Viðskipti innlent

Húrra Reykjavík opnar á Keflavíkurflugvelli
Húrra Reykjavík, ein þekktasta fataverslun landsins, hefur opnað nýja og glæsilega verslun í brottfararsal Keflavíkurflugvallar. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Bein útsending: Kynna yfirtökutilboðið
JBT og Marel munu halda opinn fjárfestafund í dag klukkan 13 í höfuðstöðvum Arion Banka í Borgartúni 19 og kynna valfrjálst yfirtökutilboð JBT í Marel. Sýnt verður frá fundinum á Vísi.

Gefa út kynjað skuldabréf
Ríkissjóður Íslands hefur gefið út kynjað skuldabréf að fjárhæð fimmtíu milljónir evra, jafnvirði um 7,5 milljarða króna. Íslands er með útgáfunni orðið fyrsta þjóðríki heimsins sem gefur út kynjað skuldabréf.

Sóttu rúman milljarð í fjármögnun
Líftæknifyrirtækið Genís hf. hefur tryggt sér 1,1 milljarð króna í nýtt hlutafé til áframhaldandi þróunar á beinígræðum og lyfjum við bólgusjúkdómum.

Hundrað manna hjúkrunarheimili gæti sparað tugi milljóna með smáforriti
Á hundrað manna hjúkrunarheimili væri hægt að spara um 24 milljónir árlega ef smáforritið Iðunn yrði innleitt í starfsemina. Þetta er meðal niðurstaða í lokaverkefni Önnu Bjarkar Baldvinsdóttur í hagfræði. Hún gerði í verkefninu kostnaðarábatagreiningu við innleiðingu Iðunnar á landsvísu.

Taka tvö í Vesturbugt
Reykjavíkurborg hefur boðið út byggingarlóðir í Vesturbugt á ný. Borgin rifti samningi um uppbyggingu á svæðinu vegna áralangra vanefnda byggingafélags í fyrra.

Spilafíklar geti lokað á fjárhættuspil hjá Indó
Sparisjóðurinn Indó býður nú viðskiptavinum sínum að loka á fjárhættuspil. Þau sem kjósi að virkja lokunina muni ekki geta notað debetkortið sitt á veðmála- og fjárhættuspilavefsíðum né á flestum sölustöðum spilakassa.

Jón nýr forstjóri Veritas
Jón Björnsson hefur verið ráðinn forstjóri Veritas. Hann hefur víðtæka reynslu af fyrirtækjarekstri og umbreytingarverkefnum bæði á Íslandi og í Skandinavíu. Jón gegndi síðast starfi forstjóra Origo hf. en hefur áður gegnt forstjórastarfi bæði hjá Festi og Krónunni, Orf Líftækni, Magasin du Nord og Högum.

María Björk tekur við af Orra
Orri Hauksson, forstjóri Símans, mun láta af störfum í lok sumars eftir langt starf hjá félaginu. Við starfinu tekur María Björk Einarsdóttir, sem nú starfar sem fjármálastjóri Eimskips.

Vinna eins og hakkarar en eftir skýrum reglum
Landsbankinn og netöryggisfyrirtækið Defend Iceland hafa gert samning um aðgang að hugbúnaði villuveiðigáttar fyrirtækisins til að auka og styrkja varnir gegn árásum á net- og tölvukerfi Landsbankans. Fjölmörg íslensk fjármálafyrirtæki hafa leitað til Defend Iceland.

Fleiri kaupi ódýrar íbúðir án þess að taka lán
Leiguverð hækkaði langt umfram verðbólgu og íbúðaverð síðustu tólf mánuði. Fyrstu kaupendum á íbúðamarkaði fer fækkandi en erfiðara er fyrir þá að koma sér inn á markaðinn en áður.

Íslensk ferðaþjónusta verði að vaxa í sátt við samfélagið
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir skattkerfi vegna ferðamennsku hér á landi enn í mótun. Áhyggjur séu uppi af massatúrisma og ferðamennska verði að vaxa í sátt við samfélagið en líka náttúruna.

Wok On gjaldþrota
WOKON ehf., sem hélt utan um veitingastaðakeðjuna Wok On, hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Félagið er að fullu í eigu veitingamannsins Quang Lé, sem grunaður er um mansal og fleiri refsiverð brot. Annað félag í hans eigu, EA17 ehf., hefur sömuleiðis verið tekið til gjaldþrotaskipta.

Steinunn Kristín ný í stjórn Varðar
Steinunn Kristín Þórðardóttir hefur tekið sæti í stjórn Varðar trygginga.

Bláa lónið kaupir Hoffell og stefnir á baðlón
Bláa Lónið hf. hefur fest kaup á jörðinni Hoffell 2 í Austur-Skaftafellssýslu. Kaupin eru liður í áformum félagsins um uppbyggingu fleiri áhugaverðra áfangastaða á Íslandi. Markmiðið er að móta einstakan stað fyrir ferðamenn, við rætur Hoffellsjökuls og skapa segul sem styrkir Suðausturland sem áfangastað ferðamanna.

Bein útsending: Kynna úttekt á samkeppnishæfni Íslands
Viðskiptaráð Íslands býður til morgunfundar um niðurstöður nýrrar úttektar IMD á samkeppnishæfni Íslands í alþjóðlegum samanburði. Fundurinn hefst klukkan 09 í Borgartúni 35 og sýnt verður frá honum hér á Vísi.

Tugmilljóna sekt og má ekki stunda rekstur
Sverrir Halldór Ólafsson hefur verið dæmdur til tveggja ára skilorðsbundinnar fangelsisvistar og greiðslu 57 milljóna króna vegna stórfelldra skattalagabrota. Hann hefur keyrt sjö einkahlutafélög í þrot og hefur nú verið bannað að stunda atvinnurekstur í tvö ár.

Opnar sjálfur stað þar sem rekstur Quang Le gekk best
Maður sem áður starfaði fyrir alræmda veitingamanninn Quang Le hefur opnað nýjan veitingastað í húsnæði sem áður hýsti veitingastað í eigu Le. Hann bauð fyrrverandi starfsfólki Le sem ekki hafði fengið vinnu eftir að stöðum hans var lokað, starf hjá veitingastaðnum.

Reglulegar uppsagnir „því miður verið okkar raunveruleiki“
Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir flugmenn duglega að mennta sig og koma sér í aðrar vinnur þegar þeim er sagt upp vegna árstíðasveiflna, en 57 flugmönnum Icelandair var sagt upp í síðustu viku. Tilhneiging þeirra til að snúa aftur til fyrirtækisins sýni heilindi bæði flugmannanna og félagsins.

Brandenburg hreppti Ljónið í Cannes
Auglýsingastofan Brandenburg vann í kvöld bronsverðlaun á Cannes Lions verðlaunahátíðinni fyrir endurmörkunarvinnu á orkudrykknum Egils Orku. Þetta er í fyrsta skipti sem íslensk auglýsingastofa hlýtur Cannes Lions verðlaunin án þess að hafa verið í samstarfi við erlendar stofur.

Stýrir rekstrarsviði Skeljungs
Ingunn Þóra Jóhannesdóttir hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstarsviðs hjá Skeljungi. Rekstrarsvið Skeljungs sér um dreifingu eldsneytis, öryggismál, gæðamál, afgreiðslustaði Skeljungs og flugvelli innanlands.

Hreint hjá Vallý
Vallý Helgadóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri þjónustusviðs hjá ræstingafyrirtækinu Hreint. Hlutverk hennar verður að halda utan um rekstur og þróun sviðsins, móta og efla þjónustu Hreint til viðskiptavina og styðja við starfsfólk sem sinnir þjónustunni.

Semja um markaðssetningu verðmæts augnlyfs
Alvotech og Advanz Pharma, alþjóðlegt lyfjafyrirtæki með höfuðstöðvar í Bretlandi, sem markaðssetur lyfseðilsskyld lyf, stungu- og innrennslislyf og lyf við sjaldgæfum sjúkdómum, tilkynntu í dag að félögin hefðu undirritað nýjan samning um framleiðslu og markaðssetningu fyrirhugaðrar líftæknilyfjahliðstæðu Alvotech við augnlyfið Eylea. Tekjur af sölu lyfsins í Evrópu námu rúmlega 400 milljörðum króna í fyrra.

„Árstíðarsveifla“ ástæða 57 uppsagna
Fimmtíu og sjö flugmönnum var sagt upp störfum hjá flugfélaginu Icelandair á föstudag. Forstjórinn segir ástæðuna árstíðarsveiflu en hann segir auk þess minni eftirspurn eftir Íslandi sem hafi áhrif á reksturinn.

Ísland að detta úr tísku
Staðan í ferðamennskunni út árið er grafalvarleg að sögn sérfræðings í starfrænni markaðssetningu. Ísland er nánast að detta úr tísku hjá ferðamönnum um allan heim.

Icelandair segir upp 57 flugmönnum
Flugfélagið Icelandair hefur sagt upp 57 flugmönnum félagsins. Tilkynnt var um fyrirhugaðar uppsagnir á föstudaginn en forstöðumaður samskipta hjá félaginu segir að gert sé ráð fyrir að hægt verði að bjóða flugmönnunum störf næsta vor.

Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur
Atvinnuhúsnæði við Bankastræti 5 í miðborg Reykjavíkur hefur verið auglýst til leigu eina ferðina enn. Undanfarin ár hefur skemmtistaðurinn B5 verið þar til húsa, allt þar til í lok apríl. Húsnæðið er í eigu Fasteignafélagsins Eik.

Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu
Stjórn Landsvirkjunar hefur samþykkt að selja höfuðstöðvar félagsins að Háaleitisbraut 68 í Reykjavík. Lýkur þar með endanlega tæplega hálfrar aldar aðsetri orkufyrirtækis þjóðarinnar á þeim stað. Landsvirkjun hefur ekki haft aðsetur í húsinu í tæpt ár vegna myglu.

„Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar
Fyrrverandi formaður Samtaka ferðaþjónustunnar geldur varhug við umræðu um „betur borgandi ferðamenn,“ en hún segir hugtakið vera nokkurs konar klisju. Hún segir að óþægilega mikið hafi dregið úr eftirspurn hins almenna ferðamanns, sem eyðir hér að jafnaði hundruðum þúsunda hver. Ísland hafi dregið lappirnar í markaðssetningu um árabil.

Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni
Rekstrarniðurstaða A-hluta Reykjavíkurborgar var neikvæð um 3.292 milljónir króna á þremur fyrstu mánuðum ársins. Það er 1.357 milljónum króna lakari niðurstaða en gert var ráð fyrir. Meðal þess sem skýrir lakari afkomu er vetrarþjónusta borgarinnar, sem fór 782 milljónir króna umfram fjárheimildir.