Lífið

White Noise: Allt er gott ef ekki er vöruskortur
Netflix frumsýndi á milli jóla og nýárs nýjustu kvikmynd Noah Baumbachs, White Noise. Hún byggir á samnefndri skáldsögu Don DeLillo og fjallar um bandaríska millistéttarfjölskyldu sem lendir í miðjum hamförum þegar eiturský nálgast heimili þeirra.

Matador-höfundurinn Lise Nørgaard látin
Danski blaðamaðurinn, ritstjórinn og rithöfundurinn Lise Nørgaard, sem meðal annars er þekkt fyrir að hafa verið höfundur Matador-þáttanna, er látin. Hún lést í gær, 105 ára að aldri.

Þórdís Björk skellti sér á skeljarnar á miðnætti
Leik- og söngkonan Þórdís Björk Þorfinnsdóttir skellti sér á skeljarnar á miðnætti þegar nýtt ár gekk í garð. Hún og kærasti hennar, tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar Halldórsson voru þó þegar trúlofuð. Júlí bað Þórdísar í maí á síðasta ári en Þórdísi fannst Júlí þurfa að fá hring líka.

Alvarlega slasaður eftir snjómokstursslys
Bandaríski leikarinn Jeremy Renner er alvarlega slasaður eftir slys sem varð í tengslum við snjómokstur um liðna helgi.

Gangsta Boo úr Three 6 Mafia er látin
Bandaríski rapparinn Lola Mitchell, betur þekkt sem Gangsta Boo, er látin, 43 ára að aldri.

Björn Leví hrósaði Bjarna Benediktssyni
Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata hefur aldrei talað við Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins. Í um átta ár hafa þeir deilt á þingi um ýmislegt en aldrei hefur komið til þess að þeir ræði saman á persónulegum nótum.

YouTube-stjarnan Keenan Cahill er látinn
Bandaríska YouTube-stjarnan Keenan Cahill er látinn, 27 ára að aldri.

Ingvar Þór og Sandra Björk eiga von á barni
Ingvar Þór Björnsson, einn umsjónarmanna Morgunútvarpsins á Rás 2, og Sandra Björk Jónasdóttir þjóðfræðingur eiga von á barni.

Anita Pointer er fallin frá
Bandaríska söngkonan Anita Pointer er látin, 74 ára að aldri.

Hringur á fingur hjá Hörpu Kára
Förðunarfræðingurinn Harpa Káradóttir og Guðmundur Böðvar Guðjónsson eru trúlofuð. Þau trúlofuðu sig um áramótin.

Þetta eru tuttugu vinsælustu lög Bylgjunnar árið 2022
Bylgjan hefur tekið saman lista yfir vinsælustu lög stöðvarinnar árið 2022 en listinn er valinn út frá öllum Bylgjulistum ársins.

Klökknaði yfir stuðningi vegna áfalls á árinu
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, segist hafa fundið fyrir stuðningi frá fólki úr öllum stjórnmálaflokkum eftir að hún varð fyrir því áfalli á árinu að missa systur sína, Karitas H. Gunnarsdóttur.

Hildur Björnsdóttir á von á barni
Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og eiginmaður hennar Jón Skaftason eiga von á barni.

„Bjóst aldrei við svona góðum viðbrögðum“
Dóra Jóhannsdóttir, leikstjóri áramótaskaupsins árið 2022, segist alls ekki hafa átt von á jafn góðum viðbrögðum við skaupinu og raun ber vitni. Hún segir ferlið hafa gengið einstaklega vel en um er að ræða hennar fyrsta leikstjórnarverkefni.

Gríðarleg ánægja með Skaupið sem sumir segja það besta frá upphafi
Mikil ánægja virðist hafa verið með Áramótaskaupið í ár í leikstjórn Dóru Jóhannsdóttur. Landsmenn hafa sem fyrr margir hverjir deilt skoðun sinni á sjónvarpsþættinum árlega á samfélagsmiðlum. Í fljótu bragði virðast mun fleiri ánægðir en ósáttir.

„Við erum að kveðja Egil með virktum“
„Ég held að það sé ekkert fyrirtæki á Íslandi sem er búið að vera með sömu röddina í þrjátíu ár að tala fyrir sig,“ segir Kristinn G. Bjarnason framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Toyota á Íslandi. Áramótaauglýsing Toyota, sem sýnd var rétt fyrir Áramótaskaupið í gærkvöldi hefur fengið mikil viðbrögð á samfélagsmiðlum og segja má að auglýsingin marki ákveðin tímamót.

Gamalt lag í splunkunýjum búningi
Júlí Heiðar, Þórdís Björk, Fannar Freyr og Marinó Geir fluttu lagið Gamlárskvöld, gamalt lag í splunkunýjum búning í Kryddsíld Stöðvar 2 í dag.

Vinsælustu lögin á FM957 árið 2022
Á þessum síðasta degi ársins er vert að líta yfir farinn veg í tónlistarheiminum en Árslisti FM957 kynnti fyrr í dag vinsælustu lög ársins 2022 á stöðinni.

Hróshringur þingmanna: „Maðurinn er mjög þrjóskur“
Þingmenn voru fengnir til að fara í „hróshring“ í Kryddsíld Stöðvar 2. Björn Leví Gunnarsson, sem jafnan hefur gagnrýnt fjármálaráðherra harðlega, var fenginn til að hrósa Bjarna Benediktssyni. Sigmundur Davíð fékk svo það hlutverk að hrósa Birni Leví.

Ekki í þjóðkirkjunni en naut messunnar á jóladag
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist ekki vera í þjóðkirkjunni en hafi hins vegar farið í messu á jóladag. Helsta jólahefðin sé hins vegar samsöngur fjölskyldunnar, nágrönnunum til ama.

Síðasta fréttakviss ársins: Ertu með á nótunum á gamlársdegi?
Hversu vel fylgist þú með fréttum og líðandi stund? Taktu þátt í Fréttakvissi vikunnar sem er í boði á Vísi á laugardögum.

Fréttakonan Barbara Walters látin
Bandaríska frétta- og sjónvarpskonan Barbara Walters er látin 93 ára að aldri. Hún hóf störf sjónvarpsfréttamaður á sjónvarpsstöðinni ABC árið 1976, fyrst kvenna í Bandaríkjunum.

DJ Karítas deilir sínum uppáhalds lögum frá árinu: „Grenja og slamma á klúbbnum“
Tónlistarárið 2022 var fjölbreytt og viðburðaríkt en einkenndist meðal annars af tónleikahaldi og miklu fjöri. Plötusnúðurinn Karítas spilaði á fjölmörgum viðburðum í ár en hún ræddi við Lífið á Vísi um þau lög sem henni fannst standa upp úr á árinu.

Mari Jaersk komin á fast með Nirði
Ofurhlaupakonan Mari Jaersk hefur fundið ástina í badmintonkempunni Nirði Lúðvíkssyni. Mari birti mynd af parinu á Instagram í TBR-húsinu við Gnoðarvog í dag. Þar eru þau í faðmlögum og með badmintonspaða í hönd.

Ingó hyggur á stórtónleika í Háskólabíó í mars
Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, hyggst halda stórtónleika í Háskólabíó á nýju ári. Samkvæmt heimildum fréttastofu verða tónleikarnir haldnir undir yfirskriftinni „Loksins gigg“, föstudaginn 10. mars. Formleg miðasala er ekki hafin en vinir og vandamenn hafa verið beðnir um að taka kvöldið frá.

Merkir myndirnar vel svo fólk haldi ekki að hann sé að falsa verkin
Jóhannes K. Kristjánsson er ekki stórt nafn í myndlistarheiminum þrátt fyrir að vera alveg ótrúlegur myndlistarmaður.

Guðjón Valur orðinn afi
Handboltakappinn Guðjón Valur Sigurðsson er orðinn afi. Dóttir hans eignaðist hárprúða dóttur þann 21. desember síðastliðinn.

Áramótaþátturinn: „Í síðasta skipti sem ég handlék flugelda vel í glasi“
Í áramótaþætti Einkalífsins er farið um víðan völl en síðustu gestir þáttanna voru beðnir um að rifja upp eftirminnilega áramótaminningu og einnig segja áhorfendum frá þeirra áramótaheitum.

Hrafnhildur flogin út í lokakeppni Miss Universe
Hrafnhildur Haraldsdóttir, Miss Universe Iceland, hélt síðastliðinn miðvikudag vestur um haf til að taka þátt í aðalkeppni Miss Universe.

Ólafur Arnalds og Sandrayati giftu sig á Balí
Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds og söngkonan Sandrayati gengu í hjónaband á milli jóla og nýárs. Brúðkaupið fór fram 26. desember á Balí, en Sandrayati er alin upp á eyjunni fögru. Hjónin eiga einstaklega fallegt hús á Balí og eyða miklum tíma þar.