Menning

X-Mart í Gallery Gallera
Nokkrir listamenn hafa tekið sig saman og opnað vinnustofu, gallerý og búð á Laugavegi 33, efri hæð, sem kallast Gallery Gallera. Hugleikur Dagsson, Örn Tönsberg, Óli Gumm og Bobby Breiðholt sýna þar verk og starfa þar með einum eða öðrum hætti.

Jólatónleikar Hymnodiu í Akureyrarkirkju
Jólatónleikar Hymnodiu frá Akureyri fara fram í Akureyrarkirkju annað kvöld, þriðjudaginn 22. desember, en þeir hafa ávallt verið gríðarlega vel sóttir.

Ég hélt þetta væri af því að ég er svo biluð og skapandi
Við þurfum að gera minna af því að glápa og meira af því að hlusta, segir Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur sem sendi fyrir skömmu frá sér skáldsöguna Anna á Eyrarbakka sem átti upprunalega að vera barnasaga.

Unglingaskólunum útrýmt
Stefán Pálsson skrifar um hina skringilegu upphafssögu útvarpsins á Íslandi.



Betur má ef duga skal í íslensku leikhúsi
Nú þegar árinu fer að ljúka er vert að skoða fyrri helming sviðslistaársins, meta stöðuna og horfa til nýrra verkefna á komandi ári. Sigríður Jónsdóttir gagnrýnandi Fréttablaðsins reifar hér stöðuna í íslensku leikhúslífi.

Er með sjómanninn í blóðinu
Saga Jóns Magnússonar athafnamanns á Patreksfirði er komin út, skráð af Jóhanni Guðna Reynissyni rithöfundi. Þó þar sé lýst átökum af ýmsu tagi heitir hún því yfirlætislausa nafni Þetta var nú bara svona.

Við getum öll lent í því að fara út af sporinu
Sporvagninn Girnd er jólafrumsýning Þjóðleikhússins í ár og þar tekst Nína Dögg Filippusdóttir á við hlutverk Blanche, einnar af merkustu kvenpersónum leikbókmenntanna. Nína Dögg segir að það sé samhljómur með lífi okkar allra og þessarar tættu sálar.

Alltaf gott að staldra við og lesa um einn heimspeking
Nokkrar konur úr stétt heimspekinga hafa tekið sig saman og gefið út fallega og handhæga dagbók með fróðleiksmolum um kvenkynsheimspekinga sem eru langtum fleiri en löngum hefur verið haldið fram í veröld heimspekinnar.

Loftklukkan frá afanum sem týndist í Ameríku
Páll Benediktsson dregur upp áhrifamiklar myndir í bók sinni Loftklukkan – eigin minningar frá uppvaxtarárum í Norðurmýri og óborganlegar sögur af nánu skyldfólki, svo sem afanum sem stakk af og týndist í átján ár.

Bóksalaverðlaunin 2015
Tilkynnt var um Bóksalaverðlaunin 2015 í gærkvöldi. Yfir 50 bóksalar víðs vegar að af landinu standa að valinu og kosið er til verðlauna í níu flokkum.

Sóttist eftir að þýða þessa bók
Besta þýdda skáldsagan að mati bóksalanna er Spámennirnir í Botnleysufirði eftir Danann Kim Leine í þýðingu Jóns Halls Stefánssonar.


Mamma klikk! í Þjóðleikhúsið
Ekkert lát er á velgengni Gunnars Helgasonar.

Eivør bætist í hóp einsöngvara
Jólasöngvum kórs Langholtskirkju hefur borist sérstaklega öflugur liðsstyrkur.

Ó, helga nótt og fleiri perlur jólatónlistar
Fjölbreytt aðventu- og jólatónlist verður flutt á hádegistónleikum kórsins Schola cantorum í Hallgrímskirkju á morgun, 18. desember.

Tónleikar til heiðurs frægustu dóttur Parísar
Brynhildur Guðjónsdóttir slær upp tónleikaveislu í Hörpu um helgina því franska söngkonan Edith Piaf hefði orðið 100 ára þann 19. desember. Hún segist fara í aðra vídd þegar hún flytur þessa tónlist.

Leika Mozart við kertaljós víða í kirkjum nú fyrir jólin
Kammerhópurinn Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kirkjum nú rétt fyrir jólin. Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart við kertaljós í tuttugu og þrjú ár og þykir mörgum ómissandi að koma úr miðri jólaösinni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu.


Venjulegur alþýðumaður í óvenjulegum aðstæðum
Munaðarleysinginn, örlagasaga Matthíasar Bergssonar, var skráð af Sigmundi Erni Rúnarssyni og hann segir Matthías eiginlega vera Forrest Gump Íslands enda á hann að baki fádæma litríkt lífshlaup.

Leiklestrar taka við af kana og borðspilum í jólaboðum
Borgarleikhúsið hefur hafið útgáfu á nýjum íslenskum leikritum og vönduðum þýðingum og fyrst á bók eru verk eftir leikritaskáldin Kristínu Eiríksdóttur og Tyrfing Tyrfingsson.

Skoða samspil hönnunar, tón- og myndlistar
Einn/þriðji er fjöllistaverkefni Studio Festisvall og Børk, sem ætlað er að skoða samspil hönnunar, tón- og myndlistar.

Hjónabandið skammlífa
Stefán Pálsson skrifar um Almar í kassanum og Ólympíuleikana.

Snerti þjóðina meira en margan grunar
Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðingur hefur skrifað bók um fyrri heimsstyrjöldina út frá sjónarhóli Íslendinga og áhrifa styrjaldarinnar á þjóðina.

Og svo tjöllum við okkur í rallið er besti bókartitill ársins 2015
Titill bókar getur haft mikið að segja um fyrstu upplifun lesenda og því skelltum við okkur í að skoða hverjir eru bestu og verstu titlar ársins 2015 að mati álitsgjafa Fréttablaðsins

Mikilvægt að taka slaginn
Þriðja bók Bryndísar Björgvinsdóttir er nýkomin út, en unglingsárin eru henni hugleikin en líka hvers kyns sögur og barátta fyrir flóttafólk.

Helgi Tómasson á leið heim: San Francisco ballettinn í fyrsta sinn í Hörpu
Kemur fram á Listahátíð 2016.

Þetta er engin hallelúja samkoma
Nýverið kom út ritgerðasafn um Hallgrím Pétursson í tilefni af fjögur hundruð ára afmæli skáldsins sem á fjölda verka sem lifa enn með þjóðinni. Í safninu er að finna fjölbreyttar ritgerðir og ljóð um skáldið.

Ver drjúgum hluta lífsins úti í íslensku landslagi
Kristján Jónsson, lista- og leiðsögumaður, opnar sýningu sína Portrett og landslag í Galleríi Gróttu á Eiðistorgi í dag, 10. desember, klukkan 17.