Ég: ritskoðaður? Júlíus Andri Þórðarson skrifar 19. apríl 2026 13:03 Ég er af kynslóð samkynhneigðra sem lærði snemma að setja upp ósýnilegan filter. Jafnvel í dag, fullorðinn einstaklingur sem gefur kost á sér í stjórnmálum, gríp ég mig stundum í því að rýna í eigin hegðun áður en ég geng inn í herbergi. Er ég of hinsegin? Hvort sem ég mæti á kosningaskrifstofuna okkar í Hafnarfirði, stíg í pontu eða fer í venjulegt samkvæmi úti í bæ, læðast að mér sömu gömlu spurningarnar: „Hvernig kem ég fyrir? Er ég að tala of mikið svona? Hegða ég mér of... hinsegin?“. Maður lærir að ritskoða sjálfan sig til að passa inn. Og það er lýjandi. Þess vegna sló það mig þegar ég las ummæli Snorra Mássonar. Hann kvartaði sáran yfir því að hafa heimsótt grunnskóla þar sem regnbogafánar trónuðu á skólabókasafninu og starfsfólk bar regnbogalituð hálsbönd. Honum þykir þetta „veraldlegt trúartákn“ sem brjóti gegn hlutleysi skólanna. Snorri er þarna að gera nákvæmlega það sama og mín kynslóð þurfti að þola, hann gerir tilvist okkar að einhverju umdeilanlegu. Að „pólitík“ sem þarf að halda í skefjum. Björgunarhringur, ekki áróður Fáninn á bókasafninu er enginn pólitískur áróður. Hann er þarna fyrir ungmennið sem er byrjað að finna fyrir sömu óvissu og ég á þess aldri. Fáninn og hálsbandið eru einföld skilaboð sem segja „Þú þarft engan filter hér. Þú mátt vera þú“. Þessir fánar eru beinlínis þarna til að bjarga næstu kynslóð frá því að ritskoða sjálfa sig alla ævi. Þetta snýst um velferð, ekki hugmyndafræði. Kveðjum filterinn Við í Viðreisn viljum skapa samfélag þar sem við grípum börnin okkar, nákvæmlega eins og þau eru. Þegar ég fór í pólitík ákvað ég að láta þennan gamla filter ekki stjórna mér lengur. Ég mæti á fundina og í samkvæmin eins og ég er. Á meðan sumir stjórnmálamenn reyna að skora ódýr stig á innfluttum menningarstríðum, mun ég fagna hverjum einasta regnbogafána sem hjálpar hverju barni í Hafnarfirði, og um allan heim, að elska sjálft sig. Höfundur skipar 6. sætið á lista Viðreisnar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hinsegin Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar