Hann er þar með búinn að skora 32,310 stig í NBA-deildinni á löngum og farsælum ferli, en með stigunum í nótt fór hann upp fyrir sjálfan Michael Jordan í þriðja sæti yfir stigahæstu leikmenn NBA frá upphafi.
Kobe er nú 4.618 stigum á eftir Karl Malone, sem er í öðru sæti listans, og þarf að spila 185 leiki til viðbótar til að ná honum ef miðað er við að Kobe skori 25 stig að meðaltali í leik.
Þegar rúmar fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleik setti Kobe niður tvö vítaskot sem komu honum yfir Jordan, en hann þurfti níu stig í nótt til að komast pall með Kareem Abdul Jabbar (38.387) og Karl Malone.
Lakers er nú búið að vinna þrjá leiki í röð og rífa sig upp úr kjallaranum í vestrinu, en liðið er búið að vinna átta leiki og tapa sextán.
Kobe Bryant fer fram úr Jordan:
Congrats, Kobe! pic.twitter.com/OTADknA00q
— NBA (@NBA) December 15, 2014
Golden State Warriors vann 16. leikinn í röð í nótt þegar liðið lagði New Orleans Pelicans, 128-122, í framlengdum leik í New Orleans í nótt.Stephen Curry skoraði 34 stig fyrir gestina, tók 7 fráköst og gaf 7 stoðsendingar og félagi hans Klay Thompson skoraði 29 stig. Bakverðir Golden State halda áfram að spila eins og þeir sem valdið hafa.
Tyreke Evans var virkilega flottur í liði heimamanna og skoraði 34 stig auk þess sem hann tók 8 fráköst og Jrue Holiday bætti við 30 stigum og 9 stoðsendingum.
Oklahoma City Thunder er einnig komið á góðan skrið í vestrinu, en liðið vann Phoenix Suns, 112-88 í nótt. Þetta var sjötti sigur liðsins í röð og er það nú aðeins einum sigri frá áttunda sætinu.
Russell Westbrook (28 stig, 8 fráköst, 8 stoðsendingar) og Kevin Durant (23 stig, 8 fráköst) voru allt í öllu hjá heimamönnum.
Toronto heldur efsta sæti austurdeildarinnar eftir sigur á New York í nótt, en Washington og Chicago sem eru í baráttunni á toppnum í austrinu unnu líka.
Úrslit næturinnar:
New Orleans Pelicans - Golden State Warriors - 122-128
Miami Heat - Chicago Bulls 75-93
Utah Jazz - Washington Wizards 84-93
Minnesota Timberwolves - Los Angeles Lakers 94-100
Oklahoma City Thunder - Phoenix Suns 112-88
New York Knicks - Toronto Raptors 90-95
Denver Nuggets - San Antonio Spurs 91-99