Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 3. febrúar 2026 14:22 Jóni Gnarr er alvara um þær athugasemdir sem hann gerir við tækjabúnaðinn í þingsal, en sló síðan á létta strengi með vísun í gamalkunna persónu. Vísir/Vilhelm Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, gerði verulegar athugasemdir við tæknibúnað Alþingis í umræðu um störf þingsins á Alþingi í dag. Jón kvartaði meðal annars yfir gömlum tæknibúnaði, atkvæðagreiðslutökkum sem eigi það til að klikka og lélegri hljóðvist sem komi sér afar illa fyrir fólk eins og hann sem heyrir illa. Tónninn í ræðunni minnti allnokkuð á persónuna Indriða, sem Jón Gnarr lék sjálfur í Fóstbræðrum á sínum tíma, en undir lok ræðunnar tók Jón líkindin alla leið og rifjaði upp þekktar línur Indriða um bank í ofnum. Ræða Jóns uppskar mikil hlátrasköll í þingsal og forseti þingsins kvaðst taka undir athugasemdirnar. „
Það er öllum þingmönnum ljóst og starfsfólki að allur tækjabúnaður er kominn til ára sinna og á það til að virka ekki. Til dæmis í atkvæðagreiðslum verður oft vandræðagangur vegna þess að hnappakerfið virkar ekki og svo á þetta ljós hérna til að blikka allt í einu og trufla mann í einhverri ógleymanlegri ræðu og það er oft á einhverjum tæknilegum misskilningi byggt,“ sagði Jón meðal annars. Hann kallaði eftir því að ýmiss konar tæknibúnaður í þingsalnum yrði uppfærður. Það mætti að hans mati gjarnan setja upp skjá sem sýni betur dagskrá þingsins, og helst líka kerfi sem nýtist heyrnarskertum á fundum. „Ég er heyrnarskertur og er með alvarlega heyrnarskerðingu. Ég heyri stundum ekki hvað háttvirtur forseti segir og á stundum erfitt með að átta mig á dagskránni útaf því,“ sagði Jón. Á ég að gera það? Fyrir þá sem hlýddu á ræðuna sem þekkja til karaktersins Indriða úr Fóstbræðrum voru hugrenningatengslin nokkuð augljós, og Jón virðist sjálfur hafa áttað sig á því. „Og svo er alltaf eitthvað hljóð í ofnunum hérna frammi. Eitthvað bank, eins og þeir séu bara fullir af lofti. Og hver á að laga það, á ég að gera það,“ sagði Jón að lokum og uppskar mikið hláturskast meðal þingmanna í salnum. Þórunni Sveinbjarnardóttur, forseta Alþingis, brá einnig bros á vör en þegar Jón hafði lokið máli sínu tók hún raunar undir þær áhyggjur og athugasemdir sem Jón lýsti í ræðunni, og hvatti þingheim til að ganga til verks og reyna að tryggja þinginu þá fjármuni sem þurfi til að ráðast í úrbætur á tæknibúnaði í húsinu.
Alþingi Grín og gaman Viðreisn Mest lesið Íbúar furða sig á horfnu listaverki Menning „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Lífið Þjóðþekktir tónlistarmenn koma fram í heimahúsum Tónlist Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Lífið Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Lífið Stjörnur fjármálabransans komu saman Lífið Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Lífið Glæsilegar í Gamla Bíói Lífið Flóni og Alaska ekki lengur „bara vinir“ Tónlist Fleiri fréttir Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi Sjá meira