Fyrr um morguninn var Gunnar Bragi gestur á fundi utanríkismálanefndar, en stjórnarandstaðan hefur gagnrýnt hann fyrir að hafa ekki haft samráð við nefndina áður en bréfið var sent.
Nokkuð hefur verið deilt um efni bréfsins, en Gunnar Bragi sagði það skýrt.
„Hér er nefnilega um tiltölulega einfalt mál að ræða. Engum á að koma á óvart að ríkisstjórnin kjósi að búa svo um hnútana að þessu umsóknarferli sé nú lokið og að við teljum okkur ekki lengur til umsóknarríkja. Um það fjallar bréfið fyrst og síðast.“

„Í reynd þýðir hún: Ráðherra getur farið sínu fram hvernig sem hann vill á meðan ekki er samþykkt vantraust á hann. Það er villimennska.“
Gunnar Bragi sagði stefnu núverandi ríkisstjórnar skýra, hagsmunum Íslands væri best borgið utan ESB. Ekki var á honum annað að skilja en að málinu væri nú svo komið að nýja samþykkt þings þyrfti ef breyta ætti um kúrs.
„Frá því verður ekki vikið nema nýr meirihluti skapist á Alþingi en til þess þarf þá nýja ríkisstjórn og að mínu mati nýtt umboð og endurnýjun umsóknar.“
Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í umræðunum að mögulega væru þingmenn sammála um það eitt, að ekki yrðu teknar upp aðildarviðræður að nýju nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Það væri í takti við landsfundarsamþykkt Sjálfstæðisflokksins.