Lífið

Heitustu sumartrendin í ár
Sumarið er komið, svona á það að vera og sólin leikur stundum um mann, misjafnlega beran. Hér á Íslandi er sumartíðin gengin í garð óháð fjölbreyttu veðurfari en á sumrin þróast hin ýmsu skemmtilegu trend á ólíkum sviðum. Blaðamaður fékk til sín fjölbreyttan hóp álitsgjafa til að reyna að komast að því hver heitustu trend sumarsins verða.

Allir spila með Babe Patrol
Stelpurnar í Babe Patrol ætla að verja síðasta streyminu fyrir sumarfrí með áhorfendum sínum. Þá munu áhorfendur geta barist við stelpurnar í einkaviðureign í Warzone 2.

Unnur Birna aftur ófrísk
Tónlistarkonan Unnur Birna Björnsdóttir ætlaði sér aldrei að eignast barn en hún þjáist af tókófóbíu eða sjúklegri hræðslu við meðgöngu og fæðingu. Fyrir tæpum þremur árum kom svo frumburðurinn, Náttsól Viktoría í heiminn og nú í september er von á óvæntum bróður.

Billie Eilish orðin einhleyp á ný
Poppstjarnan Billie Eilish og rokkarinn Jesse Rutherford, söngvari The Neighbourhood, eru hætt saman eftir sjö mánaða samband. Framhjáhald ku ekki vera ástæðan.

Slær met sem baðfatamódel á níræðisaldri
Sjónvarpskonan Martha Stewart prýðir forsíðu baðfataútgáfu tímaritsins Sports Illustrated fyrir árið 2023. Það gerir hana að elstu forsíðustúlku tímaritsins frá upphafi en hún verður 82 ára í ágúst.

Ásgeir Trausti með ábreiðu af Sálinni í herferð Ljóssins
Ljósið, endurhæfingar og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda, hrindir í dag af stað nýrri herferð undir yfirskriftinni Klukk, þú ert hann! Ásgeir Trausti leggur herferðinni lið með endurútgáfu á laginu Ekkert breytir því með Sálinni hans Jóns míns.

Einstakar svalir við þakíbúð Halla
Athafnamaðurinn og maður ársins Haraldur Þorleifsson er nýbúinn að opna veitingastað sem hann kallar Anna Jóna til minningar um móður sína.

Þríleikurinn fullkomnaður með Birni og Ilmi
Björn Thors og Ilmur Kristjánsdóttir verða í aðalhlutverkum í þriðja og síðasta hluta Mayenburg-þríleiksins sem Þjóðleikhúsið tók til sýninga í vetur. Þau bætast í hóp Gísla Arnar, Unnar Aspar, Nínu Daggar, Benedikts Erlings, Kristínar Þóru og Ebbu Katrínar sem hafa farið með aðalhlutverk í fyrri hlutunum tveimur, Ex og Ellen B.

Tónlistin tók stökk þegar honum varð sama um álit annarra
Tónlistarmaðurinn og sálfræðingurinn Birgir Örn Stefánsson, eða Biggi Maus, eins og hann er kallaður, byrjaði sólóferilinn uppá nýtt árið 2021 eftir að hafa gefið út tónlist undir öðrum listamannanöfnum frá árinu 2006.

Fyrsta stikla síðustu myndanna um Ethan Hunt
Ethan Hunt er enn í fullu fjöri, ef marka má fyrstu stiklu myndarinnar sem á að vera sú næst síðasta í Mission Impossible seríunni. Síðasta mynd Tom Cruise í þessum söguheimi verður frumsýnd á næsta ári.

Hver vinnur keppnina um bestu nýju útgáfuna af SS pylsulaginu?
Kosning um bestu nýju útgáfuna af SS pylsulaginu hófst á Vísi í síðustu viku.

Fölsk afsökunarbeiðni Samherja reyndist lokaverkefni í LHÍ
Fölsk afsökunarbeiðni í nafni Samherja, vefsíða og yfirlýsing þar um var lokaverkefni listamannsins Odds Eysteins Friðrikssonar, sem kallar sig Odee, í Listaháskóla Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá listamanninum.

Fönguðu kraft púðurskota í „Slow Mo“
Þeir Gavin og Dan í „Slow Mo Guys“ hafa um árabil fangað hina ýmsu hluti með háhraðamyndavélum og hafa þeir til að mynda komið til Íslands og fangað íslenska náttúru. Í nýjasta myndbandi þeirra sýna þeir fram á kraft púðurskota.

Skilnaðurinn erfiður en sambandið gott í dag
Leikarinn, líkamsræktarfrömuðurinn og fyrrverandi ríkisstjórinn Arnold Schwarzenegger segir að skilnaður sinn við Mariu Shriver hafi verið erfiður á sínum tíma. Samband þeirra er þó að hans sögn gott í dag.

Støre í sundi og Macron á Þingvöllum
Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, heimsótti Sundhöll Reykjavíkur í gær og skellti sér í heita pottinn. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, fór á Þingvelli í morgun ásamt Dúa J. Landmark og þjóðgarðsverði.

Glímdi við réttfæðisáráttu sem geðlæknar hafa enn ekki viðurkennt
Leikkonan Aldís Amah Hamilton glímdi við átröskunarsjúkdóminn orthorexia nervosa eða réttfæðisáráttu. Hún hefur stigið mikilvæg skref í baráttu sinni en fyrir hver tvö skref áfram er eitt aftur á bak.

Grillaðar kótilettur með guðdómlegri sultu
Ívar Örn Hansen er Helvítis kokkurinn sem ætlar að kenna ykkur að elda bragðgóðan mat á mannamáli á Vísi og á Stöð 2+. Matreiðsluþátturinn er fyrir þá sem vilja ekkert kjaftæði, bara elda bragðgóðan mat og munu þeir koma inn vikulega. Í þetta skiptið er það gamli skólinn á nýja mátann, hér eru kótilettur með brennivíns-beikon sultu, kartöflum og gulrótum í hvítlaukssmjöri.

Íslendingar flykkjast í skíðagönguferðir til Alpanna
Áhugi á skíðagöngu hefur aukist hratt síðustu ár og njóta skíðasvæði í Ölpunum mikilla vinsælda. Þangað hafa Bændaferðir boðið skíðagönguferðir frá árinu 2005 og eru miðarnir fljótir að fara.

Krakkarnir fái sér morfín í sófanum heima meðan foreldrarnir sóla sig á Tene
„Þetta er orðið svo rosalega hart í dag. Ég meina, ég missti einn besta vin minn um daginn úr ópíóðafíkn, ofneyslu,“ segir tónlistarmaðurinn Kristmundur Axel í viðtali í Bakaríinu á Bylgjunni.

Fjölmennt á sýningu Upplýsingatækniskólans
Óhætt er að segja að útskriftarsýning nemenda Upplýsingatækniskólans hafi heppnast með eindæmum vel um helgina, en fjölmenni sótti sýninguna þegar hún var opnuð í húsakynnum Tækniskólanum við Háteigsveg 35–39 á föstudag.

Blár Porsche varð fyrir valinu þegar bleikur var ekki til
Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, eða Prettyboitjokko, keyrir um á ljósblárri glæsibifreið af tegundinni Porsche Taycan en hefði viljað hann bleikan.

Fékk klárlega fæðingarþunglyndi
Unnur Eggertsdóttir leikkona segir það hafa tekið óvænt á að verða móðir en hún eignaðist dóttur á síðasta ári sem reyndi mjög á taugakerfið.

Beittur, ögrandi og vinsæll
Ástralski uppistandarinn Jim Jefferies treður upp í Laugardalshöll 21. maí með sýningu sína Give’em What They Want.

Skiptar skoðanir hlustenda Útvarps Sögu um ágæti Loreen
Hlustendur Útvarps Sögu eru misánægðir með úrslitin í Eurovision um síðustu helgi.

„Besta stöffið er að vera sóber“
„Nánast allt hefur veitt mér gleði og það fylgir því líka að ég er sóber listamaður,“ segir Snorri Ásmundsson. Listasafn Reykjanesbæjar opnar yfirlitssýningu á verkum hans á morgun klukkan 18:00 sem stendur út sumarið. Sýningin ber heitið Boðflenna en blaðamaður heyrði í Snorra og fékk að heyra nánar frá.

Finnskur hasar og búbblukvöld á Hygge kvikmyndahátíð
Sérstök sýning á hasarmyndinni Sisu fer fram í Smárabíó Max í kvöld með hlaðvarpsteyminu Ólafssynir í Undralandi. Sýningin hefst klukkan 19.20. Myndin er hluti af norrænu kvikmyndahátíðinni Hygge sem stendur nú sem hæst í Háskólabíói.

Fjórði þáttur af Kökukasti: Spennan í hámarki
Fjórði þáttur af Kökukasti er kominn í loftið. Um er að ræða stórskemmtilega fjölskylduþætti í umsjón bræðranna Gústa B og Árna Beinteins. Þættirnir eru sýndir hér á Vísi og á Stöð 2+ á mánudögum.

Hitti Siggu sex árum eftir að hún sagðist ætla að eignast barn ein og lífið hefur gjörbreyst
Fyrir sex árum eða árið 2017 hitti Sindri Sindrason fyrst hana Sigríði Lenu Sigurbjarnardóttir en þá var hún að íhuga eða búin að ákveða að eignast barn ein og sjálf.

Taktu þátt í Garðaleik Vísis
Garðaleikur Vísis stendur yfir í maí. Hægt er að vinna glæsilegan gjafapakka frá samstarfsaðilum Vísis.

Safna í fótboltalið með barneignum
Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Garðar Gunnlaugsson og Fanney Sandra Albertsdóttir, fegurðardrottning, flugfreyja og förðunarfræðingur, eiga von sínu öðru barni saman, en um er að ræða sjötta barn Garðars.