Hátt í tólf hundruð manns hafa ritað nafn sitt á undirskriftalista þar sem skorað er á forseta Íslands að leysa upp Alþingi og boða til nýrra kosninga. Opnað var fyrir undirskriftir í gær og vonast er til að fá undirskriftir að minnsta kosti þrjátíu prósent kosningabærra manna.
Sjá einnig: „Bylting á Austurvelli“
Á vefsíðunni er forsetinn hvattur til að „framfylgja þeirri skyldu embættis Forseta Íslands að vernda lýðræði á Íslandi og standa vörð um vandaða og heiðarlega stjórnarhætti Alþingis og ríkisstjórnar landsins.“ Það skuli hann gera með því að draga umboð sitt til ríkisstjórnar til baka, samkvæmt 24.grein Stjórnarskrár Íslands.
Áskorunina má finna hér.
Skora á forsetann að rjúfa þingið og stofna til nýrra kosninga

Tengdar fréttir

Mótmælandi handtekinn á Austurvelli
Reyndi að komast inn í þinghúsið en var yfirbugaður af nokkrum lögregluþjónum.

99 ástæður til byltingar
Alls ætla liðlega 6000 manns að blása til byltingar á Austurvelli á morgun. „Við ætlum að láta í okkur heyra,“ segir Sara Elísa Þórðardóttir skipuleggjandi uppreisnarinnar.

„Bylting“ í beinni: Mótmælendur mæta á Austurvöll
Skipuleggjandi segir ólgu virðast liggja í öllum hornum, krókum og kimum samfélagsins.