„Það er þó engin þörf á því að halda sig eingöngu við þessa liti, sérstaklega þar sem áhrifa tíunda áratugarins gætir í förðun og tísku þessa stundina. Þannig að litir með fjólubláum tón og/eða mjög glansandi á varir gæti verið skemmtilegt,“ útskýrir Diego.
Hann áréttar að mikilvægt sé að fara ekki yfir strikið í jólaförðuninni, það sé allt í góðu að nota smávegis glitrandi liti á augu, neglur eða á varir en ekki á allt í einu.
Diego segir að meðal förðunartrenda fyrir veturinn sé að nota mörg lög af maskara þannig að dúkkulegt útlit fáist og að varir verði meira glansandi.
„Svartur eyeliner er alltaf í tísku, það er bara spurning um hvar og hvernig á að setja hann á. Í vetur á að setja hann í vatnslínuna, svæðið á milli neðri augnhára og sjálfs augans. Meiri áhersla verður lögð á náttúrulega förðun með heilbrigðu, útiteknu útliti.“

„Í þessa förðun var notaður frekar dökkur, rauður varalitur en hann er hér aðallega notaður sem nokkurs konar yfirlýsing á förðuninni. Húðin er mjög ljós, á hana er notaður léttur farði, sólarpúður á vangana og fallegur gylltur highlighter settur á kinnar, nef og fyrir ofan efri vör, í amorsbogann.
Á augu er notaður ljós augnskuggi, eyeliner án spíss og maskari til að fá fram nokkurs konar dúkkulegt yfirbragð. Einnig er smávegis gylltu augnskuggadufti dúmpað á augnlokin. Í hárið var notað saltsprey til að gefa útlitinu meiri hlýleika.“

„Þessi förðun er falleg bæði fyrir jól og áramót. Húðin er höfð mjög ljós og náttúruleg en ferskjulitaður kinnalitur notaður til að fá meiri hlýju. Maskarinn er settur á í nokkrum lögum til að ná nokkurs konar tætingslegu dúkkuútliti á augun. Til að fá meira drama í förðunina er litur settur í „cut crease“ eða í línu á svæðið milli augnloks og augnbeins. Á augnlokið er ljós húðlitaður augnskuggi. Undir augun er öfug „smokey“ förðun en þá er svartur eða brúnn augnblýantur notaður og dreift aðeins úr honum. Á varirnar er settur mjög ljós, mattur appelsínugulur litur auk gloss í tveimur mismunandi gylltum tónum en gyllt gloss er inn í vetur."
Hárið var blásið til að fá smá fyllingu í það og það svo greitt aftur með hárspreyi og saltspreyi.“