Má ekki spila með landsliðinu af því hann er ekki í réttum skóm Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2015 22:30 Dragan Bender með landsliði Króata á EM í fyrra. Vísir/Getty
Dragan Bender er ekki bara einn allra efnilegasti leikmaður Króatíu og Evrópu heldur á hann möguleika á að verða framtíðarstjarna í NBA-deildinni ef marka má útsendara NBA-deildarinnar. Dragan Bender fær samt ekki að spila með 19 ára landsliði Króata á HM unglinga sem fer þessa dagana fram í Grikklandi. Ástæðan er líklega skrýtnari en þær flestar því að leikmaðurinn og körfuboltasamband Króatíu eru ósammála um skó leikmannsins. Dragan Bender er nefnilega með skósamning við Adidas og vill fá að spila í sínum skóm enda væri annað samningsbrot. Króatíska sambandið er aftur á móti með samning við Nike og vill að allir sínir leikmenn virði þann samning og spili í Jordan-skóm. Leikmenn A-landsliðs Króata fá leyfi til að spila í sínum skóm en allir leikmenn unglingalandsliðana verða aftur á móti að virða fyrrnefndan samning. Dragan Bender var allt í öllu með 18 ára landsliði Króata þegar liðið vann brons á EM í fyrra. Hann var þá með 14,4 stig, 10,4 fráköst og 4,9 stoðsendingar að meðaltali í leik og var valinn í úrvalslið mótsins. Í leiknum um bronsið þá vantaði hann vara eitt frákast upp á þrennuna í 75-71 sigri á Grikkjum. Útsendarar NBA-liðanna hafa mikla trú á þessum 211 sentímetra framherja og það er talið líklegt að hann verði meðal fimm efstu í nýliðavali NBA-deildarinnar á næsta ári. Þrátt fyrir að Króatar hafi spilað án Dragan Bender og manni færri í mótinu þá er liðið komið alla leið í undanúrslitin þar sem liðið mætir Tyrklandi á morgun.
Körfubolti NBA Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Clark slegin í augað í frumraun Körfubolti Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira