
Skoðun

Að notast við kerfi sem er komið að þolmörkum er eins og að mjólka möndlu
Að mati Björns Brynjólfs Björnssonar framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs væri gott fyrsta skref að auka kennsluskyldu íslenskra kennara því hann telur þá kenna minna en kennara í þeim löndum sem við berum okkur saman við.

Hafa stjórn á sínu fólki?
Ég skemmti mér vægast sagt vel yfir umræðum á Alþingi um störf þingsins á dögunum þar sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, gerði EES-samninginn að umtalsefni.

Rangfærslur um Ísrael og Arabaríkin
Mánudaginn 14. október 2024 hafði ungur bresk-ísraelskur hagfræðingur, Ely Lassman, framsögu á fundi, sem ég efndi til í Þjóðminjasafninu. Var Lassman staddur hér af öðrum ástæðum, og bað ég hann að eiga við okkur orð um „Ísrael, Arabaríkin og Vesturveldin“.

Við verðum að viðhalda vegum
Ný ríkisstjórn mun að öllum líkindum taka við völdum í desember á þessu ári. Stjórninni býður ærið verkefni, en ef marka má fréttaflutning alla daga skortir fé í nánast alla málaflokka og oft fær almenningur það á tilfinninguna að mest allt sé hér í lamasessi í einu auðugasta samfélagi heims.

Ferðaþjónustan og fyrirsjáanleikinn
Tíminn leikur stórt hlutverk þegar kemur að ferðaþjónustunni sem atvinnugrein. Gestirnir okkar taka sér tíma í að láta sig dreyma, taka tíma í ákvörðun, tíma í að bóka og síðast en ekki síst tíma til að láta sig hlakka til.

Sjávarorka; stefnuleysi og fordómar flokkanna
Stutt er til næstu þingkosninga. Flokkarnir hamast við að stilla upp á lista og dusta rykið af sínum stefnuskrám sem munu svo rykfalla aftur í skúffum eftir kjördag.

Ætlar heilbrigðisráðherra að lögleiða kannabis?
Helgina 11/12 okt síðastliðin var haldin ótrúlega vel heppnuð ráðstefna á vegum Hampfélagsins um iðnaðar og lyfjahamp (medical cannabis). Fengnir voru fyrirlesarar frá öllum heimshornum, allt sérfræðingar á sínu sviði og mörg hver þungavigtarfólk innan geirans.

Píratar og járnlögmál fámennisstjórna
Flokksforysta Pírata „sýndi tilburði til að losa sig undan lýðræðislegu aðhaldi og eftirliti með því að búa svo um hnúta að hún þyrfti ekki að óttast að verða velt úr sessi í krafti lýðræðislegra reglna sem hún setti sjálf um endurnýjun forystunnar.“

Til ástarinnar til lýðræðis
Það er aðeins einn stjórnmálaflokkur á Íslandi í dag sem skilur, stundar, metur og bætir hugmyndina um lýðræði: Píratar.

Eini lýðræðislegi flokkur?
Í því að skima yfir fréttir sýnist að engir stjórnmálaflokkar í þingi ætli að halda prófkjör, fyrir komandi kosningar, nema Píratar.

Ég stend með kennurum
Ég á góðum kennurum svo gríðarlega mikið að þakka. Ég fór sjálfur holótta leið í gegnum skólakerfið og veit hvað það hefur mikil áhrif. Það skólakerfi sem við erum með í dag er 1000 sinnum betra en það sem þá viðgekkst. Í dag gegna kennarar lykilhlutverki.

Kennarar eru alls konar
Kennarar eru alls konar, sem betur fer. Kennarar eiga fjölskyldur, börn og barnabörn. Kennarar kaupa húsnæði og taka lán. Kennarar eiga góða daga og stundum slæma. Sumir kennarar eru alla jafna heilsuhraustir, aðrir síður. Kennarar eru fólk og eiga hvorki betra né verra skilið en annað fólk.

Er forsvaranlegt að kjósa Framsóknarflokkinn?
Ég ætla ekki sjálfur að kjósa Framsóknarflokkinn en hvet þá sem ekki geta hugsað sér að kjósa Sósíalistaflokkinn eða Pírata að gera það, sérstaklega ykkur í mínu kjördæmi, Suðurkjördæmi þar sem Halla Hrund Logadóttir skipar fyrsta sætið.

Grípur Bjarni tækifærið?
Ef menn, kjörnir fulltrúar, móðgast, mega þeir þá bara henda öllu frá sér?

Þegar hjarðhegðun skyggir á skynsemi: Tökum upplýsta ákvörðun!
Nú fer að líða á alþingiskosningum og því er ærin ástæða til að hvetja ungmenni til að beita gagnrýnni hugsun við ákvarðanatöku um nýtingu á mikilvægu atkvæði hvers og eins. Þetta á reyndar við um ákvarðanatöku í margbreytilegum þáttum lífsins, sérstaklega þegar kemur að flóknum samfélagsmálefnum.

Rangfærslur bæjarstjóra
Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri í Hafnarfirði fór mikinn á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga nú fyrr í október. Í frétt Morgunblaðsins sem endursögð er að hluta á mbl.is segir Rósa kærur náttúruverndarsamtaka hafa kostað Hafnarfjarðarbæ 8 milljarða.

Er öldrunarhjúkrun gefandi?
Fagdeild öldrunarhjúkrunarfræðinga hélt vinnudag í september síðastliðnum þar sem þverfaglegur hópur kom saman og ræddi um tækifærin í öldrunarþjónustu. Eitt af því sem við gerðum var að upphugsa slagorð fyrir öldrun.

Vopnakaup eru landráð
Vopnakaup Alþingis og þátttaka í stríði úti í heimi stangast á við Stjórnarskrá íslenska lýðveldisins, Varnarmálalög nr. 34/2008 og Almenn hegningarlög nr. 19/1940 og brýtur beinlínis gegn þeim. Ísland er nú orðið beinn þátttakandi í stríði og þar með hernaðarskotmark. Með þessum ráðstöfunum sínum hafa íslenskir ráðamenn framið landráð.

Rödd skynseminnar
Stjórnvöld og ákvarðanir þeirra spegla þann tíðaranda sem er uppi hverju sinni, enda samsett fólki sem er þverskurður samfélagsins. Það er mikilvægt að líta um öxl og horfa gagnrýnum augum á þær ákvarðanir sem stjórnvöld hafa tekið í tilraun til þess að tryggja að ákvarðanir framtíðarinnar séu hafnar yfir persónulegar kreddur, vanþekkingu, fordóma og óöryggi.

Menntun er fjárfesting í framtíðinni
Menntakerfi geta verið helvíti kostnaðarsöm. Séu þau vel úr garði gerð eru þau mann-, tækja- og húsnæðisfrekar stofnanir sem krefjast umfangsmikillar stoðþjónustu, ítarlegrar stefnumótunar og ekki síst kennara af holdi og blóði sem annast störf sín af kostgæfni og helst ástríðu. En sé litið til lengri tíma geta vanræksla og vanfjármögnun menntakerfa haft enn meiri kostnað í för með sér.

Í átt að betra Íslandi – stjórnmál sem skila árangri
Íslenskt samfélag hefur staðið frammi fyrir miklum áskorunum undanfarin ár – hvort sem það er hækkandi vextir, aukinn kostnaðarbyrði heimilanna eða áskoranir í menntakerfinu. Þrátt fyrir þessi vandamál hefur það sýnt sig að lausnamiðuð stjórnmál geta skipt sköpum.

Meiri eftirspurn eftir lausnum en rifrildum um húsnæðismál
Ég held að eftirspurnin eftir pólariseringu og rifrildi um húsnæðismálin sé mjög takmörkuð í samfélaginu. Fólk á nóg með sitt í verðbólguhlöðnu heimilisbókhaldinu að ég tali ekki um þegar hentugt húsnæði vantar. Óskandi væri ef umræðan gæti hafið sig yfir skotgrafir stjórnmálanna þar sem staðreyndir drukkna í upphrópunum sem snúast stundum meira um von um fylgisaukningu eða sérhagsmuni en að leysa málin.

Hættum þessu bulli – enga strúta hér á landi
Þetta er ekki flókið. Náum sátt um menntakerfið og málið er dautt. Eldgamalt vandamál sem þarf að leysa. Kjör á pari við viðmiðunarstéttir miðað við fimm ára háskólanám.

Gerum íslensku að kosningamáli
Þótt oft sé lögð áherslu á gildi og mikilvægi íslenskrar tungu og menningar í stjórnmálaumræðu skora þau mál ekki hátt þegar kjósendur eru spurðir um áherslumál sín – í könnun Prósents í ágúst nefndu aðeins 2% þátttakenda menningarmál sem eitt af mikilvægustu málunum.

Svikinn héri að hætti hússins — Ekki lýðræðisveisla
Stundum heyrist sagt að kjósendur geti sjálfum sér um kennt að velja ekki betra fólk á Alþingi. Þetta er ósanngjörn fullyrðing. Þegar kjósandi greiðir atkvæði í kosningum hafa stjórnmálaflokkarnir þegar ákveðið hvaða þingmenn taka sæti á Alþingi.

Ætlum við að þjónusta og meðhöndla og meðferða börn í vanda í bílskúr næst? Barnamálaráðherra axlaðu ábyrgð og segðu af þér!
Hver verður dreginn til ábyrgðar fyrir að hafa lagt þennan málaflokk í rúst og hver á að vera dreginn til ábyrgðar? Eftir þetta hræðilega atvik sem gerðist á Stuðlum að morgni 19. október. Hver ætlar að taka á sig ábyrgðina?

Öðruvísi Íslendingar
Í almennri umræðu og kommentakerfum í dag má finna ýmiskonar hatursorðræðu, múslimahatur, gyðingahatur, útlendingahatur og svo lengi má telja. Allt sem má telja sem „öðruvísi” en hinn „venjulegi” Íslendingur er dregið fram sem óæskilegt. En þetta er alls ekki nýtt af nálinni.

Þarf háskólamenntað fólk til að kenna litlum börnum?
Það sýndi sig hvaða stéttir eru ómissandi þegar heimsfaraldur ógnaði heimsbyggðinni. Ein þeirra er starfsfólk í leikskólum. Á tímum Covid-19 var leikskólinn eina skólastigið sem lokaði aldrei. Þá vorum við framlínustétt, núna upplifi ég okkur stétt sem er með vesen, það kristallast í viðbrögðum SÍS, sem hefur stefnt Kennarasambandinu til félagsdóms vegna verkfallsboðunar.

Opið bréf til ríkissaksóknara og forseta Hæstaréttar
Á undanförnum árum hefur undirrituðum fundist farið nokkuð frjálslega með túlkun á Stjórnarskrá og Stjórnskipan Lýðveldisins Ísland. Nokkur sniðganga við stjórnarskrá hefur lengi viðgengist, en síðasta áratug eða svo þykir undirrituðum vera farið að stefna í alvarlegar afleiðingar.

Það er komið nóg
Síðustu þrjá daga tók ég þátt í Así þingi fyrir hönd Eflingar. Þar var rætt um málefni tengd ástandinu í landinu. Þetta voru yndislegir þrír dagar - fullir af samtölum, rökræðum og umræðum.