Skoðun

Ósk um samstarf

Þorsteinn Víglundsson skrifar
Samtök atvinnulífsins, Alþýðusamband Íslands og Viðskiptaráð Íslands sendu forsætisráðherra bréf í vikunni þar sem óskað var eftir samstarfi um úttekt á aðildarviðræðum við Evrópusambandið, þróun ESB og valkostum Íslendinga í efnahagsmálum fram á veginn. Eins og kunnugt er hefur ríkisstjórnin ákveðið að ráðast í slíka úttekt.

Fyrstu viðbrögð forsætisráðherra við þessari beiðni valda vonbrigðum. Kannski ekki síst í ljósi þess að vonir stóðu til að ný ríkisstjórn myndi láta af þeirri átakahefð sem einkennt hefur stjórnmálin á undanförnum árum og taka upp ný vinnubrögð. Væntingar í þá átt eru ekki að ástæðulausu enda sagði m.a. í annarri málsgrein stefnuyfirlýsingar nýrrar ríkisstjórnar:

„Ríkisstjórnin mun leitast við að virkja samtakamátt þjóðarinnar og vinna gegn því sundurlyndi og tortryggni sem einkennt hefur íslensk stjórnmál og umræðu í samfélaginu um nokkurt skeið. Framfarir og bætt lífskjör á Íslandi hafa byggst á samvinnu og samheldni og til framtíðar munu Íslendingar halda áfram að leysa sameiginlega af hendi helstu verkefni þjóðfélagsins.“

Þessi yfirlýsing gaf því skýr fyrirheit um betri samskipti við aðila vinnumarkaðarins en fyrri ríkisstjórn iðkaði og mikilvægt að sú verði raunin. Vissulega getur aðila greint á í veigamiklum atriðum. Ekki þarf heldur að taka fram að það er meirihluti Alþingis sem ræður för. Vönduð og opin umræða, þar sem mismunandi sjónarmið eru skoðuð vandlega, leiðir hins vegar undantekningalaust til betri og trúverðugri niðurstöðu.

Samtök atvinnulífsins ganga til slíkrar vinnu án fyrirframgefinna niðurstaðna. Úttektin sem SA, ASÍ og VÍ vilja gera með stjórnvöldum snýr ekki eingöngu að aðildarviðræðum við ESB og hvaða kostir þar eru í boði, heldur ekki síður að því að skýra aðra valkosti sem Íslendingum standa til boða í peningamálum. Niðurstaða í þeim efnum er mikilvægur þáttur í gerð komandi kjarasamninga og raunar hornsteinn nýrrar þjóðarsáttar um betri lífskjör. Þá er tómt mál að tala um afnám gjaldeyrishafta ef skýr peningastefna er ekki til staðar.

Verkefnin fram undan eru viðamikil og mikilvæg og leggja Samtök atvinnulífsins áherslu á að eiga gott samstarf við stjórnvöld við úrlausn þeirra. Samtökin treysta því að það sé gagnkvæmt.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×