Að vera eða ekki vera aumingi Helgi Guðnason skrifar 27. nóvember 2025 16:02 Kaffistofa Samhjálpar hefur síðustu tvo mánuði haft aðsetur í kirkjunni þar sem undirritaður starfar. Kaffistofan er á sömu hæð og skrifstofa kirkjunnar. Þessa tvo mánuði hefur það aldrei gerst að starfsmenn eða gestir kirkjunnar hafi upplifað áreiti eða ógn af hendi skjólstæðinga kaffistofunnar. Mikið af gestum kaffistofunnar er vinnandi fólk, fólk sem tímabundið er atvinnulaust eða einfaldlega fólk sem gengur gegnum fjárhagslega erfiðleika. Þann tíma sem kaffistofan hefur verið í húsnæði okkar hefur ekki fundist ein sprautunál á lóðinni að mér vitandi, en þær fundust öðru hvoru fram að því. Það eru færri sígarettustubbar en áður og húsnæði kirkjunnar er alls ekki í verra ástandi en það var áður en kaffistofan fékk aðstöðu. Kaffistofan er ekki eitthvað greni þar sem óþjóðalýður kemur saman og hangir allan daginn, eins og mætti ætla af tali sumra. Kaffistofa Samhjálpar er þrifalegur matsalur sem ber mannsæmandi mat á borð og mætir hverjum og einum með þeirri reisn og virðingu sem góður Guð hefur gefið hverjum manni. Á kaffistofu Samhjálpar starfar fólk sem hefur þjálfun og þekkingu til þess að mæta þeim fjölbreytta hópi sem þangað sækir. Kafffistofan gefur fólki að borða, fólk kemur, borðar matinn sinn, getur aðeins yljað sér og er svo farið á braut eftir kannski klukkutíma. Þó kaffistofan afgreiði yfir 200 matarskammta á dag, þá eru ekki nema 30-40 í húsinu í einu. Kaffistofan er opin frá klukkan 10-14, í lok dags fer starfsfólkið yfir lóðina, passar að þar sé allt í lagi og enginn sé að hanga þar sem ekki eigi að vera. Kaffistofa Samhjálpar er samfélagsþjónusta, þar er líka verið að hugsa um nágrennið og að vera umhverfinu til bóta. Við umræðu undanfarinna daga hefur mér verið hugsað til eins af slagorðum Besta Flokksins þegar hann bauð fram í Reykjavík. „Allskonar fyrir aumingja.“ Það sem er svo fyndið við það slagorð er að það talar auðvitað enginn þannig. Bitið í brandaranum er að stundum er yfirlæti í því þegar talað er um þau sem eru í neyð eða þurfa stuðning, ,,við” erum góða fólkið, ,,þau” eru grey og kannski smá aumingjar. Hvernig myndir þú skilgreina orðið aumingi? Orðið aumingi er notað til að lýsa þeim sem vísvitandi víkur sér undan skyldum sínum, jafnvel þó það valdi öðrum skaða. Aumingi er jafnan sá sem bregst þeim sem honum eru háðir um umönnun eða öryggi, vegna þess að hann tekur þægindi sín fram yfir þau. Aumingi er sá sem níðist á þeim sem eru minni máttar en hopar um leið og hann mætir jafningja. Aumingi er sá sem hugsar ekki um sig en ætlast til þess að aðrir sjái um hann. Miðað við algenga notkun mætti allavega skilja orðið svona. Í umræðu síðustu daga hafa einstaklingar stigið fram og tjáð sig um fólk í neyð þannig að skilja megi að fólk í neyð séu bara aumingjar. Undirritaður ólst upp við þá sjálfsmynd sem íslendingur að íslenskt samfélag væri gott samfélag. Það hefur mátt ganga að því sem vísu að íslendingar vilji ekki samfélag þar sem börn fara svöng að sofa, við viljum ekki samfélag þar sem fólk verður úti þegar kólnar á veturna. Við viljum ekki vera samfélag sem hendir tonnum af fatnaði og mat í ruslið meðan samborgarar okkar eru án klæða og matar. Við viljum ekki vera einhverjir aumingjar sem bregðast þeim sem eru í neyð. En hverskonar samfélag erum við þegar það gerist trekk í trekk að félagsleg úrræði fá hvergi húsnæði vegna þess að enginn vill að þjónustan sé í sínu nærumhverfi? Hverskonar samfélag erum við þegar við fellum tár vegna þjáninga í útlöndum, en fólk í neyð í okkar nærumhverfi er ógn eða aumingjar? Reynsla mín af því að hafa kaffistofuna sem næsta nágranna er sú að kaffistofan er góður nágranni. Þar er öllum mætt með virðingu, þar er höfðinu ekki stungið í sandinn gagnvart þeim áskorunum sem kunna að koma upp, þeim er mætt af skynsemi og festu. Allir sem sjá það starf sem unnið er á kaffistofunni verða samstundis miklir stuðningsmenn hennar, ég er einn þeirra og hvet alla sem lesa til þess að vera það líka. Höfundur er prestur Fíladelfíu í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kaffistofa Samhjálpar Mest lesið „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar