Lífið

Sterkustu hjón landsins selja íbúðina
Kraftlyftingahjónin Ellen Ýr Jónsdóttir og Júlían J. K. Jóhannsson, íþróttamaður ársins 2019, hafa sett íbúð sína við Sogaveg í Reykavík á sölu. Ásett verð er 79,9 milljónir.

Steldu stílnum af Áslaugu Örnu
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, mætti í blárri íþróttapeysu frá danska hönnunarmerkinu Rotate í sjónvarpsþáttinn Kappleikar á Stöð 2 í vikunni. Peysan vakti mikla athygli þar sem hún er vön að mæta í sínu fínasta pússi.

Live in a fishbowl: Dr. Gunni alltaf á leiðinni til að drepa þig
Dr. Gunni og félagar í Dr. Gunna fóru mikinn þegar þeir mættu í fiskabúri X-ins 977 í nýrri þáttaröð sem birtist á Vísi og ber heitið LIVE IN A FISHBOWL. Félagarnir voru í essinu sínu og spiluðu gamalkunnug lög í bland við ný.

Húðrútína Birtu Abiba
Ofurfyrirsætan Birta Abiba segir sólarvörn framar öllu öðru þegar kemur að daglegri húðumhirðu. Hún segir að vegna starfsins sé húðrútínan hennar umfangsmeiri en hjá flestum, en hún hvetur ungmenni til að nota færri vörur en fleirri.

Óhrædd við að fara sínar eigin leiðir
Helga Kristín Ingólfsdóttir, mannauðsráðgjafi og annar hlaðvarpsstjórnandi Móment með mömmu, lýsir sjálfri sér sem metnaðarfullri, orkumikilli og þorinni. Ef hún gæti valið sér einn ofurkraft myndi hún vilja geta lesið hugsanir annarra.

Söngelskir nemendur í Menntaskólanum að Laugarvatni
Hugur nemenda Menntaskólans að Laugarvatni er ekkert endilega við skólabækurnar þessa dagana því kór skólans er að fara að syngja á þrennum tónleikum í Skálholti með Sinfóníuhljómsveit Suðurlands. Meirihluti nemenda er í kórnum.

Barry Keoghan leikur Bítil
Stórleikarinn írski Barry Keoghan mun leika trommarann fræga Ringo Starr í ævisögulegri kvikmyndaröð Sam Mendes um ævi og störf Bítlanna. Stefnt er að því að hver Bítill fái sína mynd.

Inga Sæland vill komast í fjármálaráðuneytið
Sindri Sindrason skellti sér í morgunkaffi til Ingu Sælands formanni Flokks Fólksins í vikunni. Hún segist vita nákvæmlega hvað þurfi að gera á Alþingi og vill einfaldlega ráðherrastól.

Kappleikar: Skörp orðaskipti og skeytasendingar
Fjörugar kappræður fóru fram á Stöð 2 í gærkvöldi í Kappleikum þar sem málefni ungs fólks voru til umræðu. Í einum lið var frambjóðendum boðið að taka afstöðu til hinna ýmsu málefna og reyndist það stundum þrautin þyngri.

Með stórstjörnum í væntanlegri kvikmynd Marvel
Jóhannes Haukur Jóhannesson heldur áfram að sanka að sér hlutverkum erlendis en nú hefur leikarinn tilkynnt að hann muni fara með hlutverk í væntanlegri kvikmynd Marvel, Captain America: Brave New World, þó að enn sem komið er sé leyndarmál hvaða persónu hann muni glæða lífi.

Svar Bents við hatursorðræðu gegn útlendingum
Leikstjórinn og rapparinn Ágúst Bent Sigbertsson segir að undanfarið hafi verið ákveðin orðræða í þjóðfélaginu sem hafi beinst gegn innflytjendum. Hann leikstýrir nýrri auglýsingu á vegum Guide to Europe og segir þar um að ræða sitt svar gegn þeirri orðræðu sem hann segir ekki síst koma frá ráðamönnum. Hann hefur nóg fyrir stafni en Rottweiler gefur út nýtt lag á morgun.

Arnaldur tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna
Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna voru kynntar nú rétt í þessu. Arnaldur Indriðason, Jón Kalman Stefánsson, Gerður Kristný, Birgitta Björg Guðmarsdóttir og Kristín Ómarsdóttir fara fyrir fríðum hópi en þau eru tilnefnd í flokki skáldverka.

Reykjavík samdi til þriggja ára við Borgarleikhúsið
Fulltrúar Leikfélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar undirrituðu í dag samning um rekstur Borgarleikhússins til næstu þriggja ára. Samningurinn gildir frá fyrsta janúar 2025 til og með 31. desember 2027.

Leikstjóri Naked Gun og Airplane! látinn
Bandaríski leikstjórinn Jim Abrahams sem þekktastur er fyrir að hafa skrifað og leikstýrt grínmyndum á borð við Airplane! Police Squad! og Naked Gun er látinn. Hann var áttatíu ára gamall.

Hefndi sín með því að missa meydóminn
Goðsögnin Cher opnar sig upp á gátt í nýrri sjálfsævisögu. Þar fer poppstjarnan um víðan völl og rifjar meðal annars hvernig hún missti meydóminn fjórtán ára gömul en hún segist það fyrst og fremst hafa verið gert til að hefna sín á strák.

Spurt var um fyrirbæri sem Tommi á Búllunni framkvæmdi fyrst hér á landi
Í Kviss á laugardagskvöldið mættust Leiknir og Grótta í 8 liða úrslitunum.

Kappleikar: „Ég er í alvörunni að reyna mitt besta“
Fjörugar kappræður fóru fram á Stöð 2 í gærkvöldi í Kappleikum þar sem málefni ungs fólks voru til umræðu. Þá var kannað hve listrænir frambjóðendur eru og fengu þeir það verkefni að mála hver aðra.

Pantaði viskí og kókaín skömmu fyrir andlátið
Liam Payne, tónlistarmaður og fyrrverandi meðlimur One Direction, er sagður hafa pantað níu flöskur af vískíi og þrettán grömm af kókaíni skömmu áður en hann lést. Payne lést í Buenos Aires í síðasta mánuði eftir að hann féll fram af þriðju hæð á svölum á hóteli.

„Grét ekkert eðlilega mikið á frumsýningunni“
„Þetta var bara draumur að rætast,“ segir tónlistarkonan Sigga Ózk sem ljáir stórstjörnunni Ariönu Grande rödd sína í íslenskri talsetningu af söngleikjamyndinni Wicked. Myndin var forsýnd á dögunum í Laugarásbíói við mikinn fögnuð.

Vissu hvorki verðið á strætómiða né bjór
Fjörlegar kappræður fóru fram á Stöð 2 í gærkvöldi þar sem málefni ungs fólks voru til umræðu í þættinum Kappleikar. Frambjóðendum gekk aftur á móti illa í að svara spurningum sem tendgdust raunum ungs fólks.

Umbreyttist í Guðna Ágústsson og Ólaf Ragnar
Lilja Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknar segir að því fari fjarri að hún hafi ekki sterkar skoðanir þrátt fyrir að Framsókn sé á miðju stjórnmálanna. Lilja segir árin sem hún bjó í Kóreu hafa haft mikil áhrif á hana.

„Mig langar að prófa nýja villtari hluti en konan ekki“
Spurning barst frá lesenda: „Ég og konan mínum höfum verið saman í 3 ár. Ég upplifi að ég vilji meiri fjölbreytileika í kynlífinu okkur heldur en hún. Þegar við byrjuðum saman þá ræddum við þessi mál og vorum sammála um að vilja prófa nýja hluti en nú virðist það hafa slökknað hjá henni. Á meðan mig langar að prófa nýja og villtari hluti þá hefur hefðbundið kynlíf orðið óspennandi fyrir mér og kynlöngun mín minnkað til muna. Hverju myndir þú mæla með?” - 36 ára karl.

Draumaherbergi hjá fimmtugri og fabjúlöss
Í fjórða þætti af fimmtu þáttaröð af Skreytum hús, fá áhorfendur að fylgjast með breytingu á svefnherbergi við Langholtveg. Soffía Dögg Garðarsdóttir heimsótti Helenu Levisdóttur, sem óskaði eftir gera herbergið hlýlegt.

Kynbomba og reynsluboltar í Melodifestivalen
Þrír reynsluboltar í Eurovision vilja keppa fyrir hönd Svíþjóðar í keppninni á næsta ári. Þá hefur ein frægasta kynbomba landsins jafnframt skráð sig í undankeppnina en listi yfir keppendur í Melodifestivalen hefur nú verið birtur í sænskum miðlum.

„Látið jólaljós ykkar skína skært“
Jólalagakeppni Borgarbókasafnsins verður haldin í þriðja sinn í desember. Keppnin er opin öllum en lokafrestur til að senda inn lag er sunnudaginn 1. desember klukkan 23:59.

Söfnunarþáttur UNICEF í beinni útsendingu á þremur stöðvum í einu
Söfnunar- og skemmtiþáttur UNICEF á Íslandi, Búðu til pláss, verður í beinni útsendingu föstudaginn 6. desember kl. 19:40 á þremur sjónvarpsstöðvum samtímis: Stöð 2, RÚV og Sjónvarpi Símans. Tilefnið er tuttugu ára afmæli UNICEF á Íslandi.

Gleði á forsýningu Sambíóanna og Bylgjunnar á Vaiana 2
Heppnir hlustendur Bylgjunnar streymdu í bíó á sunnudaginn ásamt leikurum og starfsliði Sýrlands en hátt í 280 gestir skemmtu sér á forsýningu Disneymyndarinnar Vaiana 2 í Sambíóunum Kringlunni.

Auður einhleypur og skýtur á yfirvöld vegna Yazans
Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, betur þekktur sem Auður, er einhleypur. Þrátt fyrir að vera einn eftir í kotinu hefur hann haft nóg að gera í tónlistinni. Fyrr í dag gaf hann út lagið Peningar, peningar, peningar þar sem hann skýtur meðal annars föstum skotum að yfirvöldum um mál Yazans Tamimi, fjölfatlaðs drengs frá Palestínu.

Segir að gengið hafi verið nærri hjónabandinu, gögnum stolið og allt túlkað á versta veg
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins hvílir hugann með góðri tónlist, ræktun á grænmeti og hreyfingu.

Lyftu barninu upp eins og hann væri Simbi
Sonur Katrínar Eddu Þorsteinsdóttur, áhrifavalds og verkfræðings, og eiginmanns hennar Markusar Wasserbaech er kominn með nafn. Drengnum var gefið nafnið Aron Atli.