Golden State þurfti tvær framlengingar til að vinna Boston | Úrslitin í nótt Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. desember 2015 11:19 Curry skoraði 38 stig í nótt þrátt fyrir að hafa ekki hitt vel fyrir utan. vísir/getty
Sigurganga Golden State Warriors í NBA-deildinni heldur áfram en í nótt vann liðið sinn 24. leik í röð þegar það lagði Boston Celtics að velli, 119-124, eftir tvíframlengdan leik. Golden State lék án Klay Thompson og Harrison Barnes en tókst samt að halda ótrúlegri sigurgöngu sinni áfram. Meistararnir þurftu þó að hafa mikið fyrir hlutunum gegn Boston-liðinu. Stephen Curry hitti illa í leiknum (33,3%) en endaði samt með 38 stig, 11 fráköst og átta stoðsendingar. Draymond Green átti einig frábæran leik með 24 stig, 11 fráköst, átta stoðsendingar, fimm stolna bolta og fimm varin skot. Kelly Olynyk var heitur hjá Boston og skoraði 28 stig af bekknum. Avery Bradley kom næstur með 19 stig. LeBron James skoraði 25 stig og gaf átta stoðsendingar þegar Cleveland Cavaliers vann nokkuð þægilegan sigur, 76-111, á Orlando Magic á útivelli. Þetta var 12. sigur Cleveland á Orlando í röð. Rússinn Timofey Mozgov bætti 17 stigum við fyrir Cleveland sem er í efsta sæti Austurdeildarinnar með 15 sigra og sjö töp. San Antonio Spurs lagði Los Angeles Lakers að velli, 109-87, en Spurs er í 2. sæti Vesturdeildarinnar. Lakers er hins vegar í tómu tjóni og hefur aðeins unnið þrjá af 23 leikjum sínum í vetur og situr á botni Vesturdeildarinnar. LaMarcus Aldridge gerði 24 stig fyrir San Antonio og tók 11 fráköst og Patty Mills skoraði 22 stig af bekknum. Hjá Lakers var D'Angelo Russell atkvæðamestur með 24 stig, sex fráköst og sex stoðsendingar. Kobe Bryant skoraði aðeins 12 stig.Úrslitin í nótt: Boston 119-124 Golden State Orlando 76-111 Cleveland San Antonio 109-87 LA Lakers Indiana 96-83 Miami Philadelphia 95-107 Detroit Toronto 90-83 Milwaukee Memphis 99-123 Charlotte New Orleans 107-105 Washington Denver 111-108 Minnesota Utah 90-94 Oklahoma Phoenix 96-106 PortlandCurry skilaði 38 stigum gegn Boston Derrick Favors treður með látum Bestu tilþrif næturinnar
NBA Mest lesið Biðla til FIFA um að hætta við miðdagsleiki af ótta við hita Fótbolti Gáttaðir á ótrúlegu skoti: „Yrði dæmt á þetta í blakinu“ Fótbolti Markaregn og þrenna er ÍA vann botnslaginn Fótbolti Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Fótbolti Fluminense sendi Inter heim Fótbolti Fimm ástæður þess að Ísland falli strax út á EM Fótbolti Arnór lagði upp og dramatískur sigur lærisveina Freys Fótbolti Einn sá besti í heimi óvænt úr leik í fyrstu umferð Sport Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Körfubolti Víkingar krækja í Óskar Borgþórs frá Sogndal Fótbolti Fleiri fréttir Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Sjá meira