnesota Timberwolves
Chicago Bulls 95-103 Portland Trailblazers
Houston Rockets 94-104 San Antonio Spurs
Milwaukee Bucks 91-102 Detroit Pistons
Oklahoma City Thunder 118-121 Golden State Warriors
Phoenix Suns 111-106 Memphis Grizzlies
Utah Jazz 96-98 Brooklyn Nets