Áklæðið endurnýjað en vélin enn biluð Jóhanna Þorkelsdóttir skrifar 19. apríl 2026 06:32 Eftir 27 ár í kennslustofu veit ég að menntakerfið er ekki hafið yfir gagnrýni. Við eigum alltaf að vilja gera betur, velta við steinum og þora að breyta því sem virkar illa. En til þess að raunverulegar framfarir eigi sér stað, þurfum við samtal, rannsóknir og heilbrigða skynsemi, ekki plástra og popúlíska pólitík. Sem kennari er ég ekki sátt við þá aðferðafræði sem Inga Sæland, menntamálaráðherra, hefur tekið upp. Hlutverk menntamálaráðherra er að leiða menntastefnu í samvinnu við skólasamfélagið, ekki að stýra kerfinu sem einvaldur. Nýlegar áherslur ráðherra virðast fremur drifnar áfram af skoðanakönnunum en faglegri rýni. Það er ódýr popúlismi að kasta fram breytingum sem hljóma vel í eyrum sumra en leysa engan raunverulegan vanda. Þessi sýndarmennska birtist glöggt í umræðunni um námsmatskerfi; hvort notaðir eru tölustafir eða bókstafir breytir engu um raunverulega getu nemenda. ABC-kerfinu var ætlað að gera námsárangur gegnsærri með aðferðum leiðsagnarnáms, en sú nálgun virðist ekki vera að skila sér sem skyldi þar sem margir foreldrar segjast hreinlega ekki skilja kerfið. Lausnin felst hins vegar ekkert endilega í því að skipta út einum einkunnakvarða fyrir annan. Er kannski ástæða til þess að skoða hvernig upplýsingum um námsframvindu er miðlað til foreldra? Sveitarfélögin hafa um árabil verið í áskrift að námsumsjónarkerfum, s.s. Mentor. Þessi kerfi hafa ekki náð að aðlaga sig að mati í anda leiðsagnarnáms og ég hvet sveitarfélög til að leita annað og finna kerfi sem virka betur. Ráðherra talar gjarnan um velvild sína í garð annarra og nú síðast um virðingu fyrir kennarastéttinni, en athafnir hennar og orðbragð segja annað. Að uppnefna formann Kennarasambandsins „kjarabaráttustjóra“ og að kalla kennara „grey“ sýnir algjört virðingarleysi. Í Kastljósi sagðist Inga bara vera í einu liði og það er í liði barnanna okkar. Er ekki farsælast að við séum öll í sama liði? Það er einnig ómaklegt að stilla kennurum upp í lið gegn nemendum. Það er mikilvægt að taka það fram að kennarar eru til í breytingar og hafa kallað eftir þeim. Við vitum manna best að eitthvað þarf að breytast til að bæta námsárangur og aðbúnað í skólum landsins. En við krefjumst samvinnu. Það yrði tæpast farsælt ef ég ætlaði að reyna að laga vélina í bílnum mínum án þess að fá bifvélavirkja mér til halds og trausts. Á sama hátt verður ekki gert við menntakerfið án þeirra sem standa vaktina í skólastofunni dags daglega. Verkfærin eru til, nú þurfum við samráð Líking Ragnars Þórs er hér afar viðeigandi: Ef vélin í bílnum er biluð, þá dugar skammt að skipta um áklæði á sætunum. Bíllinn lítur kannski betur út og fyrir popúlistann er útlitið nóg. Fyrir okkur hin sem eigum að keyra bílinn, kennara, nemendur og foreldra, þá erum við föst á bílastæðinu. Við skulum hætta að dást að áklæðinu, opna húddið og þora að ræða vélina. Menntakerfið er ekki leikvöllur fyrir popúlíska sýndarmennsku, heldur grunnurinn að framtíðinni. Lögum þetta með raunverulegu samráði og fagmennsku, það er eina leiðin til að komast af stað. Höfundur er grunnskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar