Viðskipti

Kynhneigð og trúarbrögð víkja af Facebook
Trúarbrögð, pólitískar skoðanir, heimilisföng og kynhneigð fólks munu hverfa af Facebook um mánaðamótin. Talsmaður Facebook segir breytinguna vera gerða til að einfalda notendum að nota miðilinn.

Galdrar gerast við spilaborðið
„Ég er oft spurð hvert sé mitt uppáhalds spil eða hvaða spil ég spili mest en það fer allt eftir því við hvern ég er að spila hvaða spil verður fyrir valinu í hvert sinn. Það er samveran sem skiptir langmestu máli, samræðurnar, tengingin og samskiptin sem verða milli þeirra sem spila.

Byggja sjóböð í Önundarfirði
Til stendur að byggja sjóböð við Holtsfjöru í Önundarfirði á næstu misserum. Tillögur að byggingu þeirra voru kynntar íbúum á Flateyri og í Önundarfirði nú á dögunum.

Færeyska skipaútgerðin með átján starfsmenn í Þorlákshöfn
Færeyska skipaútgerðin Smyril Line er komin með átján starfsmenn í Þorlákshöfn. Þar segja menn að lesa megi æðaslátt efnahagslífsins úr flutningunum. Ráðmenn sveitarfélagsins vonast til að það styttist í farþegaferju til Evrópu.

Afsláttardagar færa til jólaverslun
Miklir afsláttardagar standa nú yfir í verslunum að erlendri fyrirmynd. Framkvæmdastjóri Kringlunnar segir landsmenn duglega að nýta sér afslættina, sem séu kærkomnir svona rétt fyrir jól.

Bensínverð „ekkert nema græðgi og ofurálagning“
Bensínlítrinn er nú fimmtíu krónum dýrari en hann var í byrjun árs, þrátt fyrir að heimsmarkaðsverð á olíu sé svipað og þá. Félag íslenskra bifreiðaeigenda segir græðgi stjórna ferð hjá íslenskum olíufyrirtækjum.

Fjárlög ekki auðveldað kjaraviðræður
Formaður Samfylkingarinnar segir ummæli seðlabankastjóra og annarra valdamanna um stöðu almennings í landinu hafa farið illa í fólk, enda erfiðir tímar hjá mörgum Íslendingum. Rikisstjórnin hafi ekki auðveldað umhverfið fyrir kjaraviðræður.

Rafmyntakeisarinn sem reyndist nakinn
Stofnandi rafmyntakauphallarinnar FTX var hylltur sem einhvers konar kennifaðir rafmyntarbransans og viðraði sig upp við stórstjörnur og stjórnmálamenn. Allt að milljón fjárfesta og viðskiptavina sitja nú uppi með milljarða dollara tap eftir skyndilegt hrun fyrirtækisins.

Fréttasjúklingur sem hefur borðað hundahamborgara, hestaheila, lifandi orma og drukkið snákablóð
Gissur Guðmundsson matreiðslumeistari og fyrrverandi forseti Heimssamtaka Matreiðslumanna, Klúbbs matreiðslumanna og Kokkablúbbs Norðurlanda, segist í dag fyrst og fremst vera ævintýramaður. Og húsmóðir í Frakklandi. Sem þó er að setja á laggirnar fyrsta kokkalandsliðið í Indlandi.

Nóvember undirlagður afsláttargylliboðum og neyslufylleríi
Mikil tilboðshelgi er gengin í garð og segja verslunarmenn nóvembermánuð nánast undirlagðan tilboðsdögum. Sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun telur tilboðsdagana óþarfaneyslufyllerí.

Arnarlax hyggst kæra 120 milljóna króna sektarákvörðun
Arnarlax hyggst kæra ákvörðun Matvælastofnunar um stjórnvaldssekt á fyrirtækið. MAST lagði í dag 120 milljóna króna sekt á fyrirtækið fyrir brot gegn skyldu um að tilkynna um strok á fiski og að beita sér fyrir veiðum á strokfiski.

Jón Svanberg Hjartarson ráðinn framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar
Jón Svanberg Hjartarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar ohf. og mun hann hefja störf 1. janúar 2023. Jón stundaði nám við Lögregluskólann 1993 - 1996 og er með MBA gráðu frá Háskóla Íslands frá 2018. Auk þess hefur Jón lokið stjórnunarnámi við Lögregluskólann og Endurmenntun HÍ ásamt námi í mannauðsstjórnun hjá Endurmenntun HÍ.

120 milljóna sekt lögð á Arnarlax: Vítavert aðgæsluleysi
Matvælastofnun hefur lagt 120 milljón króna stjórnvaldssekt á Arnarlax ehf. fyrir að hafa brotið gegn skyldu um að tilkynna um strok á fiski og beita sér fyrir veiðum á strokfiski. Matvælastofnun telur aðgæsluleysi Arnarlax hafi verið vítavert og afleiðingar þess mjög alvarlegar.

Gunnar áfram hafnarstjóri Faxaflóahafna
Stjórn Faxaflóahafna samþykkti að ráða Gunnar Tryggvason sem hafnarstjóra Faxaflóahafna á fundi sínum í morgun. Ráðgefandi hæfnisnefnd er sögð hafa mælt einróma með ráðningu Gunnars í stöðuna.

Kynnir litaflokkun til leiks á Twitter
Twitter hyggst taka í gagnið litaflokkuð hök við reikninga á Twitter sem gefa til kynna að um hinn rétta aðila sé um að ræða á bak við viðkomandi reikning.

Vefurinn bilaður og kaupglaðir Íslendingar fylla búðir Elko
Arinbjörn Hauksson markaðsstjóri Elko segir fyrirliggjandi að landsmenn skipuleggi heildarkaup ársins í kringum afsláttardaga. Afsláttardagar á borð við Svartan föstudag hafi klárlega gerbreytt kauphegðun landsmanna.

Frá Fiskifréttum og til Hjálparstarfs kirkjunnar
Svavar Hávarðsson hefur hafið störf sem fræðslu- og upplýsingafulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar. Svavar hefur starfað sem blaðamaður og ritstjóri frá árinu 2006.

Undirbúa leiðtoga framtíðarinnar
„AFS, alþjóðlegu friðar- og fræðslusamtökin, bjóða upp á skiptinám, ungmennaskipti og tungumálaskóla. Samtökin starfa í um 60 löndum og eiga rætur sínar að rekja til ársins 1915 sem sjálfboðaliðasamtök. Það var svo árið 1947 að samtökin hófu að senda ungt fólk milli landa í skiptinám og var tilgangurinn að byggja brýr á milli mismunandi menningarheima og taka þannig skerf í átt að friðsælli og skilningsríkari heimi. Kjarni starfseminnar er að gefa nemendum og öðrum þátttakendum tækifæri til að kynnast heiminum og öðlast menningarlæsi en eitt helsta meginstarf AFS felst í því að undirbúa og efla leiðtoga framtíðarinnar og gera þá að alþjóðlegum virkum borgurum,“ segir Ingunn Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri AFS á Íslandi.

Musk hleypir nær öllum sem voru bannaðir aftur á Twitter
Öllum þeim notendum á Twitter sem hafa verið bannaðir fyrir nær hvaða sakir sem er verður hleypt aftur á samfélagsmiðilinn í næstu viku. Elon Musk, eigandi Twitter, ákvað þetta eftir óformlega skoðanakönnun.

Að æfa þakklæti í vinnunni getur margborgað sig
Rannsóknir til fjölda ára hafa sýnt mjög sterkt samband á milli þess að vera þakklát fyrir það sem við eigum og höfum og hamingju. Skiptir þá engu máli hvar eða hver við erum. Að lifa í þakklæti hefur hreinlega mjög jákvæð áhrif á það hvernig okkur líður.

Ásdís og Katla taka við rekstri Lovísu
Ásdís Bjarkadóttir og Katla Sif Friðriksdóttir hafa gengið frá kaupum á kynlífstækjaversluninni Lovísu. Þær taka við rekstrinum af stofnanda verslunarinnar, Jóni Þór Ágústssyni, sem ætlar að einbeita sér að öðrum verkefnum.

Styrmir Sigurjónsson hættir hjá Arion banka
Styrmir Sigurjónsson, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá bankanum.

Kúmen – svo miklu miklu meira en Stjörnutorg
Það var mikil stemning á Stjörnutorgi í gær þegar veitingasvæðið var formlega kvatt. GústiB var DJ auk þess sem tónlistarmennirnir Birnir, Jón Arnór og Baldur skemmtu. Veitingastaðir buðu upp á tilboð. Gríðarlega góð mæting var á svæðið og vel á annað þúsund gestir komu í gleðina. 400 bíómiðar sem Kringlan dreifði hurfu eins og dögg fyrir sólu. Hjá sumum voru blendnar tilfinningar að kveðja svo rótgróin stað sem á sess í huga margra eftir 23 ár.

N1 lækkar verð í Norðlingaholti
Frá og með deginum í dag getur þú fengið fengið ódýrara eldsneyti á stöð N1 í Norðlingaholti. Stöðin bætist með þessu í hóp fimm N1 stöðva sem bjóða ódýrara eldsneyti en mikil eftirspurn er eftir slíkum stöðvum.

Icelandair flýgur til Detroit
Icelandair hyggst hefja áætlunarflug til bandarísku stórborgarinnar Detroit næsta vor.

Saga Harley-Davidson komin á prent
„Það var í vinnubanni í covid að ég settist niður til að halda áfram með gagnaöflun fyrir annað bindi bókar minnar um sögu mótorhjóla á Íslandi. Ég ákvað að byrja á að taka saman hvaða efni ég hefði yfir ákveðnar tegundir og byrjaði á Harley-Davidson. Fljótlega varð mér þó ljóst að ég hefði svo mikið efni og líka myndir að það eitt og sér myndi duga mér í heila bók, og þannig fæddist nú þessi bók mín um Harley-Davidson á Íslandi,“ segir Njáll Gunnlaugsson, höfundur bókarinnar Ameríska goðsögnin.

Skýrslan stendur óhögguð þrátt fyrir gagnrýni Bankasýslunnar
Ríkisendurskoðun segir að skýrsla hennar um sölu ríkisins á hlut í Íslandsbanka standi óhögguð þrátt fyrir gagnrýni Bankasýslu ríkisins og annarra. Tekið hafi verið tillit til atriða sem Bankasýslan gerði athugasemdir við í umsagnarferli skýrslunnar.

Bein útsending: Rannsóknaþing og Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs
Í dag fer fram Rannsóknaþing og afhending Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs. Þingið ber yfirskriftina: Þekking í þágu samfélags – Áhrif rannsókna á íslandi og verður meðal annars fjallað um áhrifamat á Rannsóknasjóði sem ráðuneyti háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar lét gera og gefið var út nýlega.

Sigríður Sía í framkvæmdastjórn Advania
Sigríður Sía Þórðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskiptalausna Advania. Hún fer fyrir öflugu teymi sérfræðinga sem aðstoða fyrirtæki á sinni skýjavegferð.

Hver fasteignaauglýsing fær nú umtalsvert færri smelli
Hver fasteignaauglýsing fær að jafnaði umtalsvert færri smelli nú en áður sem gefur til kynna að færri séu að leita sér að íbúð. Í febrúar síðastliðinn, þegar framboð íbúða var í lágmarki, fékk hver auglýsing á höfuðborgarsvæðinu að meðaltali 149 smelli á dag en í fyrri hluta nóvember var sú tala komin niður í 42.